|
|
KENNARI - YFIRLIT

Ef þú vilt vita meira um kennarann, Önnu Heiðu Pálsdóttur, PhD, veita þessar síður einhverjar upplýsingar um mig. Ég hef skipt þeim í nokkrar undirsíður:
Bakgrunnur
Alls konar persónulegar upplýsingar um mig, æskkuár, fjölskyldu, áhugamál o.þ.h.
Ferilskrá
Þannig hef ég eytt lífi mínu hingað til, fyrir utan kennslu, og mikið af því virðist hafa farið í menntun.
Kennsla
Ég hef ekki mikið fengist við kennslu en er stöðugt að bæta við mig á því sviði. Reyndar hef ég ekki réttindi til að kenna fólki sem er ekki komið í háskóla, þannig að ég einbeiti mér að háskólanum. Mér finnst einstaklega skemmtilegt að kenna ritlist og hef fengið fjölmörg tækifæri til þess, auk kennslu í barnabókmenntum (sem eru jú reyndar mitt sérsvið) og í breskum bókmenntum (sem eru mitt annað sérsvið). Þar að auki hef ég kennt frásagnarlist, um fantasíur, o.fl.
Greinaskrif
Eins og flestir aðrir fræðimenn hef ég áhuga á því að kasta frá mér fræðigreinum annað slagið en ég hef einna mest ritað um barnabókmenntir.
Bækur og smásögur
Þessi listi er ekkert voðalega langur eins og stendur - en vonandi lengist hann með tímanum. Ég ætti nú að eiga nokkur góð ár eftir.
Fyrirlestrar
Hér er listi yfir flesta fryrilestra sem ég hef flutt á almennum vettvangi, á ráðstefnum, í skólum og víðar, bæði á ensku og íslensku.
Þýðingar
Eitt af því sem hefur veitt mér sem mesta ánægju í lífinu var að þýða þríleik Philip Pullman á íslensku, auk Gallabuxnaklúbbsins.
Hafðu samband
Ef þú þarft að ná sambandi við mig eru allar upplýsingar á þessari síðu.
|
The Burry Man

Þetta er stórkostleg síða, það er fjörugur Skoti sem rekur hana. Góð ráð fyrir rithöfunda í öllum þjóðlöndum (ekki eins amerísk og sumar síður). Sérstakur dálkur fyrir leikritahöfunda og þá sem skrifa fyrir útvarp, vísindaskáldsögur o.m.fl.
Skoða síðu >
|
|