HEIMASÍÐA NÁMSKEIÐS Í RITLIST VIÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS 2010
Næstum því búin að skrá lýðræðiseinkunnir
Nemandinn sem vildi ekki lýðræði virðist vera einn af fáum, þar sem mörg ykkar hafa virkilega LAGT MAT á framlag hinna nemendanna. Ég vil taka það fram að þessi aðferð tíðkast víða í háskólum í nútímaþjóðfélagi, þetta er ekki skyndihugmynd hjá mér. ........Sumir koma með góðar athugasemdir og ég skrái allt niður, þannig að þið sjáið hvað aðrir hafa sagt. Púff, púff, það er mikil vinna, en hjálpar ykkur vonandi í framtíðinni og hjálpar ykkur að skilja þá einkunn sem hinir gáfu ykkur. ........Vonandi tekst mér að klára þetta í kvöld. Það eru „bara" um 40 blöð og hvert með 20 einkunnum. Og umsögnum ... Mánudagur 9. maí 2010
Um einkunn frá samnemendum
Ég er mjög fylgjandi lýðræði og skil oft ekki hvaða ofurtrú nemendur hafa á einræði kennara. Nemendur vilja t.d. lítið hafa að gera með gagnrýni frá öðrum nemendum og telja mína ákaflega mikilvæga. Ég er ánægð með að þið virðið mitt álit en vil að þið sýnið samnemendum meira traust, meiri virðingu. ........Einn liður í þessari lýðræðisviðleitni minni er að láta samnemendur gefa ÞÉR einkunn - þeir meta hversu góð gagnrýnin þín er, hversu vel þú vandaðir til þeirra verkefna sem þú skilaðir inn, og hvort þú hafir yfirleitt eytt tíma í að lesa þeirra sögur. Þá getur þú hrósað þeim sem alltaf hafa lesið sögur hinna, og gengið vel frá sínum sögum til þess að auðvelda þér lesturinn - og haft fyrir því að mæta í tíma. ........Lýðræðið mitt fer fyrir brjóstið á sumum. Einn nemandi skrifar (nafnlaust að sjálfsögðu): „Ég lýsi frati yfir þessa einkunnagjöf. Þú hefðir allt eins getað séð um þetta sjálf, Anna. Þetta dæmist á þig að stemning til að tala um texta annarra hafi (eða hafi ekki) staðist væntingar þínar eða annarra. Símat á því hverjir tala og hverjir ekki getur verið fátt annað en þvingandi og setur óþarfa svip á umræður sem betra væri að vera án!" (Upphrópunarmerki hans) ........Jæja, jæja, jæja. Þið leggið ykkar mat á þetta. Lýðræði, pýðræði. Það DÆMIST á mig ;=). Heldur einhver að það sé ÞÆGILEGT að gefa einkunn? Einhver kvartaði yfir því að hann/hún vildi helst vera laus við að gefa einkunn. Ditto. But somebody has to do it. Annars fengju bara allir háskólapróf, með sömu einkunn. Til hvers ættu hinir þá að leggja sig fram? Sunnudagur 9. maí 2010
Lokaskiladagur = 7. maí
Eins og ég tilkynnti var lokaskiladagur þann 7. maí. Samt eru ekki allar möppur komnar - en þið vitið að þetta var allra síðasti skiladagur. Laugardagur 8. maí 2010
Lokaskiladagur færist fram um viku
Auglýstur hefur verið próftími í hinu námskeiðinu sem ég kenni, en prófið verður þann 26. apríl. Þetta þýðir að ég fæ það próf í hendur sama dag og verkefnamöppurnar ykkar. Það tekur mig bara nokkra daga að fara yfir enskuprófið, þannig að þið fáið framlengingu sem nemur þeim dagafjölda. Síðasti skiladagur verður föstudaginn 30. apríl. Laugardagur 27. marz 2010
Þið sem misstuð af ritæfingatímum
Þó að þið hafið misst af tíma, þýðir það ekki að þið sleppið við það verkefni, því þið þurfið að skila því í verkefnamöppunni. Sjáið leiðbeiningar hér fyrir hverja og eina af ritæfingunum.
Ritæfing 1, nafnið þitt (sjá hér neðar á síðunni - 15. janúar)
Ritæfing 2, fantasíukortið - smelltu hér til að skoða leiðbeiningarnar.
Ritæfing 3, orðahatturinn. Nemendur drógu 3 orð úr hatti og skrifuðu texta sem innihélt þau þrjú orð. Til þess að þú fáir örugglega 3 mismunandi orð, smelltu hér og notaðu endilega fyrstu þrjú orðin sem þú færð. Þau eru á ensku, þú þýðir þau bara (eða notar á ensku ef það kveikir neista). Skrifaðu smá texta á u.þ.b. 10 mínútum sem hefur þau öll þrjú að geyma (reyndu að ímynda þér að þú sért í tíma!). Þú getur svo endurskoðað og fínpússað þann texta.
Ritæfing 4, móðulistinn. Læknir hefur tilkynnt þér að þú eigir aðeins um sex mánuði eftir ólifaða. Skrifaðu lista yfir 10 hluti sem þú vilt gera áður en þú deyrð. Þú mátt lýsa hverju atriði nánar ef þú vilt. Laugardagur 27. marz 2010
Uppfært skipulag fyrir næsta mánuðinn
Ef þú smellir hér, getur þú séð nákvæmlega skipulagið næsta mánuðinn, ásamt kröfum um lestur fyrir tímana. Þetta er ein blaðsíða, PDF-skjal. Laugardagur 13. marz 2010
Fyrirlestur morgundagsins kominn inn!
Ég held að ég sé loksins búin að ná í skottið á sjálfri mér - fyrirlestur morgundagsins er kominn inn á Ugluna. Ég átti eftir að fjalla um nokkrar glærur úr fléttu-fyrirlestrinum, svo takið þau blöð með, ef þið prentuðuð þau út. Mánudagur 15. febrúar 2010
MIKILVÆGT: Tékklisti áður en þú skilar inn fantasíunni
Það vantaði mikið upp á að nemendur fylgdu leiðbeiningum fyrir fyrstu síður fantasíusögunnar, og ef leiðbeiningum er ekki fylgt, fá nemendur lægri einkunn. Hér er tékklisti sem hjálpar þér að athuga hvort þú hafir ekki fylgt leiðbeiningum fyrir fantasíusöguna sjálfa (frávik kosta þig í einkunn):
Stafagerð: Times New Roman 12 eða Arial 11
Línubil: „At least" 14-16
Nafnið þitt á HVERRI síðu (nota „Header"
Blaðsíðutal á HVERRIsíðu (nota „Footer")
Skjalið heitir NAFNINU þínu, og engir séríslenskir stafir eru notaðir (t.d. Anna_Palsdottir.doc)
Greinarmerki koma INN FYRIR GÆSALAPPIR.
Þegar NÝ PERSÓNA tekur til máls, byrjar NÝ LÍNA.
Ný málsgrein er INNDREGIN.
Sagan ber TITIL.
Þú fullnýtir hverja síðu (hefur litla spássíu efst og neðst til að spara félögum þínum í prenti).
Skjalið er í WORD.
Þú skilar inn á réttum tíma.
Sunnudagur 7. febrúar 2010
Góð orð frá Mayu
Á hverjum degi fæ ég, eins og þið öll, mikið af tölvupósti sem á að senda áfram, því annars lendir þú í ógæfu! Ég þoli ekki þannig bréf, og sendi þau aldrei áfram. En systir mín, rithöfundurinn Sella, klippti fróðleik út úr einu slíku bréfi, um konu að nafni Maya Angelou, sem var í heimsókn hjá Oprah Winfrey - og hún sendi mér það í dag. Eitt af því sem Maya sagði, snerti mig, og ég held að það eigi erindi við ykkur öll:
„People will forget what you said, people will forget what you did, but people will never forget how you made them feel.“
Munið þetta þegar þið skrifið. 5. febrúar 2010
Síðustu tvö lestrarheftin
Ég kem með í tímann á þriðjudaginn lestrarhefti fyrir Ólöfu Önnu og Herthu - eru það ekki bara þessir tveir nemendur sem höfðu pantað hefti og eiga eftir að fá það í hendurnar? 24. janúar 2010
Uppfærsla á tenglasíðu
Ég er búin, eftir tímann í dag, að uppfæra tenglasíðuna - og t.d. bæta inn mjög góðri síðu fyrir þá sem hafa áhuga á kvikmyndahandritun. 19. janúar 2010
Lestrarheftið
Ég fékk 11 hefti í hendurnar gær og hef tekið niður 5 pantanir (Finnbogi, Ólöf Anna, Ásdís, Ragnheiður og Sigríður), svo ég er með einhver aukahefti ef fleiri vilja kaupa. Ef þið viljið taka frá, sendið mér línu (annapals-hjá-hi.is).
VIÐBÓT: Vala og Hildur eru líka búnar að panta - og þá eru fjögur hefti eftir. Þau er hægt að panta, annars seld í tíma á morgun. 16. janúar - og 18. janúar 2010
Ritæfing nr. 1
Örfáir nemendur misstu af fyrsta rithringnum og spyrja hvað þeir geti gert í staðinn.
Leiðbeiningar mínar voru: „Skrifið einhverja sögu á bak við nafnið ykkar, sem hjálpar okkur hinum að muna hvað þið heitið." Ég nefndi sem dæmi einn nemanda á síðasta námskeiði, sem skrifaði um síðustu andartök frænda síns sem drukknaði (hann var skírður í höfuðið á honum, því móðir hans var komin langt á leið þegar þetta gerðist). Eftir tímann áttu nemendur að fara heim með söguna sína (ekki skila neinu til mín) og færa hana inn í tölvuna sína, snyrta til og lagfæra. Þessu er svo skilað í verkefnamöppunni í vor, í réttri röð, skv. leiðbeiningum í lesheftinu. Þið hin, sem misstuð af tímanum, gerið það sama. 15. janúar 2010
„My Portfolio"
Það hefur kostað suma samviskusama nemendur
heilabrot að finna út úr því hvar „My Portfolio" skjalið er, sem átti að lesa fyrir fyrsta tímann. Þarna á ég auðvitað við skjal sem heitir „Verkefnamappan" og er í lesheftinu ykkar. Gleymdi að þýða titilinn - afsakið! 15. janúar 2010
Einkavinur?
Nokkrir nemendur hafa spurt hvað hugtakið „einkavinur“ tákni, og svarið er að finna í leiðbeiningum fyrir verkefnamöppuna. Hér er skýringin:
Verkefni 1 = Aðilinn á undan þér í stafrófsröð (í hópnum þínum)
Verkefni 2 = Aðilinn 2 sætum á undan þér í stafrófsröð (í hópnum þínum)
Verkefni 3 = Aðilinn á eftir þér í stafrófsröð (í hópnum þínum)
Verkefni 4 = Aðilinn 2 sætum á eftir þér í stafrófsröð (í hópnum þínum)
Þið sem eruð í A-hópnum, vinsamlegast athugið að (J.) Völu vantar inn á blaðið sem þið fenguð í dag. Þið fáið annað næsta fimmtudag, með hennar nafni, svo þið skuluð bíða með að merkja inn einkavininn.
Hópaskipting
Ég er búin að skrá nöfnin ykkar í hópinn sem þið völduð í tímanum í gær. Eins og sést eru töluvert fleiri í seinni hópnum. Gott væri ef einhver er til í að flytja sig úr B yfir í A. Ef þú ert tilbúin(n) í það, vinsamlegast sendu tölvupóst til mín (annapals-hjá-hi.is).
........Ég er líka með þrjá „munaðarleysingja,“ sem ekki hafa valið hóp: Halla Ólafsd., Ragnar og Rósa Ólöf - kannski vilja þau fara í fyrri hópinn? Vinsaml. látið mig vita, takk! ........Þegar ég hef heyrt hvort einhverjir vilji flytja sig yfir, birti ég töflu yfir hópana á UGLU, svo þið getið skoðað hver „einkavinurinn" er í hverju tilfelli. Sennilega kemur það skjal inn í fyrramálið. ........STRAX BREYTING - NÚ 20 MANNS Í A og 25 Í B - ENN TÆKIFÆRI TIL AÐ JAFNA LEIKINN. 13. janúar 2010
Hópur A (fimmtud. kl. 15:50-17:10)- NÚ 20 manns Anna Arnardóttir
Ásdís Ólafsdóttir
Birna Dís Eiðsdóttir
Bryndís Emilsdóttir
Finnbogi Þorkell Jónsson
Gunnhildur H Steinþórsdóttir
Halla Margrét Jóhannesdóttir
Halla Ólafsdóttir
Ingibjörg Úlfarsdóttir
J. Vala Höskuldsdóttir
Kathrin Maria Schmucker
Klara Helgadóttir
Ólöf Anna Jóhannsdóttir
Ólöf Skaftadóttir
Ragna Björg Bjarnadóttir
Rebekka Rafnsdóttir
Sigríður Eir Zophoníasardóttir
Steingerður Sonja Þórisdóttir
Trausti Dagsson
Örlygur Ólafsson
Hópur B (fimmtud. kl. 17:10-18:30)- 25 manns Aðalsteinn Einarsson
Alexander Dan Vilhjálmsson
Anna Sóley Viðarsdóttir
Bjarnheiður Erlendsdóttir
Brynja Huld Óskarsdóttir
Dagbjört Vésteinsdóttir
Dagný Berglind Gísladóttir
Daníel Geir Moritz Hjörvarsson
Esther Ýr Þorvaldsdóttir
Helga Ágústsdóttir
Hertha Richardt Úlfarsdóttir
Hildur Knútsdóttir
Inga Þóra Ingvarsdóttir
Jón Bjarki Magnússon (ekki skráður)
Katrín I Jónsd. Hjördísardóttir
Kolbrún Lilja Kolbeinsdóttir
Kristján Már Gunnarsson
Ólafur Sindri Ólafsson
Sandra Guðrún Guðmundsdóttir
Ragnheiður Elín Clausen
Steinunn Rósa Sturludóttir
Sverrir Norland
Tumi Ferrer
Una Björk Sigurðardóttir
Þorgerður Ösp Arnþórsdóttir
MÆTING!
Vinsamlegast athugið að góð mæting er skilyrði fyrir því að teljast hafa lokið þessum áfanga - hluti einkunnar veltur á þessu atriði. Ef þú sleppir 6 tímum telst það tilkynning til mín um að þú sért hætt/ur á námskeiðinu. 12. janúar 2010
Lesefni Þið þurfið að lesa 3 bækur en fáið þær á hvaða bókasafni sem er. Þetta eru Draugaslóð eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur, Milljón holur eftir Louis Sacher og Ég heiti Blíðfinnur en þú mátt kalla mig Bóbó eftir Þorvald Þorsteinsson. Ekki gleyma að skrifa hjá ykkur (á eitt af blöðunum í möppunni ykkar) eitthvað sem þið takið eftir við lesturinn (t.d. hvað varðar tækni höfundar). 12. janúar 2010
The Burry Man
Þetta er stórkostleg síða, það er fjörugur Skoti sem rekur hana. Góð ráð fyrir rithöfunda í öllum þjóðlöndum (ekki eins amerísk og sumar síður). Sérstakur dálkur fyrir leikritahöfunda og þá sem skrifa fyrir útvarp, vísindaskáldsögur o.m.fl. Skoða síðu >
Vefmeistari: Anna Heiða Pálsdóttir - anna (hjá) ritlist.is