|
Rupert
Grint í viðtali við THE SUN
Blaðamaður:
Grant Rollins
Viðtal
þýtt af RupertGrintNet
í maí 2004
Anna Heiða Pálsdóttir þýddi
(Mynd
af Rupert með hundinn sinn, Ruby, í garðinum
heima hjá sér) |
Rupert
Grint hefur nú í fyrsta skipti sagt frá því
hvernig hann fékk hlutverk Ron Weasley: hann var í
pilsi.
Ungi
leikarinn elskaði metsölubækur J.K. Rowling og var
ákafur að fá hlutverkið.
Til
þess að gera eitthvað sérstaklega eftirtektarvert
stældi hann einn af kennurum sínum, sem er kona.
Í
einkaviðtali við Sun, sínu stærsta til þessa,
sagði Rupert: „Ég klæddi mig upp eins og
leiklistarkennarinn minn fyrir vídeóupptökuna
sem átti að senda inn, og ég rappaði.“
„Þannig
vill til að hún er kona svo ég varð að
vera í pilsi. Ég veit að Ron er ekki kvenkyns
en mig langaði að vekja athygli á mér og sýna
að ég gæti ýmislegt.“
Rupert,
sem þá var 11 ára, komst að því
að senda mátti inn prufuupptökur á vefsíðu
BBC fyrir barnaþættina Newsround. Hann þurfti
að fara sex sinnum í leikprufur eftir að hann sendi
inn myndbandið - og hafði ekki gaman af því.
Rupert
segir: „Í leikprufunum verður maður að
læra hlutverkið sitt utan að og fara í prufuupptöku.
Ég varð að gera þetta sex eða sjö
sinnum. Mér fannst það ekkert skemmtilegt því
þetta tekur virkilega á taugarnar.“
Rupert
er nú 15 ára - en hann hafði bara komið fram
í skólaleikritum áður en hann hlaut hlutverk
besta vinar Harrys.
Á
einni nóttu breyttist hann úr venjulegum skólastrák
í kvikmyndastjörnu. Hann er smám saman að
venjast frægðinni - og athygli stelpnanna úr aðdáendahópnum.
„Ég
fæ fullt af aðdáendabréfum frá stelpum
og sumar stelpur koma og tala við mig úti á götu.“
Rauðhærða
stjarnan er ekki hrifinn af rómantískum hlutverkum.
En í kvikmyndinni er Ron hægt og hægt að
falla fyrir Hermione vinkonu sinni, þannig að Rupert verður
að fást við nokkur „klaufaleg“ atriði.
Hann
lætur uppi að búið sé að taka upp
nokkrar senur þar sem þau skötuhjúin faðmi
hvort annað og haldist í hendur - sem sýnir að
nýi leikstjórinn Alfonso Cuaron hafi kryddað handritið
svolítið.
Rupert
segir: „Sumar senur voru svo vandræðalegar. Ég
þurfti að halda í höndina á Hermione.
Við föðmuðumst líka en það var
klippt út.“
Í
bókunum haldast Ron og Hermione ekki í hendur fyrr
en í þeirri fjórðu, Eldbikarnum.
Rupert
segir: „Það er skrýtið að leika ástarsenu.
Ég hef aldrei verið hrifinn af því að
leika rómantíska manneskju.“
Honum
finnst mun meira heillandi að leika í gamanmyndum. Og
Ron segir ýmsa fyndna hluti sem Rupert tekst vel að koma
til skila. Hann segir: „Ég er ekki alvarlega týpan.
Ron er fyndinn náungi og þess vegna er ég svo
hrifinn af því að leika hann.“
„Ég
hef alltaf verið hrifinn af gamanmyndum. Ég held mikið
upp á Lee Evans. Hann er „kúl“. Ég
myndi gjarnan vilja leika í einhverri gamanmynd þegar
Harry Potter-myndirnar eru búnar.“
Gríninu
er ekki lokið þegar slökkt er á myndatökuvélunum.
Rupert og Daniel Radcliffe, sem leikur Harry, eru orðnir miklir
vinir og hafa gaman af fíflalátum.
Rupert
segir brosandi: „Við Dan gerðum klikkaðan golfvöll
úr drasli sem við fundum út um allt í stúdíóinu.
Við bjuggum líka til vindmyllu sem við ætluðum
að knýja áfram með kæliviftu, en það
reyndist svolítið hættulegt.“
Rupert
teiknar líka grínmyndir af vinum og meðleikurum.
Hann
segir: „Ég teikna grínmyndir. Ég teiknaði
Alan Rickman (prófessor Snape) með risastórt nef.
Ég ætlaði ekki að leyfa honum að sjá
myndina en hann læddist aftan að mér og sá
hana. Hann spurði hvort hann mætti eiga hana, og ég
var dauðfeginn. Þetta var eins og þegar kennari
grípur mann gera eitthvað sem er bannað. Ég
var dauðhræddur.“
Rupert,
sem verður 16 ára í ágúst, hefur
ekki gaman af skólanum. Hann viðurkennir að hann
„gleymi“ oft að læra heima og vill gjarnan
hætta í skóla eftir samræmdu prófin
í júní 2004.
Hann
segir: „Það er enn verið að skamma mig.
Ég var látinn sitja eftir þegar ég kom
aftur í skólann eftir myndatökurnar vegna þess
að ég lærði ekki heima.“
„Þegar
leikstjórinn gaf okkur verkefni til að hjálpa
okkur að komast inn í hlutverkin átti ég
að lýsa Ron en ég gleymdi því alveg.
En Alfonso fannst þetta svo líkt Ron, þannig
að hann varð ekki vondur.“
Rupert
er enn ekki búinn að ljúka lestrinum á
fimmtu bókinni um Harry Potter, Fönixreglunni, sem kom
út sl. sumar. Hann viðurkennir: „Ég er byrjaður
á henni og hún virðist stórfín.“
Ef
til vill er félagslífið að taka of mikið
af tíma hans.
Hann
segir: „Ég er byrjaður í golfi. Ég
elska líka að keyra go-kart bíla.“ Ungi
leikarinn hefur notað launin fyrir þessar þrjár
myndir til að leyfa sér ýmislegt.
„Ég
keypti mér go-kart bíl og golfsett. Ég kaupi
mér hluti sem ég hef gaman af. Svo er eitthvað
af peningunum geymt í lokuðum sjóð í
banka.“
En
Rupert finnst ekkert skemmtilegra en að vera á tökustað.
Hann talar af miklum ákafa um áhættuatriði
fyrir nýju myndina. „Það er gaur í
samfestingi sem dregur mig eftir grasinu. Í myndinni er hann
tekinn út og tölvugerður hundur settur í
staðinn.“
„Mér
fannst svo gaman að leika í þessari mynd. Hún
er æðisleg.“
Rupert
býr hjá foreldrum sínum, Jo og Nigel, ásamt
fjórum yngri systkinum og hundinum Ruby í Hertfordshire
á Englandi. Hann segir: „Ég þarf ennþá
að taka sjálfur til í herberginu mínu.
Ég er að reyna að lifa venjulegu lífi eins
og hægt er. Ég kem úr stórri fjölskyldu
og það hjálpar manni að halda í raunveruleikann.“
Yngsta
systir hans, Charlotte, hélt að hann hefði galdramátt
þegar hún var lítil. Rupert segir: „Charlotte
var þriggja ára þegar myndin um Viskusteininn
var frumsýnd og hún hélt að þetta
væri raunverulegt. Þegar ég datt af hestbaki
var hún rosalega áhyggjufull. Sem betur fer hefur
hún ekki beðið mig um að gera nein töfraatriði.“
Þýðing:
Anna Heiða Pálsdóttir, © 2004.
|