Um síðuna
Eldri fréttir
Bækurnar
Bók 1
Bók 2
Bók 3
Bók 4
Bók 5
Bók 6
Bók 7
Orð og nöfn
Heimavistir 
Persónur
Galdraþulur
J.K. Rowling
Ævisaga  
Myndasíða
Verðlaun
Góðverk 
BBC þáttur
Grein eftir HJ 
Viðtöl
Ádeilur
Kvikmyndir
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Fyrir kennara
Viltu leika?
Viðtal/Hayman
Frumsýningar
Leikarar
Daniel Radcliffe

Emma Watson

Rupert Grint
Tom Felton
Sean Biggerst.
Aðrir leikarar
Blaðam.fundur
HBO viðtal
Heimilisföng
FAN-klúbbur
„Fan-art“
„Fan-fiction“
Tagboard
Fastagestir
Afmælisdagabók
Bréf frá gestum
Gestabók
Tenglar
Íslenskir
Erlendir
Leikir
Leikir í gangi
Ýmsir leikir
Annað
Tölvupóstur
English
 

 

(Viðtal við Rupert í Nickelodeon Magazine í október 2001 - fyrsta myndin)

Hvað heldur þú mest upp á í sambandi við Ron?

Hann er meinfyndinn. Og maður vorkennir honum hálfvegis af því að hann fær allt notað frá eldri bræðrum.

Hvaða „stunt-atriði" fannst þér skemmtilegast?

Ég var hengdur á vír og ég var látinn falla niður í djöflagryfjuna. Það var þrælskemmtilegt og það gladdi mig þegar þurfti að taka þetta upp aftur.

Ef þú ættir að leika einhvern annan í myndinni, hvern vildir þú helst leika?

Ég hugsa að það væri Draco Malfoy. Hann er svolítið illkvittinn og það væri skemmtilegt. Mér þætti líka 'kúl' að fá áhorfendur upp á móti mér.

Hvernig fórstu að því að sækja skólann á meðan á upptökum stóð?

Við höfðum einkakennara á staðnum. Þegar við vorum ekki að taka þátt í senum vorum við inni í skólaherbergi að læra. Við urðum að læra að minnsta kosti í 3 tíma og í mesta lagi 5 á dag.

Hvað er uppáhaldsfagið þitt í skóla?

Mér finnst skemmtilegt að teikna. Ég teiknaði mynd af Alan Rickman (sem leikur Snape). Hún var góð en gerði hann forljótan. Svo komst ég að því að hann stóð á bak við mig og sá myndina. Hann tók þessu gríni vel.

UPPÁHALD RUPERTS GRINT

Harry Potter bók: Þriðja bókin, Harry Potter og fanginn frá Azkaban. Aðallega vegna þess að Ron fær uglu.

Persóna: Ron. „Meira að segja áður en ég vissi að ég myndi leika hann í kvikmyndinni!"

Sena í kvikmyndinni: Skáksenan. „Þarna voru þessir risastóru taflmenn, og ég fékk að vera á hestbaki."



„PERMLESSBOY“

Rupert Grint lék í Kafteini ofurbrók og var þá með permanent í hárinu. Nú hefur hann tekið þátt í spjallrásum BBC og kallar sig PERMLESSBOY (þar sem permanentið er farið). Kíktu á spjallrás CBBC eða skoðaðu þýðingar Pálínu á innskotum hans í spjallið.

 

 

 

 

 Hárið á Rupert

Rupert Grint mætti á frumsýninguna í London með nýja greiðslu. CBBC er með könnun: Finnst þér nýja hárið flott? Greiddu atkvæði hér.