Nýlega kom
á vef HarryPotter.com það
sem skrifað var niður eftir viðtal við tvær af
aðalstjörnunum úr myndinni Harry Potter og viskusteinninn,
Rupert Grint og Emmu Watson. Rupert leikur Ron Weasley og Emma er í
hlutverki hermione Granger. AOL Live
veitir HarryPotter.com leyfi til að birta viðtalið.
*****************************************
Jessica Mae:
Emma Watson og Rupert Grint eru komin á staðinn. Hæ,
Emma! Hæ, Rupert! Muggar, galdramenn og galdrakonur um allan heim
eru með fullt af spurningum til að leggja fyrir ykkur. Lynn
spyr:
Spurning: Hæ!
Hvernig tilfinning var það að fá hlutverki í
kvikmyndinni?
Emma Watson:
Stórkostleg, hún var hreint stórkostleg!
Rupert Grint:
Það var svo kúl! Það var
frábært! Þetta var svalasta stundin í lífi
mínu
Jessica Mae:
Hvar voruð þið þegar þið fenguð fréttirnar?
Emma Watson:
Við vorum saman. Við hugsuðum Ó, nei, enn ein
prufutakan! Við vorum bæði saman og þá
var okkur sagt að við hefðum verið valin til að
leika Ron og Hermione.
Jessica Mae:
Divaschmeevu langar að vita:
Spurning:
Voru allir leikararnir í Harry Potter myndinni breskir?
Emma Watson:
Chris Columbus, leikstjórinn, var sá eini af okkur sem
er amerískur.
Jessica Mae:
Deuceswild822 er með spurningu:
Spurning:
Hvenær hefst myndatakan á næstu mynd og haldið
þið bæði áfram í næstu myndum
þar á eftir?
Rupert Grint:
Nú, ég og Dan, við erum farnir að leika í
senunni með fljúgandi bílnum.
Emma Watson:
Ég byrja í desember. Ég er ekki byrjuð enn.
Við hugsum um eina mynd í einu. Ég veit ekki einu
sinni hvort þeir ætli að gera þriðju myndina.
LIVEJessicaMae:
Hér er góð spurning frá Mynamesnotkemeng:
Spurning: Var
erfitt að slátt við tröll í þykjustunni?
-- Kim
Rupert Grint:
Allar senurnar sem eru lagaðar með tölvutækni
eftir á voru erfiðar.
Emma Watson:
Af því að maður verður að láta
eins og eitthvað sé þarna sem er ekki þar.
Jessica Mae:
Angel95129 langar að vita:
Spurning:
Hvað tók myndatakan langan tíma?
Rupert Grint:
Um tíu mánuði eða svo.
Emma Watson:
Sjö eða átta mánuði. :) Ha ha!
Jessica Mae:
Hér er Kids Only spurning frá Mari:
QSpurning:
Hafið þið lesið bækurnar?
Rupert Grint:
Ég var Harry Potter aðdáandi löngu áður
en til stóð að gera mynd.
Emma Watson:
Ég var hálfnuð með þriðju bókina
þegar ég fór í prufutöku. Um það
leyti sem ég fékk hlutverkið var ég búin
með bókina!
Jessica Mae:
BuRNiNBLoNDiE910 er með virkilega góða spurningu:
Spurning:
Emma, hvernig fannst þér að vinna með strák
eins og Daniel Radcliffe? Ertu skotin í honum eða Rupert?
Emma Watson:
Umm, Rupert situr nú hérna við hliðina á
mér. Í fyrsta lagi, ef ég væri skotin í
honum þá myndi ég ekki segja þér það!
Og í öðru lagi, þá er ég það
eiginlega ekki! :)
Jessica Mae:
Henry hvolpur spyr:
Spurning: Hvað
var það skemmtilegasta við kvikmyndatökuna?
Rupert Grint:
Það voru öll special effects-atriðin.
Emma Watson:
Fyrir mig var það fólkið, allir staðirnir,
og bara að leika, það er skemmtilegt.
Jessica Mae:
Hér er önnur Kids Only spurning frá Amöndu:
Spurning:
Rupert, áttu kærustu?
Rupert Grint:
Ummm, nei!
Jessica Mae:
SilverDragon574 spyr:
Spurning:
Hver er uppáhalds persónan ykkar í Harry Potter
bókunum?
Emma Watson:
Hagrid. Mér finnst hann svo fyndinn!
Rupert Grint:
Fyrir mig er það sennilega Ron. Hann er svo líkur
mér. Ég er með rétta hárið, ég
er hræddur við köngulær og ég elska sælgæti!
Jessica Mae:
Hér er spurning fyrir þig, Rupert. Shahinanawaz spyr:
Spurning:
Hvað var það besta við að leika Rupert í
myndinni?
Rupert Grint:
Að vera alltaf að borða nammi! Maður hittir fullt af
fólki, og það er skemmtilegt.
Spurning: Ef
þið ættuð huliðsskikkju í einn dag, hvert
mynduð þið fara og hvað mynduð þið gera?
Emma Watson:
Ég myndi gera mig ósýnilega svo ég gæti
sloppið inn á myndir sem eru bannaðar yngri en 15 ára.
Rupert Grint:
Ef ég væri ósýnilegur þá myndi
ég læðast út þegar ég er látinn
sitja eftir!
Jessica Mae:
Kelly og Kyle langar að vita:
Spurning: Hvaða
persóna finnst ykkur mest ógnvekjandi?
Emma Watson:
Svarið er augljóst, Voldemort!
Rupert Grint:
Fyrir mig er það Hermione. Bara að grínast! Voldemort.
Jessica Mae:
Tekur annað hvort ykkar þátt í íþróttum?
Emma Watson:
Ég elska íþróttir. Ég spila rounders,
hokkí og tennis fyrir minn skóla.
Rupert Grint:
Ég er hrifinn af fótbolta, - soccer, eins
og þið Kanarnir kallið það. :)
Spurning:
Ef þið spiluðuð Quidditch, hvaða stöðu
hefðuð þið?
Rupert Grint:
Ég væri beater.
Emma Watson:
Ég hugsa að ég vildi vera sóknarmaður (chaser).
Það hlýtur að vera skemmtilegt, því
þá fær maður að fara um allt og þetta
er skemmtilegasta staðan.
Rupert Grint:
Ég valdi beater því þeir fá
að lemja bludgers!
Jessica Mae:
Bronwyn langar að vita:
Spurning: Hver
er uppáhalds setningin sem þið sögðuð
í myndinni?
Emma Watson:
Mín er, Ég er farin í rúmið áður
en annar hvor ykkar finnur upp á einhverju fleira sem kemur okkur
í vandræði!
Rupert Grint:
Mín var Bloody Brilliant!
Jessica Mae:
Catie langar að vita:
Spurning:
Hvernig leið ykkur þegar þið sáuð myndina
í fyrsta sinn?
Emma Watson:
Í fyrsta skipti sem ég sá hana var ég dauðhrædd.
Það var hryllilegt að sjá sjálfa mig fjögurra
metra háa á hvíta tjaldinu.
Rupert Grint:
Mér leið eins, hugsa ég.
Jessica Mae:
Þessi spurning kemur frá BUDMAN327.
Spurning:
Hvernig hefur það breytt lífi ykkar að allir þekkja
ykkur?
Rupert Grint:
Það er bara kúl!
Emma Watson:
Ég hugsa að svona í byrjun væri það
svalt að gefa eiginhandaráritanir og myndir, en þetta
er heilmikil vinna.
Jessica Mae:
Mig langar að vita: ef þið fengjuð að halda einum
hlut frá myndinni, hvaða hlut mynduð þið velja?
Emma Watson:
Ég held ég myndi velja einhvern af taflmönnunum.
Rupert Grint:
Ég vildi eiga nammið!
Jessica Mae:
Nú veit ég að þið hafið bæði
hitt höfundinn, J.K. Rowling. Hvernig er hún?
Rupert Grint:
Hún er virkilega viðkunnanleg og almennileg!
Emma Watson:
Ég segi það sama, hún er ofboðslega
viðkunnanleg og hefur góða kímnigáfu.
Jessica Mae:
Andrew langar að vita:
Spurning: Hver
er uppáhalds minningin þín frá æskuárum?
Emma Watson:
Ég veit það eiginlega ekki. :)
Jessica Mae:
Jess1cox spyr:
Spurning:
Var einhverju sleppt í myndinni sem er í bókinni?
Emma Watson:
Ég held ekki. Þeir reyndu að vera eins trúir
bókinni og hægt er. Auðvitað þurfti að
sleppa ýmsum hlutum, annars tæki sýning myndarinnar
heilan dag. En ég held að þeir hafi fylgt bókinni
að mestu leyti.
Jessica Mae:
Hér er spurning fyrir Emmu frá Mjsbone8:
Spurning:
Emma, ertu lík Hermione að einhverju leyti?
Emma Watson:
Nei, aðallega vegna þess að þó mér
finnist gaman í skólanum gengur mér ekkert sérstaklega
vel að læra.
Jessica Mae:
Anibrain1 spyr:
Spurning:
Voru fjölbragðabaunirnar sem þið notuðuð
í myndinni fjölbragðabaunir í alvörunni?
Emma Watson:
Já!
Rupert Grint:
Já, þær voru til dæmis með grasbragði
og edikbragði. Þær voru líka til með góðu
bragði - ísbragði og svoleiðis. Já, þær
voru fjölbragðabaunir!
Jessica Mae:
Hvaða bragð var verst?
Rupert Grint:
Sko, ég fékk hryllilega baun - ég veit ekki enn
hvaða bragð þetta var.
(AHP: Ég
bæti því hér inn að einn íslenskur
aðdáandi sagði mér að fjölbragðabaunir
og súkkulaðifroskar fengjust í Konfektbúðinni
við Laugaveginn).
Emma Watson:
Ég prófaði líka nokkrar, sú versta var
með ælubraði! Ég fattaði það ekki
strax. Piparrót var líka ógeðsleg.
Jessica Mae:
Usagirl100 langar að spyrja:
Spurning: Hver
var uppáhalds senan sem þið lékuð í
og hvers vegna?
Rupert Grint:
Ég var mest hrifinn af taflborðinu. En Hogwartsskóli
er líka frábær, vegna allra hlutanna sem gerast
þar.
Emma Watson:
Fyrir mig væri það tröllasenan, aðallega af
því að ég þurfti að sýna áhættuleik.
Spurning: Hvers
óskið þið ykkur fyrir hátíðarnar?
Rupert Grint:
Ég vildi óska þess að allir færu á
myndina!
Emma Watson:
Ég vildi að það kæmist á friður
milli Bandaríkjanna og Afghanistan.
Jessica Mae:
Næsta spurning kemur Mt Giraffe:
Spurning:
Langar ykkur að halda áfram að leika allt lífið?
Rupert Grint:
Mig langar til þess. Mér finnst það æðislegt.
Ég er búinn að skemmta mér svo vel. Það
er virkilega svalt.
Emma Watson:
Maður verður bara að sjá til hvað býðst.
Ef ekkert gerist, þá er það allt í lagi.
En ég er opin fyrir hugmyndum!
Jessica Mae:
Við höfum tíma fyrir eina spurningu í viðbót.
Spurning: Hvað
langar ykkur að segja bandarískum áhorfendum um myndina?
Emma Watson:
Farið að sjá hana - hún er hreint frábær!
Rupert Grint:
Ég myndi ráðleggja öllum að fara á
hana.
Jessica Mae:
Emma og Rupert, þakka ykkur kærlega fyrir komuna og spjallið.
Komið endilega aftur!
Emma Watson
og Rupert Grint: Þakka ykkur fyrir!
Copyright 2001
America Online, Inc. All Rights Reserved.