Viðtal
við Total Star
Winky,
sem rekur frönsku síðuna PotterWorld,
sendi Kristin á The
Leaky Cauldron enska þýðingu á viðtali
við Daniel Radcliffe sem franska blaðið Total
Star birti nýlega. Ég þýddi viðtalið
svo úr ensku fyrir ykkur. (Athugið að búið
er að þýða það úr frönsku
yfir á
ensku, og nú á íslensku, þannig
að orð gætu hafa brenglast en innihaldið er
nokkurn veginn það sama)
Hvernig
er andrúmsloftið á tökustað „Harry
Potter og fangans frá Azkaban?“
Það
er mjög gott. Mér finnst svo gott að vera aftur
farinn að vinna með Emmu (Watson), Rupert (Grint), Tom
(Felton) og öllum hinum. Við erum öll orðnir
miklir vinir síðan við hittumst fyrst á
tökustað fyrstu myndarinnar. Við skemmtum okkur vel
saman og það er auðséð á tökustað.
Okkur kemur mjög vel saman við nýja leikstjórann,
Alfonso Cuaron. Ég tel mig heppinn að hafa fengið
tækifæri til að vinna með honum og Chris Columbus.
Þeir eru ólíkir en báðir góðir
á sinn hátt. Chris veit nákvæmlega
hvað hann er að gera, hann er aldrei í vafa, og
hann er sko sannarlega orkumesti leikstjóri sem ég
hef fyrirhitt. Hann hefur líka svo frábæra
kímnigáfu og hefur gefið mér svo mikið.
Alfonso er aftur á móti mjög ástríðufullur
og leggur allar sínar tilfinningar í myndina. Hann
hefur gefið mér mikinn inblástur og mér
finnst ég hafa þroskast fyrir vikið.
Gengur vel að sameina lærdóminn og kvikmyndatökurnar?
Já,
það leggja sig allir fram við að hjálpa
mér. Í fyrsta lagi er myndatökuliðið
svo vel skipulagt, kennararnir eru samvinnuþýðir
og vinir mínir taka þátt í þessu,
svo það er ekkert mál. Ég held sambandi
við gamla skólann minn á Netinu. Námið
er mikilvægt fyrir mig og ég myndi ekki hætta
að læra hvað sem í boði væri. Mér
gengur vel með heimalærdóminn vegna þess
að ég er með einkakennara. Ég er heppinn
vegna þess að ég er að læra miklu betur
en áður.
Ætlar
þú að leika Harry í myndinni um Eldbikarinn?
Ég
veit að margir halda að svo verði ekki vegna þess
að ég hef þroskast og breyst mikið síðan
ég lék Harry Potter í fyrstu myndinni, en
Harry hefur líka stækkað og þroskast. Þess
vegna sé ég ekkert að því, og mig
langar að leika í fjórðu myndinni. En eftir
það, ég veit ekki hvað gerist með Fönixregluna
- það verður bara að koma í ljós.
Ég veit ekki hvort Emma og Rupert ætli sér
að leika í fimmtu myndinni. Og satt að segja veit
ég ekki hvort það sé rétt að
ég leiki í öllum myndaflokknum vegna þess
að ég er orðinn svo náinn Harry, mér
finnst ég næstum því vera hann, svo
ég þarf kannski á sálgreiningu að
halda til að læknast! (Hann hlær).
Þú
átt þá enn margt sameiginlegt með Harry?
Já,
ég er sannfærður um það. Stundum finnst
mér að þetta sé ég í bókunum
en ekki einhver sögupersóna. Harry og ég erum
báðir að fullorðnast á svipaðan
hátt og vinirnir skipta okkur báða miklu máli.
Eftir því sem tíminn líður sé
ég betur og betur hvað við líkjumst hvor
öðrum. Við erum báðir svo forvitnir að
við erum alltaf að lenda í vandræðum.
Ertu
að vinna í öðrum myndum til að taka af
þér „andlit Harrys“?
Myndatökurnar
fyrir hverja Harry Potter mynd hafa tekið um 11 mánuði
af hverju ári fyrir mig, svo ég get ekki séð
fram á að hafa tíma til að leika nokkuð
annað. En mig langar auðvitað í önnur
verkefni. Satt að segja langar mig rosalega mikið að
verða leikstjóri - sú hugmynd heillar mig.
Hvað
finnst þér um frægðina?
Ég
er enn svo undrandi þegar ég hitti aðdáendur
mína, þeir veita mér svo mikinn stuðning.
Fólk sýnir mér svo mikla væntumþykju
og örlæti að mér finnst ég njóta
forréttinda. Þetta er einkennilegt - og ég
velti þvi oft fyrir mér hvort ég eigi allt
þetta skilið. Þetta hefur gefið mér
tækifæri til að ferðast og uppgötva yndislega
staði. En það sem mér finnst skemmtilegast
er að sjá kvikmyndina þegar hún er tilbúin.
Þegar við erum búin að leggja svona mikla
vinnu í hana, og svo mikla orku, að hafa gert þetta
í samvinnu til að búa myndina til, og sjá
fólk njóta hennar, það er svo æðislegt
að sjá árangur erfiðis síns. Og ég
elska að gefa eiginhandaráritanir. Það er
verst að nafnið mitt er svo langt að ég er
farinn að skrifa bara „Dan R“.
Hvað
gerirðu í frístundum?
Ég
er mikill kvikmynda- og tónlistaraðdáandi. The
Sex Pistols of Clash eru mínar uppáhaldshljómsveitir,
það ætti að segja þér eitthvað
um hvers konar tónlist ég hlusta á. Ég
er að læra að spila á bassagítar og
tek hann með mér hvert sem ég fer, og líka
DVD-spilarann minn og fullt af kvikmyndum. Þar fyrir utan
finnst mér ég ósköp venjulegur unglingur.
Ég fer í skólann þegar hlé er
á myndatökum, ég fer út með vinum
mínum, við höldum pizza-veislur, ég fer
í bíó . . . ég er ekkert ólíkur
hinum, og mér finnst ekkert vandamál þótt
fólk þekki mig á götu. Ég á
mér venjulegt líf eins og allir aðrir.
Þýðing:
Anna Heiða Pálsdóttir,janúar 2004. Ef
þú tekur þetta viðtal á síðuna
þína, vinsaml. nefndu hver þýddi.