Fullt
nafn:
Daniel Jacob Radcliffe (Gresham)
Gælunöfn:
Dan, Danny
Aldur:
13
Hæð:
Um 170 cm (og enn að stækka)
Fæðingardagur:
23. júlí 1989
Fæðingarstaður:
London, Englandi
Núverandi
heimili: Fulham, Englandi
Foreldrar:
Marcia Gresham (vinnur við val á leikurum)
og Alan Radcliffe, umboðsmaður rithöfunda
Stjörnumerki:
Ljón eða krabbi
Háralitur:
Dökkbrúnn
Augnalitur:
Heiðblár
Rétthentur/örvhentur:
Rétthentur
Uppáhaldsfög
í skóla: Vísindi, leikfimi, bókmenntir
Leiðinleg
fög í skóla: Reikningur, franska.
Gæludýr:
Tveir border collies hundar (Binka og Nugget)
Uppáhaldsdýr:
Úlfur (Daniel sagði í viðtali að
ef hann hefði yfirnáttúrulega krafta myndi hann
breyta báðum hundunum sínum í úlfa).
Uppáhaldsleikarar:
Tom Cruise, Philip Semour Hoffman, Paul Bettany, Jude
Law, Ben Stiller, Tom Hanks, Tim Robbins, Anthony Hopkins og Ed
Harris.
Uppáhaldsleikkona:
Nicole Kidman, Kate Hudson, Julia Roberts, Catherine Zeta-Jones,
Cameron Diaz og Renee Zellweger.
Uppáhaldskvikmyndir:
12 angry men (The Original), Whats eating Gilbert Grape, Apollo
13, Shakespeare in love, Moulin Rouge, Shaw Shank Redemtion, The
Dish
Uppáhalds-sjónvarpsþættir:
Simpson-fjölskyldan, WWW-Wrestling (fjölbragðaglíma),
Pkémon, Fulham-aðdáendafótbolti, Formúlu
1 kappakstur.
Besti
vinur: Alex Berman
Uppáhalds-kvikmyndatónlist:
Moulin Rouge
Uppáhaldstónlist:
Stereophonics, U2, REM, Sex Pistols, The Strangles, The Undertones,
Iggy Pop, The Clash, Dandy Warhols, Lou Reed, The Ramones, New
York Dolls (gamlar pönksveitir)
Uppáhaldsdrykkur:
Diet Coke
Uppáhalds-sælgæti:
Mars-súkkulaði
Uppáhaldslitir:
Grænn, rauður, gull
Uppáhaldstala:
9
Draumar:
Hann langar að læra að spila á trommur. Daniel
Radcliffe var í janúar 2003 í Japan til að
kynna myndina um Leyniklefann. Hann sagði á blaðamannafundi
frá þeim draumi sínum að tala fyrir einhverja
persónu í þáttunum um Bart Simpson
- sjáðu fréttina hér.
Daniel
óskar þess að hafa fengið að leika hlutverkið
sem Ewan McGregor fór með í Moulin Rouge. „Ég
hefði samt ekki getað það. Ég get ekki
sungið. Ég gæti sko hugsað mér kossaatriðin
með Nicole Kidman. Það þyrfti ekki að
pína mig til þess!“
Áhugaverðar
staðreyndir : Dan fer 4 sinnum á dag í bað.
Hann fékk 11 milljónir íslenskar fyrir HP
og viskusteininn. En svo varð hann frægur og þau
þrjú fengu hvert fyrir sig 30 milljónir fyrir
HP og leyniklefann. Daniel gegnur í drengjaskóla
(engar stelpur) sem er einkaskóli og það kostar
foreldra hans um 300 þúsund íslenskar á
ári.
Tómstundir:
Að hlusta á tónlist, spila Playstation leiki
(aðallega NHL 2003), spila fótbolta og leika aðrar
íþróttir, stunda leikfimi og hlaupa.
Áhugamál:
Tónlist, leiklist, ritlist, íþróttir,
úlfar, ljósmyndun, WWF (náttúruvernd).
Dan getur farið í kollhnís fram af vegg!
Uppáhaldsbækur:
Cirque Du freaks eftir Darren Shan, Milljón holur eftir
Louis Sachar, Harry Potter og fanginn frá Azkaban eftir
J.K Rowling, The light Fantastic, The Colour of Magic eftir Terry
Prachett.
Uppáhaldsmatur:
McDonalds (og það kostar æfingar á eftir!)
Uppáhaldslitir:
Grænn, rauður, gull
Uppáhaldsland: Ameríka
Uppáhalds-hetja: Köngulóarmaðurinn
Finnst
vont: Kaka
Uppáhaldsís: Vanilluís með súkkulaðisósu.
Lönd
sem Daniel hefur heimsótt fyrir utan Bretland: Frakkland,
Ítalía, Spánn, Svíþjóð,
Panama, Bandaríkin, Ástralía.

Leikferill
Dan Radcliffe
Daniel
Radcliffe hafði alltaf langað að vera leikari.
Foreldrar hans voru þó ekki hrifnir af þeirri
hugmynd. Margir hvöttu hann til að láta drauminn
rætast og reyna fyrir sér í leikprufu
fyrir sjónvarpsmyndina Oliver Twist sem gera átti
eftir skáldsögu Charles Dickens árið
1999. En foreldrar hans voru á móti því.
Loks
gafst honum tækifæri til að reyna sig í
hlutverks hins unga David Copperfield í samnefndri
kvikmynd eftir annarri frægri skáldsögu
Charles Dickens (BBC 1999) - og foreldrar hans létu
nú undan.
Fimm
sinnum þurfti Daniel að koma í leikprufu
þar til hann loks fékk hlutverkið, og hlaut
mikið lof fyrir frammistöðu sína. Þetta
var þó bara forskot á frægðina
sem kom í kjölfarið.
Daniel
hlaut, eins og við vitum, aðalhlutverkið í
kvikmyndinni um Harry Potter sem gerð var eftir metsölubók
J.K. Rowling. Þeir sem reyndu, en fengu ekki hlutverkið,
voru m.a. Gabriel Thompson (sem hafði reyndar leikið
hlutverk enn annarrar Dickens-hetju, Pip í Glæstum
vonum (1999) og Liam Aiken sem hafði leikið annað
aðalhlutverkið í Step mom, kvikmynd sem Chris
Columbus leikstýrði árið 1998.
Nú
hefur Daniel leikið í þremur fyrstu myndumum
og heldur vonandi áfram í Harry Potter myndunum
eins lengi og mögulegt er.

ÆVIÁGRIP
DAN RADCLIFFE
Daniel
Radcliffe fæddist mánudaginn 31. júlí
1989 í Fulham í vesturhluta London, Englandi.
Hann
er einkabarn hjónanna Marciu Gresham og Alan Radcliffe.
Þegar hann var 5 ára ákvað Daníel
að hann vildi verða leikari en foreldrar hans voru ekki
hrifnir af hugmyndinni.Það var ekki fyrr en árið
1999 sem Danny (hann vill láta kalla sig Danny) fékk
fyrsta hlutverkið sitt í sjónvarpsmynd hjá
BBC.
En
stóra hlutverkið kom upp í hendur hans kvöld
eitt þegar hann var á leiksýningu ásamt
foreldrum sínum, þá var hann kynntur fyrir
framleiðanda og handritshöfundi myndarinnar (David
Heyman and Steven Kloves).
Eftir
þrjú viðtöl og nokkrar prufutökur hringdi
David til að segja Daníel að hann fengi aðalhlutverkið
í myndinni. Pabbi hans kom upp á efri hæðina
til að segja stráknum fréttirnar og hann fór
að gráta af hamingju!Önnur hlutverk: Hinn ungi
David Copperfield í samnefndri sjónvarpskvikmynd
BBC og Mark Pendel í Klæðskeranum frá
Panama.
Daníel
segir að ef hann skemmti sér eins vel við gerð
seinni myndanna eins og þessarar muni hann leika í
eins mörgum og honum býðst en eins og stendur
hefur hann aðeins skrifað undir samning um fyrstu tvær
myndirnar.
UM
MYND #2:
Daníel
Radcliffe segir að það hafi verið frábært
að fá að aka bíl þótt hann
sé aðeins tólf ára.
Það
var geggjað," segir hann. Við sátum
í Ford Anglia bílnum og okkur leið eins og
fullorðnum gæjum. Það var eins og við
værum að keyra alvöru bíl og það
var hrikalega 'kúl'."
En
er hann búinn að taka þátt í
Quidditch-senum, þar sem hann fæst við Draco
Malfoy á Nimbus 2000 prikinu sínu?
Já,
reyndar - og hann var á hraðskreiðara priki.
En ég er samt hrifnari af mínu," viðurkennir
Daníel.
Þetta
tók ég af Newsround
frá BBC.
Anna
Heiða Pálsdóttir þýddi. Ykkur er
velkomið að taka þennan texta og setja á
ykkar síður en vinsamlega takið fram hver þýddi.