Samband
við Daniel Radcliffe?
Aðdáendur
Daniel Radcliffe hafa skrifað mér fullt af bréfum
og beðið um póstfang, tölvupóst eða
MSN-addressu hans. Ég hef verið að leita en ekki
fundið neitt MSN. Alla vega, ef þið viljið skrifa
honum póst (og ég veit að margir hafa fengið
svar), skrifið á heimilisfang hans hjá umboðsmanni
eða stúdíói:
Daniel
Radcliffe
ARG Talent
4 Great Portland Street
London W1W 8PA
UNITED KINGDOM
Daniel
Radcliffe
LEAVESDEN STUDIOS
PO Box 3000
Leavesden, Herts, WD25 7LT
UNITED KINGDOM

Svo
eru alls konar kjaftasögur um réttan tölvupóst
hjá honum, sem eru næstum allar rangar. Ég
ætla samt að tína saman það sem ég
hef fundið:
1.
Spjallsíða. Hér er spjallsíða, EZ-Board,
þar sem ein manneskja kallar sig "Daniel". Ég
hef engar heimildir fyrir því að þetta
sé hann en þú getur kíkt þangað.
2.
Það er sérstök síða á
MSN fyrir Harry Potter stjörnur. Smelltu hér.
3.
Opinber aðdáendasíða Dans er www.danradcliffe.com.
Aðstandendur síðunnar benda á ofangreind
póstföng og bæta við:
-
Ef þú vilt fá svar við bréfinu
þínu, vertu viss um að skrifa nafn þitt
og heimilisfang, SKÝRT, á ensku (slepptu þ-um
og ð-um og svoleiðis í nafninu þínu
og heimilisfangi og settu TH eða D í staðinn).
- Þeir
sem fá svar, fá yfirleitt mynd af Daniel (með
fjölprentaðri eiginhandaráritun) og fréttabréf.
Vinsamlegast athugið að Dan hefur óskaplega mikið
að gera, þannig að hann getur ekki svarað
hverjum og einum, heldur sendir út fréttabréf.
Í því eru allar nýjustu upplýsingar
um hvað hann hefur verið að gera. Fréttabréfið
er uppfært á þriggja mánaða fresti
og Dan skrifar það sjálfur, ekki umboðsmaður
hans eða blaðafulltrúi.
- ALLS
EKKI reyna að senda Dan eitthvað matarkyns eða neitt
svoleiðis, og ekki senda dónalegan póst!