J.K.
Rowling hefur sýnt á margan hátt
að hún vilji nota auðævi sín
og aðstöðu til þess að hjálpa
nauðstöddum. Hún skrifaði tvær
litlar bækur, "Fantastic Beasts and where
to Find Them" og Quidditch Through the Ages"
og tók engin höfundarlaun fyrir. Hún
fékk prentara, bókbindara, markaðsfyrirtæki
og bókabúðir í lið með
sér þannig að hver króna sem
kom inn myndi renna til góðgerðastarfsemi
(smellið á viðtöl 2001 hér
til hliðar til að sjá allt um það).
Febrúar
2003 - Rowling enn í góðgerðarstarfsemi
Árlega er haldinn í Bretlandi svonefndur
rauðnefjadagur (Red Nose Day") en þá
eru seld rauð plastnef um allt landið. Andvirðið
rennur allt til góðgerðamála.
Frægir breskir leikarar og framámenn
setja upp rautt nef þennan dag til að sýna
samstöðu með verkefninu. Hér er
J.K. Rowling ásamt gamanleikaranum Lenny Henry
að kynna rauðnefjadaginn í Skotlandi.

Hér
er önnur saga um góðvild Rowling:
Sagan
af Catie
Það er gullfalleg saga á Newsday.com
um samband Rowling við litla, bandaríska
stúlku, Catie, sem var illa haldin af krabbameini.
Þegar Catie var 6 ára uppgötvaðist
krabbamein í nýrum hennar sem dreifðist
fljótt til annarra hluta líkamans. Nýrun
voru fjarlægð, líka stór hluti
af lifrinni, lungunum og öðrum líffærum.
Catie
var í 18 mánuði á Ronald
MacDonald í New York (sem er gististaður
fyrir krabbameinssjúk börn sem MacDonalds-keðjan
setti á stofn) ásamt móður
sinni sem las allar Harry Potter bækurnar fyrir
hana. Hún varð að ganga í gegnum
erfiðar geisla- og lyfjameðferðir, missti
hárið og þjáðist mikið.
Mæðgurnar
voru að klára þriðju bókina
þegar læknar sögðu þeim
að Catie væri að tapa baráttunni
við krabbameinið. Catie átti sér
þá ósk heitasta að mamma hennar
læsi fjórðu bókina en það
var ekki hægt vegna þess að hún
var ekki væntanleg næstu mánuðina
og Catie átti ekki það langt eftir.
Vinur
vinar hennar sendi útgefanda HP á Englandi
tölvupóst og sagði sögu Catie
litlu. Bráðlega kom svar frá Rowling
í tölvupósti: Kæra
Catie. Ég er að vinna hörðum höndum
að fjórðu bókinni." Og
Rowling sagði henni ýmislegt um það
sem hún var að skrifa.
Rowling
sendi Catie fallega gjöf á Valentínusardaginn
og skrifaðist reglulega á við hana.
Á afmæli Catie í mars bárust
enn fleiri gjafir og heillaóskir frá
Rowling. Stuttu seinna var Catie orðin fárveik
og ljóst að það væri dagaspursmál
um hvenær hún skipti um dvalarstað.
Móðir hennar skrifaði Rowling tölvupóst
og sagði henni hvernig málin stæðu.
Rowling
hringdi til þeirra og á meðan Catie
lá í sófanum í stofunni
heima hjá sér las Rowling fyrir hana
kafla úr fjórðu bókinni sem
enn var óútkomin. Rowling hringdi þrisvar
eða fjórum sinnum í viðbót
til að lesa fyrir hana úr bókinni
en brátt var stelpan orðin svo veik að
hún gat ekki lengur tekið á móti
símtölum.
Catie
Hoch
lést 18. maí árið 2000, 9
ára að aldri. Þremur dögum síðar
skrifaði Rowling foreldrum hennar ákaflega
fallegt samúðarbréf. Eftir það
hefur hún skrifað þeim annað
slagið.
Foreldrarnir
settu á stofn hjálparsjóð
sem styrkir gististaði fyrir krabbameinssjúk
börn. Nýverið barst sjóðnum
stórt framlag frá Glasgow, Skotlandi,
næstum 10 milljónir ísl. krónur.
Það kom frá J. K. Rowling. Þá
ákvað móðirin að segja sögu
Catie. Sjóðurinn er með vefsíðu
hér.