|
MÁLAFERLI
o.fl.
vegna Harry Potter |
|
Æskuvinurinn
Potter stendur með Rowling Harry
Potter bækur bannaðar í breskum grunnskóla Nýjustu
fréttir af málinu MÁLSÓKN Á HENDUR J. K. ROWLING Allra heitasta fréttin af Harry Potter-æðinu þessa dagana er málsókn bandaríska rithöfundarins Nancy Stouffer. Nancy Stouffer segist hafa skrifað bók árið 1984 sem heitir The Legend of Rah and Muggles en í henni er persóna sem heitir Larry Potter. Nancy segist eiga einkarétt á hugtakinu Muggles (sem varð að Muggar í íslensku þýðingunni). Í bók Nancyar eru Muggarnir lítið fólk sem hugsar um tvo munaðarlausa drengi sem galdra heimaland sitt - þannig að það breytist í dásamlegan stað. Í bókinni er bæði Larry Potter og Lilly Potter, en í Harry Potter og viskusteinninum heitir móðir Harry Potter einmitt Lily Potter. Jafnframt eru í bók Nancyar persónur sem kallast Keepers of the Gardens, en Rowling kallar Hagrid á frummálinu Keeper of the Keys. Nancy lagði málið fyrir rétt þann 6. mars og höfðar það gegn Rowling, Scholastic (sem gefur Harry Potter ut í Bandaríkjunum) og Time Warner Entertainment, sem hyggst framleiða kvikmyndina. Einnig stefnir hún Mattel og Hasbro, sem hafa fengið leyfi til að framleiða Harry Potter leikföng. Scholastic, Rowling og Time Warner höfðuðu mál í nóvember í New York, þar sem þau fara fram á að dómarinn kveði svo á að Harry Potter bækurnar brjóti ekki gegn einkaleyfi Nancy Stouffer. Margir telja að Nancy Stouffer sjái sér góðan leik á borði, þar sem Harry Potter bækurnar hafa selst í meira en 20 milljónum eintaka, og Rowling hafi því digrar kistur fjár. Sú tilraun Nancyar að reyna að semja við Rowling og útgáfufyrirtækið utan réttarsalanna þykir sanna þá tilgátu. Bók Nancyar var gefin út 1984 og seldist aðallega í stórmörkuðum á austurströnd Bandaríkjanna. Nancy telur að Rowling hafi rekist á bókina þegar hún var sem skiptinemi í Bandaríkjunum 1987 og 1988. Nú hefur komið í ljós að hugtakið Muggles hefur verið notað í mörgum bókum síðustu áratugina, og talið er að Nancy eigi litlar líkur á því að vinna þetta mál. Nancy Stouffer segist hafa skrifað yfir hundrað bækur, en félagar mínir í barnabókmenntum í Bandaríkjunum segjast ekki geta fundið eina einustu bók á skrá eftir hana! Það versta er að mörg börn misskilja þessi málaferli, og 7 ára nemendur hjá einni vinkonu minni í Bandaríkjunum höfðu misskilið fréttina. Eitt þeirra sagði: Hvernig getur Rowling komið fram og undirritað bækur sem hún hefur ekki einu sinni skrifað sjálf? Það er öruggt að Rowling skrifaði Harry Potter bækurnar, og gerði það betur en nokkur annar hefði getað gert, meira að segja Nancy Stouffer. Æskuvinurinn Potter stendur með Rowling Þýtt af AHP, http://www.bookmagazine.com/mar2000/potter.shtml (18/03/00) Æskuvinur
Joanne Rowling, Ian Potter, segist muna eftir því þegar þau fóru í þykjustuleik"
í kringum 1975, en hann kom með þessa yfirlýsingu eftir að hann frétti
af málaferslum bandaríska rithöfundarins Nancy Stouffer - sem heldur því
fram að Rowling hafi stolið hugmyndum úr bók hennar frá 1984.
Ian Potter segir að það hafi farið í taugarnar á honum að heyra að nokkur efist um að Joanne Rowling hafi sjálf fundið upp á persónum í Harry Potter bókunum. Hann rifjar það upp þegar hann og Vikki systir hans léku sér við Joanne og litlu systur hennar, Di, á árunum 1973-74 í Winterbourne, rétt hjá Bristol á sunnanverðu Englandi. Hann sagði að þau hafi oft spunnið upp sögur, en það skemmtilegasta sem Potter- og Rowling-krakkarnir hafi gert var að klæðast alls konar búningum. Og það var yfirleitt Joanne sem fékk hugmyndirnar, segir hann. Hún sagði þá oft: Eigum við að leika galdranornir og galdramenn? Potter rifjar þetta upp í því tilefni að Nancy Stouffer frá Camp Hill í Pennsylvaníu, Bandaríkjunum, hefur nýverið höfðað mál gegn Joanne Rowling, þar sem hún heldur því fram að Rowling hafi fengið hugmyndina að Harry Potter frá söguhetju í bók Nancyar. Talsmaður útgáfufyrirtækisins Scholastic, sem gefur Harry Potter út í Bandaríkjunum, segir að málsókn Nancyar Stouffer sé á engu byggð. Nú hafa þrjár fyrstu bækur J. K. Rowling um Harry Potter selst í næstum 20 milljónum eintaka í Bandaríkjunum. Fjórða bókin er væntanleg í haust. Joanne Rowling, sem nú er 34 ára, sagði í viðtali fyrir ári síðan að hún hafi haft gaman af því þegar hún var lítil að leika við Potter-systkinin, og að hún hafi verið hrifin af ættarnafninu. Ian Potter segir að hann hafi verið mjög ánægður með það, og var stoltur af því að hann og systir hans hafi veitt henni hugmyndina, þó svo að það hafi aðeins verið nafnið. Ian Potter er 33 ára og á tvö börn, átta ára og fjögurra ára, en hann hefur lesið Harry Potter bækurnar fyrir þau. Síðan Joanne Rowling flutti frá Winterbourne hefur sambandið slitnað, en hann segist gjarnan vildu hitta hana aftur og spjalla við hana. Nancy Stouffer, sem er rithöfundur og kennari, ásakar Rowling einnig fyrir það að stela nafninu Muggles (sem varð að Muggar í íslensku þýðingunni). Hugtakið hefur samt allt aðra merkingu í bók Nancyar en hjá Rowling. Í bókum Nancyar eru Muggar bláleitt, pínulítið fólk sem hefur tekið að sér tvo munaðarlausa drengi. Muggarnir hjá Rowling er fólk sem hefur enga galdrahæfileika. Nú hefur komið í ljós að orðið muggle á sér ævalanga sögu, sem má rekja meira en 300 ár aftur í tímann. Á átjándu öld merkti orðið eirðarleysi. Í kringum 1920 var það slanguryrði fyrir marijuana. Það var líka notað yfir persónu í bókinni The Minnipins eftir Caroll Kendall, sem kom út árið 1959. Rowling útskýrir orðið þannig: Orðið sem ég valdi yfir fólk sem er ekki galdrafólk, Muggle er upprunnið frá gamla enska orðinu mug sem þýðir einhver sem er auðvelt að gabba. Ég breytti því í Muggles því að það er liprara að segja það. Góðum galdramönnum þykir vænt um Muggana og eru góðir við þá. Nancy Stouffer sagði í viðtali við AP fréttastofuna á fimmtudag (16. mars): Ég veit að oft gerast hlutir af tilviljun, en ef eitthvað hegðar sér eins og önd og lítur út eins og önd, þá er það önd (orðatiltæki á ensku, þýtt beint). Hún heldur því einnig fram að Lilly Potter og Nevils - sem urðu að Lily Potter og Neville í Harry Potter bókunum - komi líka úr sinni bók. Í nóvember 1999 höfðuðu Joanne Rowling, Time-Warner og Scholastic mál gegn Stouffer fyrir rétti í New York (hitt málið er í Pennsylvaníu). Þau kröfðust þess að rétturinn staðfesti að Rowling væri á engan hátt að brjóta gegn einkarétti Stouffer. Þetta mál var höfðað eftir að Stouffer hafði árangurslaust reynt að semja við þau utan réttarsalarins. Lögmaður Nancy Stouffer, Kevin Casey hjá lögmannastofu Ratner og Prestia segir að þetta mál hefði aldrei orðið svona stórt ef ekki hefði komið til sala kvikmyndaréttar og leikfanga, sem Stouffer heldur fram að hafi skemmt fyrir sölu á hennar Muggles vörum. Casey segir að nýlega hafi Warner höfðað mál til að láta loka fyrir sölu á Netinu á fatnaði með áletruninni Muggles, þar sem sú sala næði til einkaréttar þeirra. Á
síðasta ári benti Neil Gaiman, breskur rithöfundur
sem skrifaði bókina The Sandman á það
að í bókum hans frá 1990, The Books of Magic
hafi aðalsöguhetjan verið dökkhærður drengur
með gleraugu sem uppgötvaði að hann væri galdramaður
og honum fylgi galdraugla. Rowling segir að hún hafi fengið
hugmyndina að Harry Potter bókunum í járnbrautarferð
árið 1990. Hún viðurkennir að vera undir áhrifum
frá öðrum þekktum fantasíum, þ.á.m.
Lísu í Undralandi eftir Lewis Carroll, Mallory Towers eftir
Enid Blyton, J.R.R. Tolkien, T.H. White og jafnvel klassískum ævintýrum
Grimms-bræðra.
Harry
Potter bækur bannaðar í breskum grunnskóla(Þessi
frétt birtist á visir.is
28/03/00 - og birtist hér orðrétt):
Skólastjóri í breskum grunnskóla hefur bannað nemendum sínum að lesa hinar geysivinsælu bækur um Harry Potter, þar sem hún segir þær vera í mótsögn við kenningar Biblíunnar. Bækurnar um Harry Potter hafa heillað bæði unga sem aldna út um allan heim, en þær segja sögu munaðarlausa galdrakarlsins Harry Potter. Skólastjórinn, Carolyn Rookwood, segir eðli sagnanna um Harry ekki eiga samleið með kirkjulegum kenningum skólans, þar sem Biblían sé mjög skýr í afstöðu sinni til galdrakarla, djöfla og púka. Þetta hyski sé allt talið mjög raunverulegt og guðsbörnum er eindregið ráðlagt að eiga ekkert samneyti við aðila af þessu sauðahúsi. Hún segir ákvörðun sína njóta fulls stuðnings foreldra barnanna og skólinn sé studdur af kirkjunni og henni sé einfaldlega ekki stætt á því að leyfa börnunum að lesa skáldskap sem hefur galdrakarla upp í æðra veldi. Svipaðar sögur hafa einnig heyrst af afdrifum Harrys í Bandaríkjunum, en þar hafa foreldrar í einhverjum ríkjum reynt að fá bækurnar bannaðar þar sem þeir sætta sig ekki við hvernig viðhorf til dauðans, illsku og haturs eru sett fram í þeim. Harry Potter á sér þó einnig marga fylgismenn, sem benda m.a. á það að hugmyndarflug barna hafi öldum saman nærst á sögum af galdrakörlum, nornum og álfum og það sé mjög varhugavert, á tímum þar sem lestrarkunnáttu fer stöðugt hrakandi, að banna krökkum að lesa vinsælar bækur. Höfundur
bókanna, J.K. Rowling, lýsti því yfir í fyrra að hún gæti ekki sagt söguna
heiðarlega nema með því að beita þeim meðulum sem hún gerir. Hún stendur
einnig fast við það að bækurnar séu mjög siðferðislegar í lýsingum sínum
á átökum góðs og ills.
Harry
Potter síða Önnu Heiðu HOME |