FRÉTTIR
í janúar 2004
Nýtt
viðtal við Daniel Radcliffe
Winky,
sem rekur frönsku síðuna PotterWorld,
sendi Kristin á The
Leaky Cauldron enska þýðingu á
viðtali við Daniel Radcliffe sem franska blaðið
Total
Star birti nýlega. Ég þýddi
viðtalið svo úr ensku fyrir ykkur. Þú
finnur viðtalið HÉRNA
á íslensku á glænýju Daniel
Radcliffe síðunum.
Og
nú er ég búin að setja upp síðurnar
um Daniel Radcliffe - viðtöl, myndir o.m.fl. Myndasíðurnar
eru ekki allar tilbúnar en þarna er fullt af
viðtölum. SMELLTU HÉR.
Sett inn 31. janúar 2004
Orðrómur
um Eldbikarinn I og II skotinn niður
Sá
orðrómur hefur verið á kreiki að
kvikmyndin Harry Potter og eldbikarinn verði að
vera í tveimur hlutum vegna þess að bókin
sé svo löng. Breksi leikstjórinn segir
í frétt EmpireOnline
að þetta sé vitleysa. Hann kveðst ætla
að gera myndina í einu lagi og segir: „Ég
er handviss um að það sé hægt
að hafa þetta eina mynd. Mér fyndist það
fáránlegt að gera tvær myndir.“
Sett inn 31. janúar 2004
Viltu
leika Cho Chang?
Ég
veit að það eru ekki miklir möguleikar
fyrir þig, en ef þú ert svo heppin að
vera 1) u.þ.b. 16 ára, 2) með útlit
Asíubúa 3) og átt heima á Englandi,
þá er möguleiki fyrir þig að
fá hlutverk Cho Chang (stelpunnar sem Harry Potter
er hrifinn af) í 4. myndinni, skv. frétt CBBC.
Þú verður að uppfylla þessi
3 skilyrði - annars þýðir ekkert að
reyna. Áheyrnarpróf
verða þann 7. febrúar nk. frá 10:00
- 15:00 í Pineapple Studios, 7 Langley Street, London
WC2.
Sett inn 29. janúar 2004
Endir
á málaferlum
Nancy
Stouffer, rithöfundurinn sem höfðaði mál
gegn J.K. Rowling og sagði að hún hefði
stolið frá sér hugmyndum, áfrýjaði
dómi þar sem ásökunum hennar var
hafnað, til æðri dómstóls í
New York. Skv. frétt ELD
staðfesti áfrýjunardómstóllinn
úrskurð dómara í undirrétti.
Nancy
Stouffer kærði Rowling fyrir að hafa notað
hugmynd úr bæklingi sem hún far út
um litlar, hárlausar skepnur sem heita Muggar („Muggles“).
Orðið Muggar er notað um fólk í
HP sem hefur engan galdramátt.
Stouffer
hélt því einnig fram að hún
hefði búið til litabók sem kallaðisr
„Larry Potter and His Best Friend Lily.” Það
er saga um ungan strák, Larry Potter, sem verður
að nota gleraugu. Rétturinn
komst að því að titilsíðu
þeirrar bókar hafði verið breytt. Eina
vísunin til Larry Potter var prentuð í
letri sem fyrirfannst ekki fyrr en 1993. Allur málflutningur
Stouffer reyndist byggður á ósannindum
og rétturinn dæmdi hana í 50.000 punda
sekt.
Fræðslupunktur:
Hvað er áfrýjun? Til eru 2 tegundir dómstóla
á Íslandi, Héraðsréttur
og Hæstiréttur, eða undirréttur
og yfirréttur. Þegar sagt er t.d.: „Jón
var dæmdur í Héraði til að borga
Gunnari milljón" er átt við „undirrétt".
Í undirrétti er yfirleitt 1 dómari.
Ef Jón er óánægður með
dóminn getur hann „áfrýjað“
dómnum til Hæstaréttar. Í Hæstarétti
sitja margir dómarar og dómur hans er úrslitadómur.
Stundum finnst Hæstaréttardómurum ekki
ástæða til að taka fyrir mál
og þá er því VÍSAÐ
FRÁ Hæstarétti. Ef máli Jóns
er vísað frá Hæstarétti,
verður Jón að sætta sig við að
borga Gunnari milljón...
Og
HÆSTARÉTTARLÖGMAÐURINN, pabbi minn,
Páll S. Pálsson, hefði orðið 88
ára í dag ef hann væri á lífi
en hann lést 1983. Til hamingju með daginn, pabbi.
Sett inn 29. janúar 2004
Frumsýningardagar
þriðju kvikmyndarinnar
Nú
hefur fyrirtækið Warner Bros gefið upp frumsýningardaga
fyrir Harry Potter og fangann frá Azkaban í
mörgum löndum. Hér er listi yfir dagana,
staðfestur af Warner Bros (OG VIÐ ERUM FYRST!):
4.
júní 2004 Argentína, Brasilía,
Kanada, Frakkland, Þýzkaland, ÍSLAND,
Ítalía, Rússland, Bretland og Bandaríkin.
10. júní 2004 Ástralía, Tékkland
17. júní 2004 Nýja Sjáland
18. júní 2004 Búlgaría
25. júní 2004 Spánn
26. júní 2004 Japan
15. júlí 2004 Hong Kong
6. ágúst 2004 Noregur
Fleiri
staðir verða auglýstir síðar.
Sett inn 25. jan. 2004 kl. 11:50
Fyrir
aðdáendur leikaranna
Ég
var að rekast á franska síðu með
óhemju safni af myndum sem varða Harry Potter,
leikarana, Rowling, og svoleiðis. Franskan mín
er ekkert voðalega góð! Þið sem
viljið sjá myndir af uppáhalds-leikaranum
ykkar, smellið hér fyrir neðan og svo skoðið
þið síðu 1, 2, 3 o.s.frv.
Ýmsir
leikarar í HP-kvikmyndunum (129 stk.)
Myndasíða
EMMU WATSON á PotterWorld.com:
Alls konar myndir (5 stk.)
Myndir frá HP1 (15 stk.)
Myndir frá
HP2 (87 stk.)
Myndir
frá HP3 og afh. Bafta-verðlauna (67 stk.)
Myndasíða
RUPERT GRINT á PotterWorld.com:
Alls
konar myndir (27 stk.)
Myndir frá HP1 (22 stk.)
Myndir
frá HP2 (29 stk.)
Myndir
frá HP3 og afh. Bafta-verðlauna (9 stk.)
Myndir
frá Kafteini Ofurbrók (6 stk.)
Myndasíða
DANIEL RADCLIFFE á PotterWorld.com:
Alls
konar myndir (45 stk.)
Myndir frá HP1 (52 stk.)
Myndir
frá HP2 (Eitt-hundrað-níutíu-og-fimm
stk.)
Myndir
frá HP3 og afh. Bafta-verðlauna (6 stk.)
Myndir
frá David Copperfield (110 stk.)
Myndasíða
TOM FELTON á PotterWorld.com:
Anna
og konungurinn (85 stk.)
Myndir frá HP1 (1 stk.)
Myndir
frá HP2 (19 stk.)
Myndir
frá HP3 (7 stk.)
Myndir
héðan og þaðan, t.d. við veiðar
(51 stk.)

Myndir
úr þriðju kvikmyndinni
(mikil upplausn)
Michael
Gambon sem Dumbledore
Leikstjórinn
Cuarón, Ron og Harry
Emma,
Daníel og Ron (með rottu)
Þau
þrjú ásamt Siriusi Black í „Shrieking
Shack“
Voðalega
sæt mynd af Daniel með leikstjóranum Cuarón
Daníel,
Emma og fullt af graskerjum
Riddaravagninn,
Daniel í götunni
Sirius
Black í fangelsinu
Draco
Malfoy með fugl úr bréfi (í skólastofu)
Risastór
mynd af Emmu og Daniel (skítug í framan!)
Önnur
risastór mynd af Daniel einum (með japönsku
letri)
Hermione
hótar Draco með priki
McGonagall
talar við Harry - hinir fylgjast með
Riddaravagninn
í dagsljósi
Sett inn 24. jan. 2004 kl. 01:20
Viðtal
við Rupert og Daniel
Farðu á þessa
síðu og sjáðu smá-myndband
með glænýju viðtali við Rupert
Grint og Daniel Radcliffe sem kallast „Foreign Invasion“.
Smelltu bara á andlitsmyndina af Rupert. Þú
verður að hafa Quicktime eða Windows Media í
tölvunni þinni.
Sett inn 24. jan. 2004 kl. 00:45
Þriðja
kvikmyndin sú stysta?
Samkvæmt frétt CTV
verður þriðja myndin 2 1/2 tími að
lengd, og sú stysta af þessum fyrstu þremur.
Á þeirri síðu er að finna ýmsar
fréttir af öðrum væntanlegum framhaldsmyndum.
Sett inn 24. jan. 2004 kl. 00:30
Harry
fær sér nýja kápu
Útgáfufyrirtækið Bloomsbury hefur
tilkynnt að fljótlega muni fyrstu fjórar
bækurnar koma út með nýjum kápum
í „fullorðins-stíl“ í
takt við þá fimmtu. Skv. fréttatilkynningu
frá fyrirtækinu er salan í „fullorðins-útgáfunni“
10% af heildarsölunni. Bækurnar koma út
8. júlí 2004 - á 4 ára útgáfuafmæli
Harry Potter og eldbikarsins. Sjáðu þær
hér:
1.
Harry Potter og viskusteinninn
2.
Harry Potter og leyniklefinn
3.
Harry Potter og fanginn frá Azkaban
4.
Harry Potter og eldbikarinn
Sett inn 24. jan. 2004 kl. 00:10
Annað
viðtal við leikarana - nú á SciFi
Hér er enn eitt viðtalið, sem ég þýddi
lauslega af SciFi-síðunni.
Viðtalið ber yfirskriftina „Potter Stars Talk
Cuaron“ (Potter-stjörnurnar tala um Cuaron, leikstjóra
þriðju myndarinnar.
„Ungu
leikararnir í væntanlegri kvikmynd, Harry potter
og fanganum frá Azkaban, sögðu blaðamanni
SCI FI að það hafi verið öðruvísi,
á skemmtilegan hátt, að vinna með
nýja leikstjóranum,
Alfonso Cuarón, sem tók við starfinu af
Chris Columbus.
„Það
var sérstaklega skemmtilegt fyrir mig, þar
sem ég hef aldrei áður leikið í
kvikmyndum, að vinna með nýjum leikstjóra
og gera hlutina öðruvísi, að læra
nýja tækni, kynnast nýjum hugmyndum
og allt svoleiðis,“ sagði Emma Watson (Hermione)
þegar blaðamaður ræddi við hana
í hléi á upptökum í kvikmyndaverinu
í London. „Ég hafði ferlega gaman
af þessu öllu.“
Mexíkanski
leikstjórinn Cuarón tók við hlutverkinu
af Chris Columbus sem leikstýrði fyrstu tveimur
myndunum. „Maður sér mikinn mun á
þessum tveimur,“ segir Emma. „Ég
er bara búin að sjá nokkra búta
úr þriðju myndinni en Alfonso hefur gert
stórkostlega hluti með því að
breyta um sjónarhorn og nýta sér myndavélarlinsuna
á frumlegan hátt. Og þessi mynd flæðir
meira áfram. Ég veit ekki hvernig er hægt
að útskýra það. Maður sér
bara muninn. Sérstaklega út af leikstjóranum,
hann gefur svo mikið af sér í verkið
og maður sér greinilegan mun. Það er
frábært. Myndin er virkilega góð.“
Emma
Watson og hinar aðalstjörnurnar, Daniel Radcliffe
(Harry) og Rupert Grint (Ron) voru sammála um að
Cuarón leggi áherslu á að nú
séu persónurnar orðnir unglingar. „Chris
var svo ofboðslega orkumikill þegar verið
var að taka upp senur og það hentaði vel
fyrir fyrstu tvær myndirnar,“ sagði Radcliffe.
„Og hann gerði tvær einstakar myndir. Það
er rólegra yfirbragð hjá Alfonso í
þessari þriðju mynd, hann er tilfinningaríkur
og leikstýrir af mikilli einurð.“
Emma Watson bætir við: „Já, og hann
vildi hlusta á hvað okkur fannst um persónurnar
og sagði oft svona, hvernig myndir þú gera
þetta? Og svo sagði hann jafnvel, nei, ég
ætla ekki að segja þér hvernig þú
átt að gera þetta. Það verður
að koma frá þínu hjarta og þinni
reynslu og svoleiðis.“
Kvikmyndin
Harry Potter og fanginn frá Azkaban, sem byggir á
þriðju metsölubókinni frá J.K.
Rowling, verður frumsýnd þann 4. júní.
Sett inn 23. jan. 2004 kl. 23:50
Leikararnir
tjá sig
Vefsíðan The
Leaky Cauldron hefur nýlega birt viðtal við
krakkana þrjá í aðalhlutverkunum
í Harry Potter myndunum, þar sem þau
tjá sig um nýjustu myndina, Harry Potter og
fangann frá Azkaban.
Spurning:
Hvað finnst ykkur vera áhugaverðasta
senan sem þið lékuð í, eða
sú erfiðasta?
Rupert:
Það eru margar góðar senur. Sú
sem ég held mest upp á er þegar ég
er „dreginn“ - hún er rosalega góð,
það er hundur sem dregur mig inn í tré.
Hundurinn dregur mig með sér inn í tréð
og ég þurfti að vera með ól
utan um fótinn og láta draga mig eftir jörðinni,
það var virkilega skemmtilegt. En líka
erfittt, vegna þess að ég gleypti fullt
af grasi í leiðinni.
Daniel:
Og þú þurftir líka að passa
þig á myndatökuvélinni.
Rupert:
Jahá.
Emma:
Hann var alltaf hreint að rekast utan í myndatökuvélina.
Rupert:
Ég sparkaði svo fast í hana að linsan
fór af.
Daniel:
Það er mikilvægt að taka fram að
hann meiddi ekki myndatökumanninn!
Daniel:
Fyrir mig var skemmtilegast þegar ég var í
senu með Gary Oldman, Alan Rickman, Timothy Spall og
David Thewlis, öllum í einu, og ég hugsaði
með mér: „Vá, þetta er frábært!“
Skilurðu, maður er umkringdur stórkostlegum
leikurum, og það getur varla orðið betra.
Erfiðasta senan - ég hugsa að það
sé sama senan, því að ég
varð að leggja mig allan fram, með tilliti til
þess að ég var að leika með Gary
Oldman og David Thewlis og Alan Rickman og Timothy Spall,
svo ég varð að gera mitt allra, allra besta.
Það var líka ferlega erfitt að sýna
þegar sálin var dregin út úr
mér.
Emma:
Ég verð að segja það sama og Daníel
að senan í „Shrieking Shack“ var
hrikalega erfið. Þetta tók svo langan tíma.
Við vorum að þessu í —
Daniel:
Var það ekki heill mánuður?
Emma:
Ef ekki meira. Þetta er svo flókin sena og
það gerist svo margt í henni, og það
var alltaf verið að breyta einhverju, og það
var svo erfitt og tók mikið á mann tilfinningalega.
Ekki svona á væmin hátt, heldur —
Daniel:
Maður verður eitthvað svo tómur eftirá
—
Emma:
Já, einmitt, maður er alveg búinn.
Daniel:
Svo bættist það ofaná að veggirnir
gengu til og það ískraði í þeim,
svo við gátum ekki heyrt hvað hinir voru
að segja ...
Emma:
Þessvegna þurftum við að tala helmingi
hærra.
Sett inn 22. jan. 2004 kl. 23:50
Nýjar
myndir úr Fanganum
Alltaf eru að koma fram fleiri kyrrmyndir úr
þriðju myndinni. Ef þú smellir hér
sérðu flotta mynd af þremenningunum (Harry,
Ron og Hermione, hún er svolítið lengi
að koma upp, mikil upplausn). Þessi mynd fylgdi
grein um HP í LA-Times. Og þessi líka,
sem sýnir Emmu tala við Alfonso Cuaron, leikstjóra
myndarinnar:

Dýrasta
kvikmynd allra tíma?
Breska veftímaritið Sunday
Mail flytur þær fréttir að Harry
Potter og eldbikarinn verði sennilega dýrasta
mynd allra tíma. Þetta hefur blaðamaður
eftir leikstjóranum Mike Newell.
..... Harry
Potter og eldbikarinn, fjórða myndin, mun kosta
um 170 milljónir punda - sem er 5 millj. punda meira
en Hilmir snýr aftur, síðasta myndin í
LOTR þríleiknum.
..... Myndatökur
munu hefjast í apríl. Newell, sem á
að baki geysivinsælar myndir á borð
við Fjögur brúðkaup og jarðarför
og nýju myndina með Juliu Roberts, Bros
Mónu Lísu, segir: „Mér
finnst ég vera einstaklega heppinn. Ég ætla
að gera dýrustu mynd sem hefur nokkurn tíma
verið framleidd.“
..... Newell
neitar því ekki að mikil ábyrgð
fylgi leikstjórn kvikyndar um Harry Potter. Hann
segir: „Það bíða fleiri milljónir
af 10 ára krökkum sem ekki má valda vonbrigðum.
Að leikstýra Harry Potter er eins og að taka
að sér hlutverk forseta Brasilíu. Maður
fær stórt hlutverk í hendur.“
.....
Harry
Potter og eldbikarinn, sem verður frumsýnd árið
2005, mun skarta Daniel Radcliffe í aðalhlutverki
sem galdrastrákurinn Harry og Robbie Coltrane í
hlutverki Hagrid, hálfrisans sem gætir skólalóðarinnar
á Hogwartskóla.
.....
Einn
mesti höfuðverkur Newells hingað til hefur
verið að finna 2,5 m háa franska konu til
að leika konuna sem Hagrid er skotinn í, Maddömu
Maxime.
.....
Hann
segir: „Við erum að finna fólk í
hlutverk eins og stendur. Ég er búinn að
fara til Parísar til að leita að risavöxnum
konum og frönskum skólastelpum.“
.....
DÆMI
UM DÝRUSTU
KVIKMYNDIRNAR HINGAÐ TIL: Hilmir snýr aftur,
2003, kostaði 165 millj. punda og Titanic kostaði
112 millj. punda.
Sett inn 22. jan. 2004 kl. 23:20
Jólin
eru búin - Anna snýr aftur
Jæja, allir. Gleðilegt ár og þakkir
fyrir öll þau gömlu. Afsakið fjarveruna,
ég var veik og svoleiðis. Einhver spurði
í hvaða uppskurð ég fór - það
var við vélindabakflæði (vélinda
liggur frá hálsi niður í mallakút).
En í dag er ákkúrat MÁNUÐUR
síðan ég snerti þessa síðu
svo það er kominn tími til að bretta
upp ermarnar.
Sett inn 20. jan. 2004 kl. 20:30
TIL
AÐ SJÁ FLEIRI ELDRI FRÉTTIR, smelltu
hér.
|