Uppfærsla
3. des.
Þið eruð dugleg að senda inn
álit á 6. bókinni. Nú hefur
Sebebolimus svarað Lilju - og Katta, góðvinur
síðunnar, sendi líka inn sitt álit
þótt hún sé á kafi í
prófum. Fyndið að hvorugt þeirra vissi
af svari hins, þannig að ég set þau
bæði inn í einu. Sjáið hvað
þau hafa að segja hér.
Í gær bættist þriðji kaflinn
við áhugaspuna TINNU um HERRANN SNÝR AFTUR
sem ég er búin að setja á
sérstaka síðu. KITTA
sendi mér ljóðið sitt um Harry Potter
og það er komið inn á aðal-áhugaspuna-síðuna.
Sett inn 3. des. 2003 kl. 23:26
Harry
Potter númer 5 kemur út í Frakklandi
Bonsjúr! Miðvikudagurinn 3. desember
er HP-dagur í Frakklandi. Fimmta bókin kom
á markaðinn fyrr í dag, um hálfu
ári eftir útgáfudaginn á Englandi.
Hún var prentuð í milljón eintökum
að sögn útgefandans, Gallimard
Jeunesse. Svona lítur kápan út
hjá Frökkum:

Sett
inn 3. des. 2003 kl. 23:15
Lucius
Malfoy snýr aftur
Jason Isaacs, sem leikur Lucius Malfoy, pabba Draco,
í Harry Potter og leyniklefanum segir í viðtali
við IMDB
að hann myndi grátbiðja um að fá
að leika í 4. myndinni:
„Þegar
við vorum rétt að ljúka myndatökum
á Leyniklefanum kom Alfonso Cuaron (leikstjóri
3. myndarinnar) til að kynna sig fyrir okkur og ég
tók í höndina á honum og það
var allt og sumt. Myndatökurnar á Fanganum frá
Azkaban komu í kjölfarið. Ég er viss
um að allir skemmtu sér vel. En ég veit
ekki hvað stendur til með Eldbikarinn. Ég
hringdi til að spyrja og mér var sagt: „Fyrirgefðu,
við vitum ekki neitt. Við vorum bara að fá
handritið í hendurnar ...“ Það
eru svona 700 blaðsíður sem þarf að
breyta í tveggja tíma kvikmynd, svo ég
veit ekki hvort Lucius Malfoy fær að vera með
eða ekki. Ef ég væri viss um að það
virkaði að grátbæna þá,
myndi ég fara þangað daglega. En það
færi sennilega bara í taugarnar á þeim.“
Sett inn 3. des. 2003 kl. 22:50
Aukahlutverk
í Eldbikarnum seljast á meira en eina milljón
ISK
Samkvæmt fréttum breska dagblaðsins
The
Daily Record var haldið uppboð til styrktar
góðu málefni (MS eða Multiple Sclerosis
sjúkdómnum) sl. fimmtudagskvöld, þann
28. nóvember. Gestir á uppboðinu, sem
fór fram í Edinborg, greiddu 175 bresk pund
í aðgangseyri, en það samsvarar um
20 þúsund íslenskum krónum. Einn
gestanna greiddi 35.000 pund (næstum fjórar
og hálfa milljón ísl. kr.) fyrir sjaldgæft,
áritað eintak af Fönixreglunni. Eina sambærilega,
leðurinnbundna eintakið af bókinni sem til
er, tilheyrir Rowling sjálfri.
Ýmislegt
annað var í boði. Til dæmis greiddi
einhver 10.000 pund (næstum eina og hálfa milljón
íslenskar) fyrir samstæðu af fjórum
fyrstu bókunum sem Rowling hafði undirritað.
Tvö
aukahlutverk í kvikmyndinni um Harry Potter og eldbikarinn
seldust á 10.000 pund og 9.000 pund, en það
er yfir milljón íslenskar krónur. Tökur
á myndinni hefjast í apríl 2004. Fótbolti
áritaður af David Beckham seldist á 7.000
pund (næstum eina milljón ISK) og fígúra
af húsálfinum DOBBY seldist á 3.500
pund (um hálfa milljón).
Eins
og þið eflaust vitið var móðir
Rowling með MS og lést úr þeim sjúkdómi
aðeins 45 ára að aldri. Rowling mætti
í veisluna í skoska þjóðminjasafninu
ásamt eiginmanni sínum, Neil. Forsvarsmaður
góðgerðasamkomunnar, Mark Hazelwood, sagði:
„Sú fjárhæð sem safnaðist
í kvöld mun hjálpa til við að
láta drauma okkar rætast.“
Vonandi,
segi ég, umsjónarmaður HP-síðunnar,
sem þekkir fólk með MS-sjúkdóminn.
Þetta er taugasjúkdómur sem gerir einstaklinga
smám saman meiri hreyfihamlaða. Því
fé sem safnaðist verður veitt til rannsókna.
Þær rannsóknir gagnast MS-sjúklingum
um allan heim og vonandi verður hægt að finna
lækningu við sjúkdómnum sem fyrst.
Sett inn 2. des. 2003 kl. 00:15
Lokapartí
Fangans frá Azkaban
Hérna um daginn sagði ég frá því
að haldið hafi verið mikið lokapartí
fyrir aðstandendur þriðju myndarinnar. Fulltrúi
vefsíðunnar HP4U.co.uk
fór í veisluna og skrifaði nákvæma
lýsingu daginn eftir. Þetta var víst
skemmtilegt boð:
Það
virðist ekki skipta máli hversu margir aðdáendur
safnast í kringum hann [Daniel Radcliffe], hann gefur
sér alltaf tíma til að gefa eiginhandaráritanir.
Við hittum hann andartak í veislunni og núna
gaf hann sér tíma til að spjalla við
okkur. Mikill stelpuhópur hafði safnast allt
umhverfis hann og hann var að skrifa á fullu
en virtist hamingjusamur í þessu hlutverki
sínu. Við spenntum upp regnhlíf og spjölluðum
við hann smástund. Við spurðum hann nokkurra
spurninga sem ég set í loftið þegar
færi gefst. Þetta var auglýst sem veisla
til að halda upp á að kvikmyndatökum
væri lokið („the end-of-filming party“)
en Daniel og nokkrir aðrir verða fastir í
myndatökum til jóla.
Sett
inn 1. des. 2003 kl. 23:50
Samkeppni
um skjámynd („Wallpaper Competition)“
Vefsíðan Mugglenet,
sem ég vitna svo oft til, er nú búin
að setja af stað samkeppni um bestu Harry Potter
jóla-skjámyndina („Harry Potter wallpaper
with a Christmas theme“). Vefsíðan setur
engar sérstakar reglur um samkeppnina, nema aðstandendur
taka fram að þeir kunna að meta frumkvæði
og eitthvað „öðruvísi“.
Þeir vilja líka taka fram eftirfarandi í
sambandi við stærðina:
1) Vinsamlegast gerið skjámyndina („wallpaper“)
í stærðinni 800x600 og 1024x768.
2) Vegna stærðarinnar á pósthólfi
viðtakenda biðja þeir ykkur vinsamlegast að
senda ekki inn myndir sem eru stærri en 4 megabyte.
Ef skjámyndin þín er „þyngri“
en það, viltu vinsamlegast senda smækkaða
mynd eða tengil á síðu þar sem
hana er að finna í fullri stærð. Viðtakendur
kjósa frekar mynd sem er sett inn í tölvupóst
(„embedded“) en mynd sem er send sem viðhengi.
Sendu
þína hugmynd á þennan
tölvupóst. Lokaskiladagur er 16. desember
en þá munu tillögur 10 þátttakenda
sem komast í úrslit verða settar upp á
vefsíðu Mugglenet þannig að almenningur
geti kosið um þær. Í verðlaun
er árituð ljósmynd af Matthew Lewis (sem
leikur Neville Longbottom í myndunum). Gangi ykkur
vel!
Sett inn 1. des. 2003 kl. 23:11
Gary
Oldman talar um Fangann frá Azkaban SPOILER
(ekki lesa ef þú hefur ekki lesið 5. bókina!)
Tölublað nr. 174 af Empire
Magazine var með stutt viðtal við Gary Oldman
(sem leikur Sirius Black í þriðju myndinni)
og segir m.a.:
„Ég
hef ekki lesið fimmtu bókina en einhver sagði
mér óvart frá því hvernig
bókin endar. Það eru ekki góðar
fréttir, eða hvað?“ Þó
svo að Gary viti að Rowling hafi eitthvað slæmt
í hyggju varðandi persónuna sem hann leikur,
Sirius Black, skemmtir Gary sér vel við myndatökurnar
á þriðju kvikmyndinni um Harry Potter.
„Alfonso er með sérstakar hugmyndir um
hana,“ segir hann. „Ég held að þetta
verði besta myndin hingað til en hú ner sérstök.“
Sett inn 1. des. 2003 kl. 23:22
LEYNIKLEFINN
TILNEFND TIL BAFTA-VERÐLAUNA
Harry Potter og leyniklefinn var tilnefnd sem vinsælasta
kvikmyndin í flokki barnakvikmynda hjá bresku
kvikmyndaakademíunni („British Academy Children's
Film and Television Awards"). Leyniklefinn sló
meira að segja út Turnana tvo í myndaflokknum
um Hringadróttins-sögu, en þúsundir
breskra barna völdu myndina í „Lego/Bafta
Kids' Vote“. Sjáið fréttina um þetta
á BBC
og mynd af Emmu Watson, skælbrosandi.
Sett inn 1. des. 2003 kl. 22:52
HOLD
YER HIPPOGRIFFS
(Stillið ykkur, Hippógriffín)
Ég er búin að fá svo mikið
af áhugaspuna, m.a. viðbót frá
ELLA DI á ÞORPINU
og enn meira frá SEBEBOLIMUS.
Þetta hefur tekið mig nokkra daga, með yfirlestri
o.fl. Það bíða fleiri sögur og
ljóð sem ég set inn næstu daga.
Kærar þakkir, þið öll. Svo koma
meiri fréttir við tækifæri, þegar
höfundarnir fá ritstíflu.
Sett inn 1. des. 2003 kl. 22:44
Nýja
lúkkið
Hin opinbera síða Warner Bros (og sú sem
fyrirtækið vildi helst að væri eina
síðan) hefur fengið nýtt útlit.
Smelltu
hér til að skoða þetta nýja
Quidditch-útlit.
Sett inn 26. nóv. 2003 kl. 21:50
Komin
í þrælavinnu!
Ég held að það ætti bara að
fara að loka mig inni einhvers staðar. Einn aðdáandi
spurði mig hvað hefði orðið af „listanum“
þar sem fólk skráði sig í
íslenska aðdáenda-klúbbinn. Ég
fékk auðvitað *samvisku*
og fór að hugsa um ykkur sem skráðuð
ykkur í klúbbinn og svo er hann bara horfinn.
Af því að ég vil fara upp en ekki
niður þegar ég dey, ákvað ég
að draga upp þennan lista. Púff, hann er
alltof langur! Svo er ég búin að sitja
og færa inn HANDVIRKT á nýja síðu
þá sem höfðu skráð sig,
og raða upp í stafrófsröð og
allt. Þetta er örugglega margra kvölda vinna.
Listinn var 38 blaðsíður og ég er
bara búin með 8.
Þið
getið séð listann eins og hann lítur
út í dag hérna.
Skrifið endilega til hinna á listanum. Ekki skrifa
til mín, takk, ég hef nóg að gera
á næstunni að færa þetta inn.
Og segið nokkur falleg orð út í alheiminn
um gömlu konuna sem nennir að halda þessari
síðu uppi fyrir ykkur. Og þakkið Stöð
2 fyrir að vera með svona lélega dagskrá,
þá hef ég nægan tíma til
að sinna síðunni.
Sett inn 25. nóv. 2003 kl. 23:08
Viðtal
við „Crabbe“
Hin
frábæra fréttasíða The
Leaky Cauldron tók Jamie Waylett tali á
dögunum. Jamie er strákurinn sem leikur Crabbe
í Harry Potter myndunum. Hann á sér
kannski ekki eins stóran aðdáendahóp
og Rupert og Danny - e.t.v. vegna þess að strákurinn
er íturvaxinn (mér finnst hann nú ekkert
síðri fyrir það). En hann er frábær
og þetta segir í viðtalinu:
Þegar
Jamie Waylett kom heim úr skólanum einn daginn
og sagði „Ég ætla að leika í
Harry Potter“ héldu hvorki mamma hans né
fjölskylduvinurinn (nú umboðsmaður),
John Inniss, að hann hefði mikinn möguleika
á hlutverki. En Jamie hafði einu sinni haft betur
í baráttunni við örlögin - og
það svo meistaralega að hinir fullorðnu
hefðu mátt vita á hverju þau áttu
von.
Þegar
Jamie var 9 ára lenti hann undir bíl og var
ekki hugað líf. Læknarnir sögðu
að þótt hann lifði af hefði hann
sennilega hlotið of mikinn heilaskaða til að
geta lifað eðlilegu lífi. Þegar móður
hans var sagt að drengurinn hefði lent í
slysi var henni eingöngu tilkynnt að hann væri
fótbrotinn á báðum fótum.
„Ég
keyrði upp á spítala og hugsaði, sá
fær að heyra það,“ segir hún
og sýnir handahreyfingar eins og hún ætli
að kyrkja einhvern. „Ég ætlaði
að ganga frá honum. Vegna þess að ég
var bara að hugsa um fótbrot. Mér kom
ekki til hugar, þið vitið . . .“ Hún
hristir höfuðið.
Þegar
Teresa Waylett kom á spítalann kom hún
að syni sínum meðvitundarlausum. Jamie var
á gjörgæslu í þrjá
daga og á þeim tíma settu læknarnir
nagla í fótleggi hans en það tíðkast
ekki á Englandi. . .
Lestu
endilega meira af þessu viðtali á ensku
og sjáðu hvernig strákurinn náði
að tala og ganga aftur, ótrúlegt. Og þegar
leitað var eftir leikurum í skólanum hans,
kom hann fyrst til greina sem Dudley Dursley og síðan
var ákveðið að hann fengi hlutverk Crabbe.
Nú er hann svo þekktur um allt Skotland að
hann er stöðvaður á götu og beðið
um eiginhandaráritanir.
Sett inn 25. nóv. 2003 kl. 21:08
Mikið
fjör, svaka partý
Á sunnudagskvöldið (23. nóv.) hélt
fólkið sem stendur að þriðju HP-kvikmyndinni
það sem kallað er „Wrap-up“ partí
til að fagna því að tökum á
myndinni sé lokið. The
Leaky Cauldron segir frá veislunni:
„Það
var kalt og mikil rigning en allir skemmtu sér vel
þrátt fyrir veðrið. Hundruðir gesta,
leikarar, tökulið og fjölskyldur þeirra
voru samankomin til að horfa m.a. á flugeldasýningu
við tónlistarundirleik sem jafnaðist á
við það besta sem Disney-fyrirtækið
gæti boðið upp á.
Dan,
Rupert, Emma, Tom, Jamie, Josh og aðrir leikarar (engir
fullorðnir leikarar) voru mættir á staðinn,
sem og leikstjórinn Alfonso Cuaron og aðrir aðstandendur
myndarinnar. Í risatjaldinu var borið fram heitt
súkkulaði með sykurpúðum (marshmallows
- heyrirðu það, Tinna sykurpúði)
og candyfloss fyrir börnin en fullorðna fólkið
drakk það sem Bretar kalla „mulled wine“
(og við köllum jólaglögg) og bjór.
Einnig var boðið upp á mat: pylsur, hamborgara
og bakaðar kartöflur með ýmsum fyllingum.
Skemmtiatriði voru af ýmsu tagi, t.d. galdrabrögð,
töframenn og mexíkósk hljómsveit
sem spilaði við Riddaravagnana.“
Sett inn 25. nóv. 2003 kl. 20:33
Finnska
útgáfan af Fönixreglunni
Þá eru Finnar búnir að koma út
fimmtu bókinni og þú getur séð
kápumyndina hér
á Mugglenet. HARRY POTTER JA FEENIXIN KULTA,
heitir gripurinn. Óttalega eru allri orðnir nefstórir
þegar þeir koma til Finnlands. Eru þetta
Múmínálfa-áhrif?
Sett inn 25. nóv. 2003 kl. 20:33
Simpsons-brot
Katta fréttamaður sendi mér fréttaskot:
Mugglenet er búið að setja upp smá-vídeó-bút
úr sjónvarpsþættinum um Simpsons-fjölskylduna
þar sem J. K. Rowling kemur fyrir sem ein af persónunum.
Smelltu
hér og HÆGRI-smelltu síðan á
Video Clip (og veldu „save target
as...“). Katta mín, gangi þér
vel í prófunum - og þetta gildir fyrir
ykkur öll hin líka.
Sett inn 25. nóv. 2003 kl. 20:30
Rowling í Simpsons
Meiri
spádómar og meiri áhugaspuni
Það er líf í ykkur og margir góðir
rithöfundar og spámenn leynast í ykkar
röðum. Ég fékk annan kafla af „Herranum“
frá TINNU í gær og í dag fékk
ég viðbót við „Litla þorpið“
frá Alla Di (sem sendi fyrsta hlutann i nn í
gær. Þetta er komið inn á
Fan-fiction (áhugaspuna) síðuna. Rowling
getur bara farið að hætta þessu pári
... þið takið við. Spámaðurinn
Kitta sendi mér sitt álit á því
sem gerist í sjöttu bókinni. Takk, Kitta!
Sjáið kenningar hennar hér.
Sett inn 25. nóv. 2003 kl. 20:30
Svo
bregðast krosstré sem önnur tré
Fyrrum eiginmaður Rowling reyndi hérna um árið
að stórgræða á því
að selja kjaftasögur um hana til breskra slúðurblaða
(og það tókst). Nú virðist sem
pabbi hennar ætli sér líka sneið
af kökunni. Skv. fréttum Contactmusic.com
ætlar sá gamli að næla sér
í nokkrar krónur með því
að notfæra sér ættartengslin. PETER
ROWLING ætlar að setja sjö bækur af
fyrstu útgáfunni, allar með persónulegum
eiginhandaráritunum frá dóttur hans,
á uppboð. Ein af þeim er árituð
á hjartnæman hátt til hans frá
J.K.
Í
þessari grein á Contactmusic segir að áritun
sem sést í upphafi Eldbikarsins sýni
að persónan RON WEASLEY sé byggð á
gömlum fjölskylduvini sem heitir
RONALD RIDLEY - en J.K. hefur viljað haldað því
leyndarmáli innan fjölskyldunnar.
Þar
stendur: „Elsku pabbi minn. Ef ég hefði
kallað hann Ronald (Weasley) Ridley, hefðu menn
farið að reyna að finna vesalings manninn .
. . en þess vegna kallaði ég hann Ron,
auðvitað!“
Uppboðið
mun fara fram í SOTHEBY'S í New York þann
10. desember nk.
Ætli Joanne hafi gleymt að færa pabba sínum
jólagjafir um síðustu jól? Mikið
hrikalega myndi það særa mig ef einhver
í minni fjölskyldu reyndi að hagnast á
því að selja bók með persónulegri
áritun frá mér ...
Sett
inn 24. nóv. 2003 kl. 22:30
Slæm
þýðing
Ég stend við það statt og stöðugt
að þýðingin á HP-5 sé
ekki góð. Sjáið þetta dæmi
sem Katta vinkona mín benti mér á:
SCHOLASTIC ÚTGÁFAN, bls. 382:
Hagrid segir: „Hold yer Hippogriffs“ við
Hermione. Þetta er rosalega fyndin útsetning
á enska máltækinu „Hold your horses,“
sem þýðir beint: „Bíddu nú
aðeins við.“ Eða í yfirfærðri
þýðingu: „Haltu aftur af hestunum
þínum.“ Í staðinn fyrir „horses“
hefur Rowling sett Hippogriffs! Sniðugt, já,
í anda hennar, með góðum húmor.
ÍSLENSKA ÚTGÁFAN, bls. 373:
Hagrid segir: „Stilltu þig, Hippógriffín,“
við Hermione. Æ, Æ, æ, æ ,æ.
Hann myndi aldrei kalla hana Hippógriffín.
Hún á að halda aftur af hestunum (Hippógriffínunum)
sínum. HÚN ER EKKERT HIPPÓGRIFFÍN
og hananú! Hún á að hafa taumhald
á Hippógriffínunum, eða þannig
sko.
Fleiri ábendingar þegnar, og takk, þú
skarpskyggna Katta.
Sett inn 24. nóv. 2003 kl. 21:30
Viðtal
við Alan Rickman
Í nýju viðtali á Handbag.com
talar Alan Rickman m.a. um reynslu sína í
hlutverki Snape í Harry Potter kvikmyndunum. Þar
segir til dæmis:
„Hlutverk
Snape prófessors virtist eins og sniðið fyrir
þig . . . það var eitthvað við það
sem virtist eins og þú værir bæði
að njóta þín og samt eins og klemmdur.
Fannstu fyrir þeirri tilfinningu?“
„Þetta
er góð lýsing á tilfinningunni,
satt að segja. Vegna þess að svona er persóna
Snapes. Hann virðist rólegur og yfirvegaður
persónuleiki. Vandamálið er að það
er svo margt sem við vitum ekki vegna þess að
J.K. Rowling hefur ekki látið það uppi.
Ég veit svolítið um það sem
þið vitið ekki og ég ætla ekki
að segja neitt . . . “
Sett inn 23. nóv. 2003 kl. 21:05
Enn
meiri upplausn
Skv. frétt The Leaky Cauldron er nú hægt
að sjá kyrrmyndir úr HP-3 í enn
meiri upplausn. Hér hótar
Hermione Draco og hér er nærmynd af hinum
gullfallega Danny
Radcliffe sem Harry. Hér er mynd af
Daníel, Stan og strætisvagninum.
Sett inn 23. nóv. 2003 kl. 21:00
STAFSETNINGAR-
OG MÁLFRÆÐIVILLUR
Eins og þið vitið flest skrifaði ég
ritdóm um HP-5 í Moggann á þriðjudaginn.
Ég fékk símtal í gærkvöldi
þar sem viðmælandi minn sagði að
það væri vitleysa að bókin væri
illa prófarkalesin. ÞIÐ SEM HAFIÐ VERIÐ
AÐ ÓSKAPAST YFIR VILLUM, sendið
mér endilega ábendingar, með blaðsíðutali,
svo ég geti bara sett þær hér
inn. Líka villur í þýðingunni,
takk fyrir.
Sett inn 23. nóv. 2003 kl. 14:40
FAN-FICTION
OG FLEIRA
Allur dagurinn í gær OG Í DAG, sunnudag
hafa farið í að uppfæra. Ég
sem ætlaði að taka til í húsinu
hjá mér. Ég fór í gegnum
hrúgur af tölvupóstum til að bæta
inn myndum, afmælisdögum og fleiru. Þetta
eru aðal-uppfærslurnar.
1)
Nú er ég búin að fá fyrsta
HP-Fan-Fiction bréfið og setti söguna inn
á Netið. Farðu á Fan-Fiction-síðuna
til að skoða kaflann sem Tinna sendi.
2)
Ég bætti inn enn fleiri ljósmyndum af
fastagestum (Hauki Heiðar, Klöru, Fluffzter, Guðnýju
o.fl.). Farðu á Fastagesta-síðuna
til að sjá allt liðið.
3)
Það eru komnir inn fleiri afmælisdagar í
afmælisdagabókina.
Munið að athuga annað slagið og senda afmælisbarninu
kveðju.
4)
Í gær lagaði ég listaverkasíðuna
en þar eru góðar FAN-ART teikningar.
5)
Ég er stöðugt að uppfæra tenglasíðurnar,
bæði á íslenskar
síður
og erlendar síður
- núna er fullt af nýjum tenglum..
6)
OG JÁ, ég fékk „spádóm“
frá einum lesanda um hvað muni gerast í
6. bókinni. Farðu á síðuna
um 6. bókina og sjáðu hvað AlliJ
hefur að segja um það sem Lucy spáði.
Fleiri spádómar velkomnir.
Sett
inn 23. nóv. 2003 kl. 14:50
Nóg
af myndum
Þegar Harry Potter og leyniklefinn kom út á
DVD fyrr á þessu ári var haldin rosa
veisla í stúdíóinu í
Leavesden sem er rétt hjá London. Síðan
RADNETCAFE.COM er með fjórar
síður af flottum ljósmyndum af leikurunum
sem voru teknar við þennan atburð.
Sett inn 21. nóv. 2003 kl. 23:40

Ein af myndunum á þessum síðum ...
Rowling
tilnefnd til Spirit of Scotland verðlaunanna
Skv. frétt Scotland
Today hefur Rowling verið tilnefnd til hinna svokölluðu
Spirit of Scotland Top Scot verðlauna. Blaðið
segir að Rowling sé ekki bara ríkari en
Bretadrottning, heldur hafi hún gjörbreytt viðhorfi
milljóna barna til bóklestrar. Rowling lítur
á Skotland sem fósturjörð sem hefur
ættleitt hana. Hún er í fararbroddi
samtaka sem berjast fyrir auknum rannsóknum á
MS-sjúkdómnum – en móðir
hennar dó af völdum hans aðeins 45 ára
að aldri. Ef þú smellir á slóðann
neðst á fréttasíðu Scotland
Today getur þú horft á tilkynningu
um tilnefninguna í Real Player. Kærar þakkir
til Köttu fyrir ábendinguna.
Sett inn 21. nóv. 2003 kl. 23.20
Uppfærsla
föstudaginn 21/11
Þátturinn IDOL var ekkert svo skemmtilegur
í kvöld (endursýningar - en rosalega
er ég ánægð að Jón Sigurðsson
hafi komist áfram, hann er æðislegur) þannig
að ég hef verið að uppfæra. Líttu
á erlendu tenglana,
ég er búin að finna FULLT af nýjum
tenglum og taka út gamla sem voru hættir að
virka. Þetta tók langan tíma. Eins gott
að tékka á þeim annað slagið
- sumir vísa allt í einu inn á lítið
æskilegar síður. Ég bætti
líka inn tenglinum hennar Fluffzter
á íslensku tenglana (þetta er Rupert
Grint aðdáendasíða). Líttu
líka á síðuna
um 6. bókina. Ég setti þar inn kenningar
um hvað muni gerast sem ég tók af Mugglenet
í dag og þýddi. EKKI
LÍTA Á ÞAÐ NEMA ÞÚ
HAFIR LESIÐ 5. BÓKINA. SPOILER! Ó,
ég er svo dugleg, dugleg ... og þið líka,
heimsóknirnar eru að komast í 90.000!
Sett inn 21. nóv. 2003 kl. 21:30 og
uppfært kl. 23:00
Fréttabrot
Það er ekkert sérstakt að frétta.
Tja, Weasley
tvíburarnir heimsóttu sjúkrahús
(fallega gert hjá strákunum), þú
getur séð stærri
mynd af Harry og Ron og Hermione,
Harry og Ron úr Fanganum frá Azkaban,
þú getur séð hvernig Rowling kemur
út í Simpsons-þáttunum (hún
er önnur frá vinstri á myndinni á
þessari
síðu).
Sett inn 20. nóv. 2003
Uppfærsla
20/11
Ég var að gera sérstaka leikjasíðu
og aðra síðu um leiki
í gangi. Ekki halda að ég sitji bara
og horfi á Beðmál í borginni.
Sett inn 20. nóv. 2003
Bömmer
...
Hvernig fær sumt fólk ánægju út
úr lífinu? Hér er ég loksins
komin í stuð til að gera almennilega síðu
og þá skrifar eitthvert fífl í
gestabókina hvort ég sé ekki „of
gömul“ til að vera með svona síðu.
Halló? Eiga krakkar bara að skemmta krökkum?
Eru kvikmyndaframleiðendur ekki „of gamlir“
til að gera fantasíumyndir? En ég bít
bara á jaxlinn og held áfram með síðuna
þangað til ég verð 100 ára,
ha, ha, ha.
Sett inn 20. nóv. 2003
Uppfærsla
17/11
Ég er byrjuð að uppfæra síðurnar
um Tom Felton. Renndu niður
í LEIKARAR og smelltu á nafnið hans ...

„ASK
DAN“ verkefni
Hér fyrir neðan segir
frá því að þið getið
lagt fyrir Dan spurningar. Stjórnandi DanRadcliffe.com
(Jenna) hefur þegar fengið um 2.500 tölvupósta
með spurningum. Hún segir að margar spurningar
séu stórgóðar en aðrar eru
allt of óviðeigandi. Hún minnir á
það að persónulegar spurningar verða
hunsaðar, t.d. hvort Danny eigi kærustu. Hann
og Emma eru t.a.m. BARA VINIR. Munið að skilafrestur
rennur út 26. nóvember.
Sett inn 17. nóv. 2003
Hvað
finnst fólki um „trailerinn“?
Aðdáendur hafa verið duglegir að segja
álit sitt á nýja bútnum úr
kvikmyndinni um Fangann frá Azkaban. DanRadcliffe.com
bendir á nokkra staði þar sem þú
getur séð álit annarra:
- KSAT.com,
Texas, Bandaríkjunum
- The
Age, Ástralíu
- Film
Force - On the Set (á tökustað)
- Fréttir:
Telegraph.co.uk
- IndyStar.com
- Hollywood.com
- BBC
News, Bretlandi
Sett inn 17. nóv. 2003
E!
- tengillinn virkar ekki ...
Þakkir til „aðdáanda“
sem lét mig vita að „E! News“ tengillinnn
hér fyrir neðan virkar ekki. Ég fór
á DanRadcliffe.com
síðuna til að vita hvað væri að.
Það kom í ljós að tvær
milljónir manns komu inn á síðuna
sama dag og þetta kom í loftið og hún
hreinlega sprakk! Vonandi kemst þetta í lag.
Þangað til getið þið farið inn
á síðuna og flett niður fréttagluggann
þar til þið sjáið:
- E! News Live Screen Captures
- Extra! Screen Captures
Smellið á annað hvort (á DanRadcliffe.com)
og þá getið þið séð
kyrrmyndir úr þættinum. Vonandi kemur
sjálfur þátturinn aftur í loftið
fljótlega.
Sett inn 17. nóv. 2003
250
milljón bækur seldar
Harry Potter bækurnar hafa slegið öll
met að sögn bresku fréttastofunnar
BBC og hafa nú þegar selst 250 milljón
eintök. Christopher Little, umboðsmaður Rowling,
staðfesti þetta á mánudaginn og
tilkynnti að Rowling væri byrjuð á
sjöttu bókinni. Hann vildi þó ekki
gefa upp neina dagsetningu fyrir útgáfu hennar.
Bækurnar
hafa verið til sölu í yfir 200 löndum
og hafa verið þýddar á 60
tungumál, meira að segja forngrísku.
Fimmta og nýjasta bókin, Harry Potter og Fönixreglan,
seldist í 1,78 milljón eintökum á
fyrsta degi í Bretlandi. Að sögn Sunday
Times var Rowling með 125 milljónir GBP á
síðasta ári (15 milljarða ISK) en
það þýðir t.d. að hún
hafi fengið 49 þúsund íslenskar
krónur fyrir hvert orð í fimmtu bókinni.
Sett inn 17. nóv. 2003
Verður
bók 6 styttri?
Vefsíðan Wizardnews
segir að frést hafi eftir áreiðanlegum
heimildum að J.K. Rowling hafi sagt opinberlega: „Harry
hlýtur lítils háttar en varanleg meiðsl
í þessari bók“ („Harry sustains
a minimal but lasting injury in this book“). Einnig
er sagt að bókin verði aðeins styttri
en Eldbikarinn og fyrsta uppkastið verði tilbúið
í janúar.
Sett inn 17. nóv. 2003
Kærar
þakkir til Köttu ...
Á morgun (þriðjudaginn 18. nóv.)
mun birtast ritdómur um HP-5 eftir mig í Bókablaði
Moggans.
Mig langar að þakka Köttu
Birgis í Kópavoginum innilega fyrir hjálpina
sem hún veitti mér í gær í
sambandi við ritdóminn. Takk, Katta!
Sett inn 17. nóv. 2003
Hvernig
verða vitsugurnar í HP-3 kvikmyndinni?
Umsjónarmaður vefsíðunnar HP4U
hefur fengið að heimsækja tökustað
HP-3 mörgum sinnum og var nýlega með umfjöllun
um vitsugurnar sem ég þýddi lauslega:
„Svo
margir hafa verið að spyrja okkur um vitsugurnar.
Okkur tókst ekki að sjá neina myndatöku
þar sem þær komu fyrir - en við fengum
að sjá og snerta búningana sem leikararnir
voru í þegar þessar senur voru teknar
upp. Eins og í bókunum eru skepnurnar um 3
metra háar með svarta hettu og búningarnir
voru nákvæmlega eins og þeim hefur verið
lýst.
Við
sáum hins vegar ekki sjálfar vitsugurnar,
en inni í „skepnusafninu“ sáum
við eina hangandi uppi á vegg. Hún var
næstum eins og manneskja efst á búknum
en neðri hlutinn líktist helst krókódíl,
hreistraður, og endar í oddhvössum hala.
Þarna var hendi af vitsugu sem virtist óhugnanlega
raunveruleg.
Við
fengum líka að sjá nokkrar senur úr
seinni hluta myndarinnar, sem ég er viss um að
þið (eins og við) verðið forviða
yfir. Í myndinni fljúga vitsugurnar nefnilega.
Hverjum datt það í hug? Við horfðum
á senuna í Quidditch-leiknum, þar sem
Harry er ekki alveg búinn að ná tökum
á Patronus-álögunum. Þetta var
um 5 mínútna bútur þar sem Harry
er yfir leikvellinum og horfir niður í gegnum
skýin og rigninguna fyrir neðan hann. Honum til
skelfingar sér hann vitsugur í hundraðatali
(í bókinni). En í myndinni elta tugir
af vitsugum hann í gegnum skýin, hátt
fyrir ofan leikvöllinn. Þar sem ég er
mikill aðdáandi J.K. Rowling finnst mér
þessi breyting slæm, það ætti
ekki að bæta við aukahlutum sem eru ekki í
bókinni.“
Þetta
var orðrétt af HP4U, þýðing:
Anna Heiða Pálsdóttir.
Sett inn 16. nóv. 2003
Nýjustu
uppfærslur
Undanfarna daga hef ég verið að laga viðtölin
við J.K. Rowling en ég hef þýtt
um 10 viðtöl. Nú er auðveldara að
finna þau. Ég uppfærði líka
gestabókina og Tagboard, svo og íslensku
tenglana (Tinna, þú ert komin inn).
Sett inn 16. nóv. 2003
Emma
Thompson sem Trelawney
Hér hefur áður verið sagt frá
því að breska leikkonan Emma Thompson leikur
Trelawney. Síðan The Leaky Cauldron er búin
að fá mynd
af Emmu í þessu hlutverki.
Sett inn 16. nóv. 2003
Þetta
verður þú að sjá
Í fyrradag var sérstakur „E! News Live"
þáttur í sjónvarpinu á
Englandi. Einn af aðdáendum HP tók þáttinn
upp á myndband og er búinn að setja hann
á DanRadcliffe.com.
Þetta er frábært, viðtal við
aðalleikarana og allt. Aðstandendur síðunnar
settu þetta þarna fyrir okkur út um allan
heim sem gátu ekki séð þáttinn.
-
Smelltu hér til að sjá „E! News
Live“ í Windows Media Player
-
Smelltu hér til að sjá „E! News
Live“ í Real Media Player
Sett
inn 15. nóv. 2003
Tom
Felton í sjónvarpsþættinum „This
Morning“
Þáttur sem var sýndur í dag fjallaði
m.a. um Tom Felton og hvað hann hefur stækkað
ört undanfarið. Hann er orðinn hærri
en Jason Isaacs og margir hinna leikaranna. Í þættinum
kom líka fram að nú fær Tom fleiri
aðdáendabréf en Daníel, Rupert
og Emma.
Sett inn 15. nóv. 2003
Svolítið
„scary“ Síríus
WarnerBros opinbera HP-síðan er búin að
setja upp sérstaka Fangann-frá-Azkaban
síðu með sniðugum hreyfimyndum af Síríusi
Black. Þú getur skráð hvar þú
hefur séð Síríus. Þess virði
að reyna (mér finnst hann svolítið
hryllilegur!).
Sett inn 15. nóv. 2003
Nýtt,
nýtt, nýjast!
Í dag er merkilegur dagur vegna þess að
þið getið nú séð kynningarmyndband
um Harry Potter og fangann frá Azkaban.
Farið inn á þessa
aðalsíðu og veljið hvað þið
viljið sjá. Athugið að HI-RES þýðir
mikil upplausn og mestu gæði - en það
eru ekki allar tölvur sem ráða við það,
MED-RES milligóð upplausn og LOW-RES lítil
upplausn (fyrir tölvur með lítið minni).
Það eru alls konar valmyndir eftir því
hvort þið eruð með Real Time eða Windows
Media Player eða eitthvað annað í tölvunni
ykkar. Prófið bara allt saman.
Sett inn 13. nóv. 2003
Síða
um 3. myndina
Ég er byrjuð á síðu
um 3. myndina og bæti smám saman við
hana í framtíðinni.
Sett inn 13. nóv. 2003
Dan
Radcliffe svarar spurningum ykkar
DanRadcliffe.co.uk
og DanRadcliffe.com
munu að beiðni fjölskyldu Dannys vera með
sérstakan jólaglaðning fyrir aðdáendur
Dannys. Ert
þú með einhverja spurningu sem þig
hefur dauðlangað að leggja fyrir Daníel
Radcliffe? Þá er þinn tími kominn!
Tekið verður á móti spurningum frá
deginum í dag til miðnættis þann
26. nóvember. Valdar verða 100
bestu spurningarnar og þær verða
sendar til Dan. Spurningarnar og svörin verða sett
inn á báðar síðurnar sem sérstök
jólagjöf frá Dan til aðdáenda
sinna (og ég reyni að þýða efnið
sem jólagjöf til ykkar).
Hafðu
þessar reglur í huga:
1.
Þú verður að senda inn spurninguna
á ensku.
2.
Spurningin verður að vera kurteisleg og viðeigandi.
Allar spurningar sem eru dónalegar eða móðgandi
verða hunsaðar.
3.
Vinsamlegast spyrjið ekki persónulegra spurninga,
t.d. hvort Danny eigi kærustu, hvaða netfang hann
hafi, heimilisfang, símanúmer eða slíkt.
Danny
hlakkar til að sjá spurningarnar - sendu þína
spurningu á þetta
netfang. Sennilega færðu ekki svar við
tölvupóstinum þínum vegna þess
að þúsundir spurninga berast, en allar
spurningar sem koma inn verða skoðaðar og athugaðar.
Mundu að segja nafnið þitt og að þú
sért frá ÍSLANDI. Ég vona að
einhvert ykkar verði valið!
Sett
inn 13. nóv. 2003
Gaman
í Garðabæ
Þennan ágæta fimmtudag byrjaði ég
á því að fara í Garðaskóla
í Garðabæ og spjalla við nokkra nemendur
sem eru á sérstöku 3ja daga Harry Potter
námskeiði. Það var frábært
að tala við þau og ég er yfir mig hrifin
af því hvað sum þeirra eru góð
í forritun og tölvumálum. Takk fyrir
skemmtunina!
Sett inn 13. nóv. 2003
Enn
fleiri myndir
Nokkrar nýjar myndir úr kvikmyndinni HP og
fanginn frá Azkaban. Hér geturðu t.d.
séð:
Plakatið
sem lýsir eftir Síríusi Black.
Dumbledore
að bjóða nýja nemendur velkomna.
Gönguferð
hjá Hogwartskóla.
Höndin
á vitsugu.
Nýjasta
útgáfa af Snape þar sem hann er
að verja Hermione, Rupert og Harry gegn varúlfi
(sem er, eins og lesendur bókarinnar vita, Lupin
professor).
Að
lokum er hér Marge frænka eins og útblásin
blaðra.
Sett inn 11. nóv. 2003
Síríus
Black: tattóveraður
Leikstjórinn Alfonso Cuares lét sér
detta í hug að gera Síríus Black
svolítið "krimmalegan" með því
að tattóvera hann í bak og fyrir. Ef þig
langar að sjá mynd af leikaranum Gary Oldman
með dökkt sítt hár í gerfi
Síríusar, smelltu
hér (hann er lengst t.h.)
Sett
inn 11. nóv. 2003
HP-3
kvikmynd: tvö stykki myndaalbúm
Vefsíða sem kallast DIGICASEY.COM er með
tvö myndaalbúm með myndum af tökum
þriðju kvikmyndarinnar um Harry Potter. Annað
albúmið inniheldur myndir
sem eru teknar á bak við tjöldin við
myndatökurnar. Hitt safnið er með alls
konar myndum, t.d. af Danny Radcliffe, húsum,
plakötum, o.m.fl.
Sett inn 11. nóv. 2003
Fékk
aukahlutverk í myndinni
Strákur sem heitir Harrison, 13 ára, er á
lista hjá umboðsfyrirtæki leikara
og honum bauðst aukahlutverk í Azkaban-myndinni.
Hann fékk lítið að segja en sést
í nokkrum senum. Og hann sagði „halló"
við Dan Radcliffe. Hann segir frá þessari
upplifun á CBBC-vefnum.
Sett inn 5. nóv. 2003
Ertu
búin(n) að lesa fimmtu bókina?
Ef þig langar að vita hversu vel þú
hefur tekið eftir, þá geturðu prófað
þekkingu þína á CBBC
sem er með nokkra spurningalista úr bókinni.
Gangi þér vel!
Sett inn 5. nóv. 2003
Viltu
fá aukahlutverk í næstu mynd?
Ef þig dauðlangar að fá aukahlutverk
í næstu mynd skaltu smella á nýja
síðu sem ég var að setja upp og kallast
„viltu leika?" Þú getur smellt
hér eða bara skoðað dálkinn
vinstra megin og fundið síðuna undir KVIKMYNDIR.
Sett inn 5. nóv. 2003
Skyggnst
á bak við tjöldin
Ertu forvitin að sjá hvað er að gerast
við tökur þriðju myndarinnar, Harry Potter
og fangans frá Azkaban? Síða sem sérhæfir
sig í fréttum af myndinni heitir HPANA
og hefur sett upp hágæða myndir sem teknar
eru á bak við tjöldin. Þú velur
bara senuna sem þú vilt sjá, t.d. Rupert
Grint að ganga í burtu frá hjólhýsinu
sínu. . Og svo geturðu séð enn fleiri
myndir frá tökustað á Dorkgirl.com.
Sjáðu Hagrid
í fullum herklæðum fara inn í nútíma
Benzinn sinn.
Sett inn 4. nóv. 2003
Flott
afmælisgjöf
Á síðu sem kallast Potterish.com geturðu
séð mynd af verkfærasetti fyrir galdrakústa
sem er afmælisjöf
frá Hermione til Harrys í kvikmyndinni
Harry Potter og fanginn frá Azkaban.
Sett inn 4. nóv. 2003
Uppfærð
afmælisdagabók
Þið hafið verið dugleg að senda mér
afmælisdagana ykkar. Ég er að plægja
í gegnum uppsafnaðan tölvupóst og
smám saman setja inn fleiri tengla á tenglasíðuna
og fleiri afmælisdaga í afmælisdagabókina.
Ef þú hefur sent mér tengil eða
afmælisdag, eða mynd af þér, er þetta
allt að koma.
Sett inn 4. nóv. 2003
Hvað
er að gerast við myndatökurnar?
Einn góðvinur Alfonso Cuaron, leikstjóra
þriðju myndarinnar, fór að heimsækja
vin sinn á tökustað í Leavesden,
rétt fyrir utan London. Hann lýsir heimsókn
sinni og því sem fyrir augu bar á fréttasíðunni
MidDay.com.
Honum kom t.d. á óvart að sjá að
aðalbygging stúdíósins er í
stóru skýli sem var notað til að smíða
flugvélar í seinni heimstyrjöldinni.
Svo er til heil síða um þriðju myndina
á Zanzaro.com.
Sett inn 4. nóv. 2003
Harry
Potter ferðalag . . . betra en Mallorca?
Ef þú hefur unnið í lottóinu,
eða átt bara svolítinn pening, er ég
með hugmynd um sumarfrí fyrir þig næsta
sumar. Þú ferð með CHRIS RANKIN (sem
leikur Percy Weasley) á ferðalag um England 1-6.
júní 2004 þegar nýja kvikmyndin,
Harry Potter og fanginn frá Azkaban, verður kynnt.
Lestu meira um þetta á HPFantrips.com.
Þú færð að sitja í Hogwartlestinni
og heimsækja tökustaði. Þetta kostar
litlar 100 þús. fyrir unglinga og svona 130
þús. fyrir fullorðna. Innifalið er
ferðir, gisting, máltíðir og alls
konar skemmtun.
Sett inn 3. nóv. 2003
Aðdáendur
Daníels Radcliffe - súkkulaði handa ykkur!
Vefsíður um Dan Radcliffe voru að skjóta
í loftið æðislegri svart-hvítri
mynd af súkkulaðinu. Smelltu
hérna til að sjá myndina á
DanRadcliffe.com. Hrikalega er hann sætur ...
Sett inn 3. nóv. 2003
Emma
Thompson sem Trelawney prófessor
Blað sem heitir The
Herald-Sun í Ástralíu var
með smá-frétt þann 4. október
um að Emma Thompson hafi fengið hlutverk sem Trelawney
prófessor í þriðju myndinni. Í
greininni eru nokkrir punktar um aðra leikara. Tom
Felton sagði m.a.: „Ég elska bílana
mína. Ég á svartan BMW 316 Estate sem
ég nota sem æfingabíl á meðan
ég er 16 ára og ég er að pæla
í að fá mér sports coupé
með 1,8 l vél sem fyrsta alvöru bílinn."
Blaðamaður talaði líka við Danny
Radcliffe (14 ára) og spurði um uppáhalds-hljómsveitirnar
hans. Hann nefndi: Jane's Addiction, the Libertines, Rage
Against the Machine og the Darkness. Rupert
Grint, (15 ára) sem leikur Ron Weasley,
segist vera mikill pool-spilari - hann er með borð
í búningsherberginu sínu - og er nýfarinn
að leika golf. Emma Watson (Hermione
Granger) er hrifin af dansi: "Á meðan ég
er hérna fer ég í danstíma,
nútíma, street, body popping, break dancing
og allt það. Heima hangi ég bara með
vinum mínum." Núna er Emma 13 ára
og stóránægð með að vera
ekki lengur minnst af þremenningunum í aðalhlutverkunum.
„Eftir öll þessi ár sem ég
hef alltaf verið minnst, þarf Daníel að
viðurkenna að ég er hærri en hann,"
sagði hún. "Það munar hálfum
millimetra," skaut Daníel inn í.
Sett inn 3. nóv. 2003 - tekið
af The
Leaky Cauldron
Forsetafrúin
Laura Bush er hrifin af Potter
Eiginkona George Bush Bandaríkjaforseta, Laura Bush,
sem áður var skólabókavörður,
var á ferð í Moskvu í októberbyrjun
og heimsótti m.a. bókasýningu, skv.
frétt af Ananova.
Hún lýsti því yfir í samtali
við eiginkonu Pútín Rússlandsforseta
að sér fyndist gaman að lesa spennubækur.
Sl. sumar varð hún hins vegar ástfangin
af Harry Potter bókunum. „Ég las bækurnar
heima í Texas en mér fannst ég vera
óralangt í burtu, í öðrum
heimi, falin í huliðsskikkjunni minni, og ég
væri að blanda töfradrykki með Harry,"
sagði hún. „Virkilega góðar
bækur láta manni finnast eins og maður
sé sjálfur inni í sögunni."
Sett inn 3. nóv. 2003 - tekið
af The
Leaky Cauldron
Næsta bók verður umhverfisvæn
Fréttasíðan ANANOVA
segir að JK Rowling fari fram á að næsta
bók hennar verði prentuð á umhverfisvænan
pappír. Bækurnar um Harry Potter hafa þegar
nýtt pappír úr um 6,5 milljón
trjáa. Fleiri höfundar, m.a. Philip Pullman,
hafa sýnt stuðning sinn við hreina náttúru
með því að krefjast þess að
bækur þeirra verði prentaðar á
endurunninn pappír. Kanadíska útgáfan
af Harry Potter og Fönixreglunni var prentuð án
þess að nokkurt tré væri fellt og
bjargaði þar með um 40.000 trjám.
Sett inn 3. nóv. 2003
Næstu
Harry Potter titlar „upplýstir"
Titlarnir á síðustu tveimur Harry Potter
bókunum hafa komið fram skv.
fréttum ANANOVA.
Skv. frétt blaðsins The Sun
gætu titlarnir á bók 6 og 7 verið
Harry Potter And The Mudblood Revolt (Harry Potter og uppreisn
kynblendinganna.. hvernig þýðir Helga "mudblood"????)
og „Harry Potter And The Quest Of The Centaur"
eða Harry Potter og leiðangur kentársins.
Báðir titlarnir hafa verið skráðir
sem vörumerki hjá fyrirtæki sem kallast
Seabottom Productions en það fyrirtæki er
í sama húsi og lögmannastofan Field,
Fisher, Waterhouse. Sú lögmannastofa starfar
fyrir Warner Brothers, sem hafa gert kvikmyndir eftir fyrri
bókunum. Margir HP-aðdáendur hafa lýst
því yfir að þetta hljóti að
vera gert til að gabba fólk vegna þess
að titlar Rowling eru „meira cool.“
Sett inn 3. nóv. 2003
Leikstjóri
Fjögurra brúðkaupa og jarðarfarar
Upplýsingasíðan ANANOVA
segir að breski snillingurinn sem leikstýrði
„Four Weddings and A Funeral“ muni leikstýra
fjórðu HP-myndinni. Hinn 61 árs gamli
Mike Newell verður þá fyrsti Bretinn sem
leikstýrir galdradrengnum þegar byrjað
verður að mynda Harry Potter og eldbikarinn í
apríl 2004. Hann hefur nýlokið við
að leikstýra Brosi Mónu Lísu (Mona
Lisa Smile) með Juliu Roberts í aðalhlutverki.
Newell segist vera spenntur að taka við hlutverkinu.
Bandaríski
leiksjtórinn Chris Columbus leikstýrði
fyrstu tveimur myndunum og mexíkaninn Alfonso Cuaron
leikstýrir myndinni um Harry Potter og fangann frá
Azkaban, sem er að verða tilbúin.
Sett inn 3. nóv. 2003
Hugmynd
fyrir leikfimikennara
Justin vanGelderh, leikfimikennari í skóla
sem kallast Horace W. Porter School, er einn af þeim
leikfimikennurum í Bandaríkjunum sem hafa
gert Quidditch að hluta íþróttakennslunnar.
Í bókunum fer leikurinn fram um 15 m fyrir
ofan jörðu en það er ekki auðvelt
í framkvæmd í leikfimisalnum. Justin
kennir mugga-útgáfuna af þessum leik.
Justin notar 2 húla-hringi sem klemmdir eru á
milli tveggja dýna sitt hvoru megin í leikfimisalnum.
Þriðju-bekkingar með svampkylfur verja markið
en boltarnir geta dunið á því. Justin
segir að þessi leikur hafi aukið áhuga
krakkanna á íþróttum.
Sett inn 3. nóv. 2003- tekið af
vefnum Boston.com.
Lára
fékk fyrstu bókina
Það var skemmtilegt að sjá í
sjónvarpsfréttunum í gær hversu
mikið líf og fjör var í bókabúðum
vegna sölunnar á Harry Potter og Fönixreglunni
- starfsfólkið uppáklætt og bauð
upp á galdradrykki. Skv. Fréttablaðinu
í dag kræktu Lára Þórðardóttir,
Nanna Snorradóttir og Ásta
Þórðardóttir sér
í fyrstu eintökin af HP-5. Vonandi hafið
þið mörg nælt ykkur í bók
og annars er stutt til jóla ...
Sett inn 2. nóv. 2003
Íslandsbanki
„rænir“ efni
Rosalega margir krakkar hafa skrifað mér til
að fá að nota efni af síðunni
og allir þessir aðilar hafa fengið leyfi hjá
mér, enda hefur hver þeirra vísað
til mín og sagt hvaðan efnið sé tekið.
Svo var ég að kíkja á Harry
Potter vef Íslandsbanka og sé þar
orðrétt tekið af síðunni minni
fullt af efni um bækurnar og um Rowling. Minn vefur
er ekki nefndur, og ekki einu sini vísað í
hann í tenglasafninu. Hrikalega varð ég
reið! Ég púa á svona vinnubrögð.
Og þetta er viðskiptabankinn minn. Hmmm ... tekið
til endurskoðunar. Hvað myndu þeir gera ef
ég rændi bankann þeirra? Senda lögguna
á mig. Nú er ég búin að
skrifa þeim skammarbréf, sjáum hvað
þeir segja.
Sett inn 2. nóv. 2003
HP-5
á íslensku kom út í dag
Loksins kom að því! Klukkan 11:11 í
morgun hófu íslenskar bókabúðir
að selja nýjustu Harry Potter bókina á
íslensku. Ég er að leita að fréttum
um söluna og set þær upp við fyrsta
tækifæri. Á vefsíðu forlagsins
Bjarts segir: „Ísland er meðal fyrstu landa
í Evrópu til að gefa út þýðingu
af þessu verki en Danir riðu á vaðið
með danskri þýðingu um miðjan október.
Þýsk útgáfa er væntanlega
snemma í nóvember. Þýðendur
bókarinnar hér á landi eru Helga Haraldsdóttir
og Jón Hallur Stefánsson. Í íslenskri
gerð er bókin 746 síður.“ Góða
skemmtun, allir!
Sett inn 1. nóv. 2003
250
þátttakendur vinna HP-5
Mjólkursamsalan, uppáhaldsfyrirtækið
mitt, er búin að setja í gang Jólaleik
Klóa. Í verðlaun eru m.a. 5 stk. N-GAGE
farleikjatölvur, 250 eintök af Harry Potter og
Fönixreglunni og 250 bíómiðar á
sýningu að eigin vali í Smárabíói.
Á síðu
MS um leikinn segir: Klói er svo sannarlega
kominn í jólaskapið og þeysist um
snjómiklar brattar brekkur í leit að ævintýrum.
Hann langar að gleðja hressa krakka sem drekka Kókómjólk.
Með hverri sexu af Kókómjólk fylgir
miði með lukkunúmeri. Hér að ofan
er reitur þar sem þú slærð
inn lukkunúmerið þitt til að sjá
hvort heppnin er með þér." Þá
er bara að fá sér Kókómjólk
og freista gæfunnar.
Sett inn 1. nóv. 2003
Chris
Rankin svarar spurningum á BBC
Hinn rauðhærði Chris Rankin, sem var að
ljúka leik sínum sem Percy Weasley í
Fanganum frá Azkaban, svaraði í gærkvöldi
spurningum sem sendar voru inn á BBC í gegnum
Netið. BBC er búið að setja spurningarnar
og svörin á vefsíðuna
sína.
Sett inn 1. nóv. 2003 - tekið
af Mugglenet
Stutt
í „trailer“ af Azkaban-myndinni
Kynningarbútur („trailer“) af fjórðu
HP-myndinni verður 1 mínúta og 46 sekúndur.
Hann verður sýndur frá 14. nóvember
með nýju LOONY TUNES kvikmyndinni. Auk þess
bjóða 2 HP-síður, Counting
Down og Rupert
Grint Net upp á lýsingu á
því sem verður í kynningarmyndinni.
Sett inn 1. nóv. 2003 - tekið
af Mugglenet
HOGWARTS-höfuðverkur
Allra áköfustu lesendur Harry Potter-bókanna
gætu fengið það sem kallað hefur
verið Hogwarts-höfuðverkurinn.
Barnalæknirinn Howard J. Bennett upplýsir að
hann hafi greint tilfelli af þessum einstæða
sjúkdómi hjá þremur börnum
sem öll viðurkenndu að hafa lesið Harry
Potter og Fönixregluna í margar klukkustundir.
Sett inn 1. nóv. 2003 - tekið
af Mugglenet
Þrjár
kyrrmyndir úr þriðju kvikmyndinni
Ef þið eruð að bíða spennt
eftir þriðju myndinni getið þið
kíkt á smá-forskot og séð
þrjár kyrrmyndir. Farið á Mugglenet
til að sjá þær.
Sett inn 1. nóv. 2003
Bréf
frá föður Daníels Radcliffe
Síða sem kallast DanRadcliffe.co.uk
hefur staðið sig vel í að flytja heiðarlegar
fréttir af kappanum. Nýlega fékk umsjónarmaður
síðunnar bréf frá föður
Daníels. Ef þú ferð á „update-síðuna“
og flettir niður að 27. október, sérðu
árituðu myndina sem fylgdi með bréfinu.
Best að standa sig vel, kannski fæ ég bréf
frá mömmu Daníels ...
Sett inn 1. nóv. 2003
Daníel
Radcliffe leikur í fjórðu myndinni
Síða
BBC er með stutta frétt um að
Daníel Radcliffe muni pottþétt leika
í Harry Potter og eldbikarnum, mynd nr. 4. Þar
er líka minnst á endurkomu Matthew Lewis.
Sett inn 1. nóv. 2003
Nokkur
forskot á þriðju myndina
Ef þig langar að skyggnast á bak við
tjöldin við myndatöku þriðju myndarinnar,
um Fangann frá Azkaban, farðu á HPANA-síðuna
og smelltu á myndirnar til að sjá þær
betur.
Sett inn 1. nóv. 2003
Ein
voða heppin
Net-tímarit sem heitir The
Times of Malta flytur fréttir af 13 ára
gamalli stelpu, Sarah Harrison, sem vann aukahlutverk í
myndinni um Harry Potter og fangann frá Azkaban.
Sarah tekur þátt í athöfninni þegar
nemendur eru valdir í hús í upphafi
skólaársins í Hogwartskóla.
Hún er upprennandi söngkona, tekur þátt
í Eurovision fyrir yngri þátttakendur,
og er MIKILL Harry Potter aðdáandi.
Sett inn 1. nóv. 2003
|