
Myndin var tekin í bókabúð í
Edinborg rétt eftir miðnætti í
nótt.
Föstud.
20. júní 2003 - Í BIÐRÖÐINNI
Fólk leggur mikið á sig til að
vera FYRST til að næla í nýju
Fönixregluna. Halla, Inga og félagar mættu
á hádegi til að bíða í
HÁLFAN SÓLARHRING í köldu júníveðrinu
eftir nýjustu ævintýrum Harry Potter.
Þau fengu þó pizzu og heita og kalda
drykki til að stytta sér stundir og vöktu
óskipta athygli vegfarenda, innlendra sem erlendra.
Ég fór í dag og spjallaði við
þau sem voru fyrst í röðinni - gaman
að hitta þetta hressa fólk. Ég
tók líka nokkrar myndir. SMELLTU
HÉR TIL AÐ SJÁ ÞÆR!
Til
hamingju með daginn, allir!
Laugard.
21. júní 2003 - OPIÐ EFTIR MIÐNÆTTI
Bókabúðin
Penninn-Eymundsson í Austurstræti mun opna
kl. 00.01 á föstudagskvöldið, það
er EINA MÍNÚTU EFTIR MIÐNÆTTI
til að selja HP5 á ensku. Opið verður
til klukkan 2:00 eða meðan birgðir endast.
Ef ég spái rétt (sem gerist nú
stundum) þá verða birgðir búnar
kl. 00:54. Sjáum til ....
ókabúð
Máls og menningar á Laugavegi 18 verður
opin af þessu tilefni og mun selja fyrsta eintakið
af bókinni þegar ein mínúta
er gengin í eitt, á sömu mínútu
og salan hefst annars staðar í heiminum. Þeir
fyrstu sem beðið hafa lengst í röðinni
fá bókina að gjöf. Allir sem mæta
í sérstökum búningi fá
glaðning og að sjálfsögðu
fá allir galdradrykk. Einnig verður
boðið upp á ýmis skemmtiatriði
á meðan beðið er í röðinni.
Víkingahetjur munu halda uppi lögum og reglu
í röðinni.
Fimmtud.
19. júní 2003 - HULK EÐA HARRY?
Bandaríska
blaðið NEWSDAY
birti í dag frétt sem Charles Enloe, Wil
Cruz and Cynthia Needham skrifuðu um nútíma-baráttu
Davíðs og Golíats. Bæði Harry
Potter og Hulk koma fram eftir langa bið á
laugardaginn og aðdáendur þeirra verða
að velja um hvor sigrar. Aðdáendur raða
sér upp til að fagna græna risanum eða
galdrastráknum. Harry Potter er að koma fram
eftir þriggja ára hlé en Hulk, sem
hefur verið vinsæl myndablaða- og sjónvarpspersóna
í fjóra áratugi, kemur í fyrsta
skipti fram á hvíta tjaldinu.
Fimmtud.
19. júní 2003 - ALLIR Í PARTÍ
Víða um heim verða haldin rosaleg bókapartí
til að fagna nýju Harry Potter bókinni.
Melissa Anelli, hin 23ja ára vefmeistari The
Leaky Cauldron (ein af mínum uppáhalds-fréttasíðum)
er búin að bjóða 12 vinum heim til
sín á Staten Island. Hún sagði
í viðtali við Newsday:
Það sem er sérstakt við Harry
Potter er að sjaldan hefur jafnmikið verið
gert úr einum hlut en það er sama hvað
auglýsingaherferð er mikil, það er
ekki hægt að selja eitthvað sem er ekki
gott. Antonio Peralta, 38 ára byggingaverkamaður,
ætlar að fara með 9 ára dóttur
sinni, Elísabetu, í miðnæturveislu
í bókabúðinni Barnes and Noble.
Hún er brjáluð í þessar
bækur, segir hann. Hún las síðustu
bók á þremur dögum og er búin
að safna vikupeningunum sínum - hún
fær um 500 kall á viku - til að kaupa
nýju bókina.
Miðvikud.
18. júní 2003 - MEIRI FRÉTTIR AF
BÓKARÁNINU
Þjófurinn sýndi fölsuð skilríki
til að komast yfir flutningabílinn með
HP-5 bókunum. En það verður gersamlega
ómögulegt fyrir hann að selja þessar
illa fengnu bækur. Sjá nánar á
þessari
síðu.
Miðvikud.
18. júní 2003 - PASSIÐ YKKUR Á
LÖGBROTUM
Útgefandi HP-bókanna á Englandi hefur
hótað öllum lögsókn sem birta
ólögleg brot úr 5. bókinni.
Passið ykkur að gera það ekki. Mér
finnst gott að uppáhalds-síðan mín,
The
Leaky Cauldron, er búin að taka í
burtu allar krækjur á síður sem
gera þetta, til að forða sér frá
vandræðum. Og eitt frægasta blaðið
á Englandi, Financial
Times, hefur sagt öllum sem er boðið
ólöglegt eintak af bókinni að hringja
í lögregluna (þeir gefa upp sérstakt
símanúmer). Það er nebbla
jafn ólöglegt að kaupa stolinn varning
eða nýta hann eins og að stela honum sjálfur.
Líka á Íslandi.
Miðvikud.
18. júní 2003 - BROT ÚR 5. BÓKINNI
Lilja og Tobba birtu brot úr 5. bókinni
á frábæru
síðunni sinni. Ég þýddi
þetta brot. Smelltu
hér til að lesa það (og smelltu
á 5. BÓK). Þetta er enginn spoiler
(þ.e. segir þér lítið um
hvað gerist og skemmir ekki neitt) - heldur löglegur
biti frá Amazon.
Miðvikud.
18. júní 2003 - ROWLING GRÉT
J.K. Rowling segir í viðtali við BBC
að það hafi fengið mikið á
sig að þurfa að drepa eina af aðalpersónunum
í Fönixreglunni. Hún ræddi við
BBC fréttamanninn Jeremy Paxman og sagðist
hafa grátið þegar þessi persóna
dó. Hún segir: "Ég kom grátandi
inn í eldhús og Neil (eiginmaður hennar)
spurði hvað væri að og ég sagði,
'Æ, ég var að drepa þessa manneskju.'"
Hún bætti við að hún hafi
ekki einu sinni sagt honum hvaða persóna deyr
í nýju Harry Potter bókinni, sem
kemur í verslanir á miðnætti á
föstudaginn. Rowling vill ekki viðurkenna að
hún hafi lent í vandræðum að
skrifa þessa bók hún kveðst aldrei
hafa sett sér einhvern lokaskilafrest.
Sjáið brot úr viðtalinu hérna
(smelltu á neðsta takkann, 2003a).
Viðtalið verður sýnt í heild
á bresku rásinni BBC2 á morgun, fimmtudag
19. júní, kl. 19:30 (18:30 að
íslenskum tíma). Ertu með gervihnattardisk?
Þriðjud.
17. júní 2003 - LOKSINS!
Gleðilegan þjóðhátíðardag,
kæri gestur. Jæja, ég held að það
sé kominn tími til að uppfæra
eftir langt hlé. Annað væri nú
ekki hægt þegar 5. bókin ER AÐ
KOMA. Ég hef bara haft mikið að gera: ég
hef verið á kafi í Alcoa-vinnu. Og svo
var ég að klára þýðinguna
á GALLABUXNAKLÚBBNUM, dásamlegri
bók sem þið verðið að lesa
þegar hún kemur út í haust.
Ég er byrjuð á heimasíðu
gallabuxnaklúbbsins - kíkið endilega
á hana (hún er rétt að byrja).
Og ég er líka búin að hressa
upp á heimasíðu
þríleiksins sem fer að stækka
meira. Ég setti inn nokkrar fréttir í
dag og set svo inn fleiri á næstunni (ég
LOFA!).
Þriðjud.
17. júní 2003 - FLEIRI BÓKUM STOLIÐ
Þið hafið eflaust öll frétt
fimmtu af bókinni sem starfsmaður prentsmiðju
stal um daginn. Í dag kom frétt á
BBC
um að nokkur þúsund bókum hafi
verið stolið. Þetta voru samtals 7.680 bækur
að andvirði um 15 milljónir íslenskra
króna en þeim var stolið kl. 22:30 á
sunnudaginn nálægt verslunarhúsnæði
í Newton-le-Willows, Merseyside (nálægt
Liverpool). Þessi verðmæti farmur var
í flutningabíl sem var stolið og fannst
seinna yfirgefinn og bókarlaus í Salford
nærri Manchester. Bækurnar voru á leiðinni
í ASDA verslanir (sem eru eins konar Bónusbúðir
á Englandi). Maður sem vinnur hjá verslanakeðjunni
segir: Við vorum búin að panta um
hálfa milljón eintaka svo við ættum
ekki að vera í vandræðum. Talsmaður
J.K. Rowling sagði við fréttamann Newsround
Online: Við vonum að enginn skemmi spennuna
fyrir öllum þeim Harry Potter aðdáendum
sem bíða í ofvæni eftir að
lesa bókina. Hin eftirsótta Harry Potter
og Fönixreglan verður til sölu frá
miðnætti á föstudaginn í
bókabúðum um allan heim.
Þriðjud.
17. júní 2003 - ROWLING Í BEINNI
Þið vitið eflaust þegar að J.K.
Rowling ætlar að tala við 4.000 krakka í
Royal Albert Hall í Lundúnum (London) fimmtudaginn
26. júní og atburðurinn verður
sýndur í beinni á Netinu. Harry Potter
aðdáendur í 34 löndum geta fylgst
með hátíðinni. Smelltu á
BT-síðuna
til að undirbúa þig fyrir útsendinguna.
ÞÚ GETUR UNNIÐ MIÐA Á HÁTÍÐINA
- þá er bara að redda sér fari
til Englands fyrir 26. júní.
1) Byrjaðu alla vega á því að
hlaða niður Windows Media Player í tölvuna
þína, þá verðurðu tilbúinn
fyrir útsendinguna.
2) Ég set inn nánari leiðbeiningar um
helgina.
Rowling mun lesa upp úr Harry Potter og Fönixreglunni
og svo svarar hún spurningum sem aðdáendur
hennar víðs vegar um heiminn hafa lagt fyrir
hana. Þetta verður í eina skiptið
sem hún kemur fram opinberlega til að tala
um nýju bókina.

Í þessu húsi mun Rowling hitta 4.000
krakka 26. júní
Þriðjud.
17. júní 2003 - ÖLL MET SLEGIN
Harry Potter og fyrirmæli Fönixins sem kemur
út þann 21. júní, hefur þegar
slegið öll met sem söluhæsta bókin
í forsölu. Aðdáendur eru nú
búnir að bíða í þrjú
ár eftir þessari fimmtu bók í
röðinni. Fyrstu fjórar bækurnar
hafa selst í meira en 200 milljón
eintökum á 55 tungumálum í
200 löndum.
Þriðjud.
17. júní 2003 - RANGUR BÓKARTITILL?
Vefmeistari þessarar síðu (Anna Heiða)
var búinn að sjá fyrir ári síðan
að fimmta bókin ætti að heita Harry
Potter and the Order of the Phoenix. Þetta gæti
þýtt tvennt: Harry Potter og fönixreglan
(eins og frímúrarareglan, til dæmis)
eða Harry Potter og fyrirmæli Fönixins.
Ég valdi fyrri þýðinguna og allir,
meira að segja blöðin, hafa notað þá
þýðingu. Hins vegar getur vel verið
að titillinn sé HARRY POTTER OG FYRIRMÆLI
FÖNIXINS ... það kemur í ljós
eftir að bókin er lesin. Látið mig
vita, þið sem lesið hana!