Um síðuna
Eldri fréttir
Bækurnar
Bók 1
Bók 2
Bók 3
Bók 4
Bók 5
Bók 6
Bók 7
Orð og nöfn
Heimavistir 
Persónur
Galdraþulur
J.K. Rowling
Ævisaga  
Myndasíða
Verðlaun
Góðverk 
BBC þáttur
Grein eftir HJ 
Viðtöl
Ádeilur
Kvikmyndir
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Fyrir kennara
Viltu leika?
Viðtal/Hayman
Frumsýningar
Leikarar
Daniel Radcliffe

Emma Watson

Rupert Grint
Tom Felton
Sean Biggerst.
Aðrir leikarar
Blaðam.fundur
HBO viðtal
Heimilisföng
FAN-klúbbur
„Fan-art“
„Fan-fiction“
Tagboard
Fastagestir
Afmælisdagabók
Bréf frá gestum
Gestabók
Tenglar
Íslenskir
Erlendir
Leikir
Leikir í gangi
Ýmsir leikir
Annað
Tölvupóstur


Eldri fréttir, frá jan. til feb. 2003


Sunnud. 16. febrúar 2003 - NÝR LEIKUR
Warner Bros var að bæta inn nýjum leik á síðuna hjá sér. Smelltu hér til að skoða hús Weasley fjölskyldunnar. Það er erfitt að finna innganginn - en renndu yfir húsið með músinni og smelltu!

Sunnud. 16. febrúar 2003 - ROWLING Á STÖÐ 2 kl. 22:20?
Um daginn var sagt að það yrði VIÐTAL VIÐ ROWLING í þættinum 60 mínútur á Stöð 2 um kvöldið. En við vorum því miður illa svikin. Fylgist með í kvöld og sjáið hvort Stöð 2 standi við sitt og sýni viðtalið. Ég SKORA á stöðina að svíkja ekki þessar þúsundir aðdáenda sem bíða eftir því að stöðin láti verða af orðum sínum.

Sun. 16. febrúar 2003 - KEPPNI um bókarkápu á HP#5
Íslenskir HP-aðdáendur hafa verið duglegir að senda mér teikningar af HP-bókarkápum (smellið á „KLÚBBURINN“ og „LISTAVERK“ til að sjá þær. Í dag setti ég t.d. inn enn eina mynd frá Sindra á Akureyri. Bloomsbury útgáfufyrirtækið sem gefur út Harry Potter bækurnar í Bretlandi er búið að efna til keppni um bestu forsíðuna. Keppendur verða að vera undir 16 ára aldri. Þeir sem lenda í þremur efstu sætunum fá kápuna sína á vefsíðu Bloomsbury og hver þeirra um sig fær poka fullan af alls konar Bloomsbury-dóti tengt barnabókum. Lokaskiladagur er 1. mars 2003. Ég skoðaði reglurnar, það stendur ekkert um að þátttakendur verði að búa á Bretlandseyjum. Ef þig langar að taka þátt, geturðu sent myndina með tölvupósti á þetta netfang eða í pósti til útgáfunnar, sjá nánar á þessari síðu.

Sun. 16. febrúar 2003 - Orðrómur án rökstuðnings
Tvennt hefur heyrst sem er víst ósatt að sögn fréttastofu BBC þann 10. febrúar. Í fyrsta lagi eru margir að segja að búið sé að finna stelpu í hlutverk Cho Chang. Þetta er EKKI rétt skv. áreiðanlegum heimildum. Í öðru lagi hefur frést að Rowling sjáist í hlutverki galdrakonu í DVD-útgáfu Leyniklefans. Þetta er heldur ekki rétt. Sjáið fréttina sem kveður niður orðróminn hérna.

Sun. 16. febrúar 2003 - Rowling enn í góðgerðarstarfsemi
Árlega er haldinn í Bretlandi svonefndur rauðnefjadagur („Red Nose Day") en þá eru seld rauð plastnef um allt landið. Andvirðið rennur allt til góðgerðamála. Frægir breskir leikarar og framámenn setja upp rautt nef þennan dag til að sýna samstöðu með verkefninu. Hér er J.K. Rowling ásamt gamanleikaranum Lenny Henry að kynna rauðnefjadaginn í Skotlandi.

Lau. 15. febrúar 2003 - Fjólublár, 3ja hæða strætó
Skv. frétt af The Sun er búið að útbúa fjólubláan 3ja hæða strætó til að nota í Harry Potter og fangann frá Azkaban sem nú er verið að mynda á Englandi. Harry flýr í strætó galdramálaráðuneytisins eftir að hann rekst á Sirius Black á götu í líki svarts hunds. Þegar Harry kemur um borð í vagninn sér hann marga galdramenn liggja í rúmum á meðan þeir bíða eftir því að koma að réttri stoppistöð. Vagninn fer í gegnum London í einni áhrifamestu senu myndarinnar. En sú sena var talin of hættuleg fyrir Daniel Radcliffe, þannig að áhættuleikari kemur í hans stað. Þú getur séð fjólubláa vagninn hér að utan og innan.

Lau. 15. febrúar 2003 - Daníel á tökustað Azkaban
Þú getur skoðað nokkrar myndir af Daniel Radcliffe á tökustað þriðju myndarinnar, Fangans frá Azkaban. Þetta er á Wireimage sem selur svona myndir, þannig að þú skalt ekki reyna að "downloada" þeim.


Hér er Daniel á tökustað HP#3 (af The Sun)

Lau. 15. febrúar 2003 - FORSKOT á Leyniklefa-DVD
Þann 11. apríl 2003 kemur Leyniklefinn út á DVD í Bandaríkjunum, Bretlandi, Þýskalandi og Íslandi. Við fáum að sjá alls konar áður óbirt efni, t.d. fleiri prakkarastrik Dobby, meiri ævintýri á bílnum fljúgandi, og meiri hrylling um þá Malfoy feðga. Þar verða líka viðtöl við Daniel Radcliffe, Rupert Grint, Emmu Watson og aðra leikara sem tala um gerð myndarinnar, uppáhaldsatriði og margt fleira. Smelltu hér til að skoða hvað er á DVD-diskunum tveimur með Harry Potter og leyniklefanum.. Hérna getið þið séð breiðtjaldsútgáfuna af DVD diskinum - samt ekki öruggt að þetta sé raunverulega eintakið.

Mánud. 3. febrúar 2003 - Orlando Bloom sem Cedric Diggory
Nokkrir sem skrifa í gestabókina hafa verið að pæla í flökkusögum um að Orlando Bloom (Legolas) eigi að leika Cedric Diggory í þriðju myndinni. Mér hefur eingöngu tekist að finna orðróma um þetta, ekkert staðfest, ekkert áreiðanlegt. Þú getur t.d. skrifað nafn þitt á undirskriftalista til Warner Bros um að hann fái hlutverkið. Og svo annan undirskriftalista hérna! En þetta eru bara sögusagnir, mér finnst þetta ótrúlegt.

Sunnud. 2. febrúar 2003 - Nýr Screen Saver á MSN
Ef þú ert orðin leið(ur) á Screen Saver (skjámyndinni) sem þú ert með, nældu þér í eina glænýja á MSN. Þetta er pottþéttur staður til að "downloada" svona hlutum, enginn vírus í kaupbæti. Smelltu hér til að næla í þetta.

Sunnud. 2. febrúar 2003 - Verið róleg
Nokkrir aðdáendur hafa sent mér afmælisdaga, tengla á nýjar vefsíður, og myndir. Ég hef haft lítinn tíma en set þetta inn við fyrsta tækisfæri. Gaman að fá svona! AREK ég er á leiðinni að svara þér, kæri vinur. SANDRA, viltu endilega hafa samband eða reyna að eyða og loka Hotmail-netfanginu þínu, því ég er að fá vírus-sendingar á hverjum degi sem stífla allan netpóstinn minn. Þú getur ekkert að því gert, vinkona, þetta er rosalega skæður vírus (MM32). ALLIR aðrir: Takk fyrir yndisleg bréf, svara þeim bráðum. Ég er komin með nýtt e-mail: harrypotter@isl.is sem ég ætla að nota fyrir Harry Potter póstinn minn.

Sunnud. 2. febrúar 2003 - Michael Gambon besta veðmálið
Enn er erið að pæla í því hvort Michael Gambon hafi verið ráðinn í hlutverk Dumbledores. Hér er ein frétt sem segir það 100% víst - þótt margir telji að Terence Stamp hafi fengið boð um það. Ég fylgist með öllum fréttum og læt ykkur vita.

Sunnud. 2. febrúar 2003 - Forskot á bók númer fimm
The Harry Potter Network, ein af uppáhalds-Harry Potter síðunum mínu,, er með smá-forskot á fimmtu bókina. Ef þú smellir hérna sérðu það. Líttu á gripinn.

28. janúar 2003 - Vala Vals er komin með heimasíðu
Fyrst gerir maður ekkert í viku og svo á hverjum degi. Vala Vals - einn af elstu (hún er samt 13 ára) og bestu fastagestum síðunnar, vinkona Heiðdísar og Magneu, er búin að opna heimasíðu. Heimsækið endilega síðuna hennar og skrifið í gestabókina hennar. Hún er komin inn á tenglasíðuna mína. Til hamingju, Vala!

28. janúar 2003 - LEIKARASÍÐURNAR
Fyrir nokkru setti ég takka inn á aðalsíðuna sem heitir LEIKARARNIR. Í gær setti ég inn upplýsingar um Daniel Radcliffe. Í dag bætti ég við Rupert Grint og næstum allri Emmu . Tom Felton er eftir. Smelltu á LEIKARARNIR. Svo er ég að vinna að þessum persónu-upplýsingum um fleiri leikara (uppáhaldslitur, uppáhalds-þetta og hitt).

27. janúar 2003 - LOKSINS! Viðtöl við Tom Felton
Ég er lengi búin að lofa þessu og stend loksins við það - ég hef sett inn tvö viðtöl við Tom Felton sem ég þýddi. Smelltu á VIÐTÖL og TOM FELTON til að lesa þau.

27. janúar 2003 - Leyniklefinn = Besta fjölskyldumyndin
Harry Potter og Leyniklefinn var valin besta fjölskyldumyndin að dómi breskra kvikmyndagagnrýnenda (Broadcast Film Critics Association). Alfonso Cuaron vann verðlaunin fyrir bestu myndina á erlendu tungumáli, sem heitir "Y Tu Mama Tambien" en hann mun einmitt leikstýra þriðju Harry Potter kvikmyndinni.

27. janúar 2003 - E-pillur með Harry Potter
Allir vita hversu lífshættulegar E-töflur geta verið. Samkvæmt fréttum New York Post þann 22. janúar voru nýlega gerðar upptækar 400.000 töflur með þekktum myndum, m.a. af Harry Potter og Strumpunum. Alþjóðlegur dóphringur er talinn standa á bakvið innflutninginn til Bandaríkjanna frá Hollandi. Pillurnar eru seldar á um 2.000 kr. stykkið og seljendur eru helst að beina sölunni allt niður í 12-13 ára krakka með þessum myndum. The Leaky Cauldron, uppáhaldssíðan mín gaf slóð á mynd á Netinu af sýnishorni þessum töflum. Eins og stjórnandi síðunnar bendir á er ágætt fyrir krakka að sjá þessa töflu til að vara sig á því ef seljendur leyfa þeim að „prófa“ þetta og telja þeim trú um að það sé nammi eða verkjatöflur. Smásnefill af forvitni hefur orðið mörgum að falli: ALDREI PRÓFA.


27. janúar 2003 - Leikaraval í mynd #3
Nú er öruggt að hinn þekkti breski leikari, David Thewlis mun leika hlutverk góðlega prófessorsins, Lupin, í myndinni un Harry Potter og fangann frá Azkaban. Thewlis lék m.a. í fantasíumyndinni Dragonheart. Einig er öruggt að sköllótti gamanleikarinn Jim Tavare mun leika Tom, kráareigandann á the Leaky Cauldron skv. þessari frétt. Þótt margir telji fullöruggt að Gary Oldman muni leika Sirius Black hafa engir samningar verið undirritaðir. Pam Ferris leikur pottþétt Marge frænku.

27. janúar 2003 - Aukin skólasókn vegna aukahlutverka
Krakkar sækjast ákaft eftir aukahlutverkum í næstu Harry Potter mynd. Sumir ganga það langt að skipta um skóla! Skv. frétt CBBC-Newsround hafa gangar dómkirkjunnar í Gloucester verið notaðir til upptöku sem gangar Hogwartskóla. Stundum hefur þurft á krökkum að halda til að þykjast eiga leið um gangana og þá hefur kvikmyndatökuliðið boðið krökkum í King's School sem er næsti skóli við kirkjuna, statistahlutverk í myndinni. Og allt í einu sækja miklu fleiri um skólavist í þessum skóla en nokkru sinni áður!
Sumir nemendanna sem tóku þátt í Leyniklefanum sáust bara í nokkrar sekúndur en það nægði til þess að gera skólafélaga þeirra öfundsjúka. Charlie, sem er 15 ára, segir: „Ég sást bara andartak, það rétt sást í lubbann á mér, en ég er samt ánægður. Vinir mínir öfunda mig, þótt það hafi bara sést í hárið á risatjaldinu!“Smelltu hér til að sjá tökustaði þriðju myndarinnar á Bretlandi.
En það er ekki víst að nemendurnir verði valdir - og skólastjórinn segist ekki geta gefið neina tryggingu fyrir því.

18. janúar 2003 - FÖNIXREGLAN Á LEIÐINNI
Ég er búin að flytja fréttirnar um útgáfudag 5. bókarinnar (sem er 21. júní) á bókasíðuna. Smelltu á „BÆKURNAR“ hér til vinstri, og á bók númer 5. Þar eru tilvitnanir úr bókinni.

18. janúar 2003 - 154 dagar í útgáfu Fönixreglunnar!
Fjölmargar bókabúðir í Bandaríkjunum verða opnar fram yfir miðnættiföstudaginn 20. júní til að selja bókina á slaginu 12:00. Barnes & Noble í Bandaríkjunum sendir þér bókina á útgáfudaginn ef þú pantar - hún kostar 17,97 USD eða um 1.450 krónur íslenskar. Bókin er þegar komin í efsta sæti sölulista margra bókabúða á Netinu, þótt enn séu margir mánuðir í útgáfu hennar.

18. janúar 2003 - Fönixreglan: STRANGAR ÖRYGGISREGLUR
Mikil leynd hvílir yfir því hvar handritið af fimmtu bókinni er geymt á bak við lás og slá. Miklar öryggisreglur eru viðhafðar. Emma Matthewson (sem við öll öfundum) er ritstjóri bókarinnar og hún er annar aðilinn af tveimur sem hafa séð handritið. Hinn er Nigel Newton, yfirmaður Bloomsbury bókaútgáfunnar. Þau eru með skrifstofu saman við Soho-torg í vesturhluta London. Að undanförnu hefur tvisvar sinnum verið brotist inn í bíl Emmu - sennilega í leit að handritinu - en það er ekki geymt þar, og ekki heldur á skrifstofunni. Verið er að teikna bókarkápuna og hún verður sett innan skamms á vefsíðu Bloomsbury (og hérna, auðvitað).

18. janúar 2003 - Fönixreglan: ÚTGÁFUFERILLINN
Ykkur til glöggvunar um hvað er nú að gerast með Fönixregluna og hvað gerist á næstunni, segi ég hér frétt af Newsround um ferilinn:

Nú þegar handritinu hefur verið skilað inn mun J.K. Rowling vinna náið með ritstjóranum til að tryggja að allt gangi upp í bókinni og þar séu engar rangar staðhæfingar (t.d. að á einum stað sé manneskja fertug og á öðrum stað er hún allt í einu þrítug).

Listamaður vinnur með Rowling og ritstjóranum að því að teikna kápuna og aðrar skreytingar. Kápan þarf að vera tilbúin fljótlega þannig að hægt sé að nota hana í auglýsingaskyni.

Yfirlesarar hjá útgáfunni byrja að lesa yfir handritið og athuga villur í stafsetningu o.fl. Þetta tekur allt saman um tvo mánuði.

Þegar því er lokið (sennilega um miðjan mars) verður handritið sent í próförk, sem er eins konar uppkast að bókinni. Handritið er 255.000 orð, svo þetta tekur svolítinn tíma. Ritstjóri og prófarkalesarar lesa próförkina með mikilli nákvæmni.

Ef þess gerist þörf er próförkin leiðrétt og prentuð út aftur. Rowling les líka yfir annað slagið. Þetta tekur um 2 mánuði.

Þegar allt er tilbúið fer lokaeintakið af bókinni í prentsmiðjuna, ásamt myndum, þar sem hún er skönnuð inn í tölvu. Prentvélarnar spýta svo út úr sér hundruðir þúsunda eintaka sem þurfa að vera tilbúin nokkrum vikum fyrir útgáfudaginn.

Að lokum fara bækurnar í bókabúðir, þar sem þú getur nálgast þær.

Ef þú vilt lesa bókina á íslensku þarftu að bíða lengur. Bjartur, bókaútgáfa Harry Potter á Íslandi, fær ekki handritið fyrr en 21. júní vegna þessarar miklu leyndar. Þá fer það til Helgu Haraldsdóttur í þýðingu og Helga þarf örugglega 2 mánuði til að þýða hana. Síðan vinnur ritstjóri með Helgu (1 mánuður), og loks fer bókin í próförk (1 mánuður), og svo prentun (1 mánuður). Ég myndi giska á að hún komi út í byrjun nóvember.

10. janúar 2003 - Jason Isaacs / Lucius Malfoy
Jason Isaacs sem leikur Lucius Malfoy (pabba Draco Malfoy) segist hafa gaman af því að leika "vonda manninn".Hann hafði sótt um hlutverk Snape í fyrstu myndinni en fékk það ekki - þar sem Alan Rickman varð fyrir valinu. Jason gaaafst ekki upp og fékk að leika illmennið í Leyniklefanum.
Í daglegu lífi er maðurinn víst mjög vingjarnlegur og skemmtilegur en honum tekst einkar vel upp að lifa sig inn í hlutverk illmennisins (og var m.a. Colonel William Tavington í "The Patriot"). Hann segir um að leika fólk sem okkur er illa við: "Það er eins og slæmt kjöt. Það festist lengi í tönnunum á manni." Svo bætir hann við: "Almenningur gleymir illmenninu seint vegna þess að það gerir mann reiðan en ég ætla mér einmitt að gera það með Lucius". Sjáðu viðtal við hann hérna (á ensku).
Ég er sammála Jason. Maður gleymir aldrei vondu manneskjunni í bíómyndum og bókum. Ég gleymi aldrei JR í Dallas en það var sá versti af öllum vondum í vinsælli sjónvarpsþáttaseríu.

10. janúar 2003 - Leikarar í Fanganum frá Azkaban
Ef þú hefur áhuga á að leika í þriðju myndinni, smelltu á BÍÓMYNDIR og VILTU LEIKA.

9. janúar 2003 - TOM FELTON viðtal
Þið sem dáist að Draco Malfoy/Tom Felton. Lesið glænýtt viðtal við hann hérna (á ensku, ég mun þýða það á næstu dögum).

9. janúar 2003 - Rupert Grint kaupir hús
Eins og aðdáendur hafa bent á í gestabókinni hefur Rupert Grint keypt hús handa fjölskyldu sinni. Rupert keypti 600 þúsund punda hús (80 milljónir) hús með 5 svefnherbergjum fyrir foreldra sína, bróður og þrjár systur. Húsið er á einkaeyju á ánni Lea í Hertford. Rupert Grint hefur þénað um 75 milljónir fyrir að leika Ron í myndunum tveimur. Sjáið fréttina á vefsíðu SUN hérna - ásamt mynd af höllinni.

4. janúar 2003 - Ljóð eftir HP aðdáanda
Einn af pennavinum mínum, Dísa Potter, sendi mér mörg ljóð eftir sig í tölvupósti. Ég er búin, með hennar leyfi, að setja þau inn á Klúbbsíðuna. Smelltu á "KLÚBBURINN" og "BRÉF II" til að skoða ljóðin hennar Heiðdísar. Kærar þakkir, Dísa Potter.

4. janúar 2003 - Póstkort selt á meira en 3 millj. íslenskar
Þetta er ekki glæný saga en ég verð að segja hana hérna. Þegar ég var á þingi breskra barnabókahöfunda í Leeds í september áttum við jafnvel von á Rowling en hún sendi afsökunarbeiðni og sagðist ekki komast. Þess í stað sendi hún póstkort sem hún sagði að mætti bjóða upp á þinginu. Á póstkortinu stóðu 5 hlutir sem áttu að gerast í bók nr. 5. Söluandvirðið átti að renna til góðgerðarmála.

Rétt áður en uppboðið hófst kom símhringing frá Sothebys í London þar sem sagt var að lágmarksboð í kortið væru 5.000 pund. Við erum öll fátækir barnabókahöfundar og treystum okkur ekki í þetta, svo það var ákveðið að póstkortið færi á uppboð í London. Við sáum bara lokað, innsiglað umslag. Uppboðið fór fram á barnabókaþinginu og ýmsir aðrir munir (sem barnabókahöfundar höfðu gefið) seldust.

Póstkortið fór til London og var boðið upp í desember. Vefsíðan THE LEAKY CAULDRON (sem ég sæki oft fréttir til) safnaði 10.000 pundum frá gestum síðunnar til að bjóða í kortið. Þau buðu, en þetta var ekki nóg. Kortið fór á 28.680 pund, eða yfir 3 MILLJÓNIR íslenskar. Allt féð rann til góðgerðarmála. Aðstandendur The Leaky Cauldron ákváðu að láta 10.000 pundin renna til Book Aid International sem eru samtök sem dreifa barnabókum til fátækra þjóða.

4. janúar 2003 - Inga Auðbjörg
Þakkir til Ingu Auðbjargar fyrir heimsóknina á HP-síðuna. Ég hef fylgst með skrifum hennar á hugi.is (undir "bækur"), þar sem hún er ötulasti talsmaður Harry Potter og Lýru Silfurtungu (Gyllta áttavitans, Lúmska hnífsins, Skuggasjónaukans). Heimsækið síðu Ingu Ausu og skoðið greinaskrif hennar um Harry Potter. Flott, Inga!

3. janúar 2003 - NÝTT! NÝTT!
Takið eftir! Bæði Anna Lilja og Tobba hafa verið að uppfæra vefsíðurnar sínar og hafa skotið GLÆSILEGUM uppfærslum í loftið. Heimsækið þær með því að smella á nöfn þeirra. Til hamingju, stelpur ... frábært ... æði ...

3. janúar 2003 - TEKJUHÆSTA KONAN
Þrátt fyrir að Rowling hafi ekki tekist að koma frá sér bók á síðastliðnu ári er hún tekjuhæsta kona Bretlands. Hún var með 77 milljón punda í tekjur (margfaldaðu það með 130 og fáðu út íslenskar krónur) sem er SJÖ SINNUM MEIRA en Elísabet Bretadrottning hafði. Aðrir sem fylgja í fótspor hennar (en langt á eftir) eru Madonna og Catherine Zeta-Jones.

3. janúar 2003 - DANNY í Ástralíu
Leikarinn Daniel Radcliffe hefur verið á nýársferðalagi í Ástralíu ásamt foreldrum sínum. Naskir Ástralir sáu hann borða á ítölskum veitingastað sem heitir Lucios á mánudagskvöldið 30. janúar. Þá fékk hann sér ostrur í forrétt, önd í aðalrétt og að lokum ís með súkkulaðisósu. Þá vitið þið það. Þessi frétt var hér.

3. janúar 2003 - TOM FELTON Í ÁGÚST
Í fyrra veiddi Tom Felton 37 punda fisk í St.Lawrence í Bandaríkjunum (þið vitið öll hvað hann hefur mikinn veiðiáhuga). Nú hefur kappinn verið fenginn til að OPNA ÁRLEGA VEIÐIKEPPNI á sama stað þann 19.ágúst nk. Hann mun sjá um þriggja klukkustunda kynningu, þar sem ungum veiðimönnum er m.a. bent á leiðir til að tryggja sem minnsta röskun umhverfisins er þeir veiða. Sjáið frétt um það hér.


Tom með 37 punda fiskinn sinn. Vááááá ....

1. janúar 2003 - ROWLING!
Við eigum það til að gleyma manneskjunni sem á upphafið að öllu þessu ævintýri okkar, hinni stórkostlegu J.K. Rowling. Nú hef ég uppfært ALLAR Rowling-síðurnar, BARA 20 HTML-síður. Púff, skemmtilegur nýársdagur. En þessu er nú lokið og ég vona að þið njótið afrakstursins. Smellið á "ROWLING" hér til vinstri og skoðið síðurnar. Kannski hafið þið misst af einhverju í gegnum tíðina. 1-2 viðtöl hef ég ekki ennþá þýtt - ég var bara búin að gleyma þeim! Ég hef fengið marga afmælisdaga og sett þá inn. Svo uppfæri ég meira um helgina, nú er ég búin í bili.

Nýársnótt 2003 - NÝTT ÁR!
Klara (fastagestur) spyr í gestabókinni hvar í bók 4 Dumbledore rekur Arabellu Figg út. Hmmm, ég er að komast að því. Kjaftasögur: Ég sá á annarri síðu að þar sem Dumbledore nefnir Arabellu í listanum í bókarlok #4 muni hún sennilega vera félagi í Fönixreglunni í bók #5. Fólk hefur giskað á að Fönixreglan sé hópur sem Dumbledore setur saman til að berjast gegn Voldemort. Dumbledore nefnir regluna eftir fönixfuglinum sínum, Fawkes. Sproti Harrys er gerður úr fjöður Fawkes, og líka sproti Voldemorts. Í Fönixreglunni eru líklega Harry, Hermione, Weasley-fólkið, Hagrid, Maxime og ýmsir kennarar (og jafnvel Arabella). Dumbledore óskar eftir stuðningi Arabellu til að tryggja öryggi Harry þegar hann er ekki undir verndarvæng þess öryggissvæðis sem galdraþula hefur myndað um heimili Dursley-fjöslkyldunnar til verndar Harry.

Margir segja að Arabella Figg og frk. Figgs úr fyrstu bókinni (barnfóstra Harrys) sé ein og sama manneskjan (sjáið helstu getgáturnar hér). Sumir segja að það sé Arabellu Figg að þakka að Harry hafi ekki misst stjórn á sér hjá Dursley-fjölskyldunni í gegnum tíðina. Hún sé víst norn og verndari Harrys. Harry hafi farið til þessarar brjáluðu konu á hverju ári á afmælisdegi Dudleys.