Um síðuna
Eldri fréttir
Bækurnar
Bók 1
Bók 2
Bók 3
Bók 4
Bók 5
Bók 6
Bók 7
Orð og nöfn
Heimavistir 
Persónur
Galdraþulur
J.K. Rowling
Ævisaga  
Myndasíða
Verðlaun
Góðverk 
BBC þáttur
Grein eftir HJ 
Viðtöl 2000
Viðtöl 2001
Viðtöl 2002
Viðtöl 2003
Ádeilur
Kvikmyndir
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Fyrir kennara
Viltu leika?
Viðtal/Hayman
Frumsýningar
Leikarar
Daniel Radcliffe
Daniel myndir

Emma Watson

Emma myndir

Rupert Grint
Rupert myndir
Tom Felton

Tom myndir

Sean Biggerst.
Sean myndir
Aðrir leikarar
Blaðam.fundur
HBO viðtal
Heimilisföng
FAN-klúbbur
„Fan-art“
„Fan-fiction“
Tagboard
Fastagestir
Afmælisdagabók
Bréf frá gestum
Gestabók
Tenglar
Íslenskir
Erlendir
Leikir
Leikir í gangi
Spider Frenzy
Broomsticks
BroomstiX
Fill It
Hogwarts
Knockturn Alley
Púsluspil 11
Púsluspil 2
Triwizard 1
Triwizard 2
Tveir leikir
Quidditch
Fleiri leikir 
Annað
Tölvupóstur


Eldri fréttir, frá árinu 2002

Sunnud. 29. des. 2002 - Eftir flugeldasýningu
Æðislega flott flugeldasýning hjá Hjálparsveitunum við Perluna. Á leiðinni þangað skutlaði ég Skuggasjónaukanum til Lilju Bjarkar sem reyndist búa í Breiðholtinu eins og ég. Hún vann bókina fyrir að vera næstum því gestur nr. 50.000. TIL HAMINGJU, Lilja Björk!

Sunnud. 29. des. 2002 - Uppfærslur
Ég hef leitað að efni á Netinu um hvernig á að gera heimasíður, hverjir bjóða ókeypis hýsingu og svoleiðis. Vegna mikillar eftirspurnar mun ég setja upp hjálparsíður fyrir þá sem ætla sér að setja upp Harry Potter síðu eða jafnvel síðu um annað áhugamál. Þið vitið vonandi öll að ykkur er óhætt að taka viðtöl o.fl. sem ég hef þýtt og nota það á ykkar síður. Vinsamlegast nefnið þýðandann - það eru einu launin mín :=). Allar myndir megið þið taka og nota eins og þið viljið, þið þurfið ekki að segja hvaðan þær koma.

VIÐTAL VIÐ EMMU
Ég var að bæta inn viðtali við Emmu af CBBC Newsround. Smelltu á viðtöl og veldu takkann EMMA TFK. Ég er að laga alls konar villur í viðtalasíðunum. Það eru 104 nýir takkar (flash - þessir sem breytast þegar maður smellir á þá) á svæðinu mínu og hver þeirra er vistaður sem mynd með tengli á síðu. Soltlar pælingar.

HVER VERÐUR GESTUR Nr. 50.000?
Ég er í jólaskapi. Mig langar að verðlauna gest númer 50 þúsund sem kemur sennilega í dag eða á morgun. Sá gestur fær bókina SKUGGASJÓNAUKANN að gjöf frá mér (ég þýddi hana). Ef þú ert númer 50.000, skrifaðu mér tölvupóst með nafni og heimilisfangi, taktu "copy" af tölunni í talningareitnum og "paste" inn í bréfið frá þér til að sanna að þú hafir verið 50 þúsundasti gesturinn.

HP3 tekin í Glencoe
Breska fyrirtækið BBC er með frétt um að næsta HP-kvikmyndin (Fanginn frá Azkaban) verði að nokkru leyti tekin í Glencoe á Skotlandi. Það á vel við, þar sem Rowling býr í Glasgow á Skotlandi. Sjáið fréttina hér.

Fimmta Harry Potter bókin í júní 2003
Í ársyfirliti útgáfufyrirtækisins Scholastic (sem gefur út HP á Englandi) segir: Hvað framtíðina varðar, segir hr. Robinson: „Við reiknum nú með því að fimmta Harry Potter bókin komi út snemma á útgáfuárinu 2004, sem byrjar 1. júní 2003." Þetta þýðir að bókin kemur ekki út á Íslandi fyrr en síðsumars eða næsta haust. Döh. Jæja, það gefur okkur tíma til að lesa fullt af öðrum góðum bókum. Af nógu er að taka.

Branach tilnefndur
Búið er að tilnefna Kenneth Branach til London Film Critics verðlaunanna fyrir hlutverk hans sem Gilderoy Lockhart í HP#2. Sjáið fréttina hér.

Shakira-aðdáendur
Þann 17. desember fóru Rupert og Emma á tónleika með Shakiru. Hún bauð líka Daniel að koma á tónleikana og heimsækja sig á bak við sviðið, en aðeins Rupert og Emma þáðu boðið. Þú sérð myndir af þeim á tónleikunum hérna.

Aðfangadagur 24. des. 2002.
GLEÐILEG JÓL! Ég er í sjöunda himni vegna þess að starfsfólk bókaverslana valdi SKUGGASJÓNAUKANN sem bestu þýddu barnabókina 2002. Hæ, hæ og hó, hó, hvað þetta gleður mig, þýðandann, sem elskar þessa bók. Vonandi fá mörg ykkar þennan konfektkassa í jólagjöf. Bók Auðar Jónsdóttur um æskuár Halldórs Laxness fékk verðlaun sem besta barnabókin. Lesið hana, hún er frábær. Takk, starfsfólk bókaverslana - ég vona að þið fáið góða hvíld um jólin eftir erfiða törn.

Laugard. 30. nóv. 2002. ÉG ER KOMIN HEIM - KOM Í GÆR! Það var frábært í Bandaríkjunum en ég tók 8 flugvélar á 4 dögum, heimsótti nýja borg á hverjum degi og fékk U.S.A. beint í æð. Skoðaði flott álver í Kanada og margt fleira. Í tilefni þess að SKUGGASJÓNAUKINN er komin út (sem ég þýddi), þá eyddi ég öllum deginum í dag að uppfæra síðurnar um Gyllta áttavitann, Lúmska hnífinn og Skuggasjónaukann. Ef þú ert þreytt(ur) á að bíða eftir HP5, lestu þessar bækur um jólin. Þær eru á við 100 Mackintosh-dollur! Smelltu hér til að skoða allt um þær. Svo uppfæri ég þessa síðu hérna síðdegis á morgun, 1. des.

Sunnud. 10. nóv. 2002 - UPPFÆRSLA
TENGLASÍÐAN var orðin svolítið léleg - helmingurinn af tenglunum virkaði ekki. Ég hef smám saman verið að uppfæra hana og bætt inn síðum og FULLT AF LEIKJUM. Takið sérstaklega eftir nýjum erlendum tenglum, þeir eru merktir:

Laugard. 9. nóv. 2002 - DÝRMÆTAR BÆKUR!
Þið sem eigið ensku harðspjaldaútgáfuna af Harry Potter and the Philosopher's Stone - kíkið aftan á titilsíðuna. Ef þetta er fyrsta prentun, þá stendur 10987654321 þar neðst. Ekki hefur tekist að finna 200 eintök af þessari fyrstu útgáfu en hvert eintak er talið mikils virði: 16.000 GBP eða allt að 2 milljónir íslenskar krónur. Ég skoðaði auðvitað mína! Döh, hún er úr fjórðu prentun (númeraröðin byrjar á 40). Sjá fréttina hér.

HARRY POTTER ER EKKI HÆTTULEGUR

Ályktun Landssambands
sálfræðinga í Bandaríkjunum

STJÖRNUM STRÁÐ
frumsýning myndarinnar

Grein í THE SUN On-Line
(Myndin er af Brooklyn Beckham, syni Viktoríu og Davíðs Beckham, en hann kom á frumsýninguna í fylgd afa og ömmu - foreldra Viktoríu - og ungrar frænku

FYRIR KENNARA
Er ráðlegt að fara með krakkana í hópferð á kvikmyndina?

Myndin t.v. sýnir McGonagall prófessor máta flokkunarhattinn á Harry til að sjá í hvaða húsi hann mun búa

 

ALLS KONAR GAMLAR FRÉTTIR AF HARRY POTTER