Aðdáendaklúbburinn |
Hér
er vísir að aðdáendaklúbbi
Harry Potter á Íslandi („The Icelandic
Harry Potter Fan Club“)
Mörg
ykkar hafa skrifað í gestabókina fleiri
hundruð sinnum. Þið eruð farin að
þekkjast! Og mér finnst ég þekkja
ykkur, þótt ég hafi aldrei séð
ykkur. Þið hafið sent mér bréf,
myndir, ábendingar, hvatningarorð, leiðréttingar,
afmæliskveðjur, jólakveðjur - þið
eruð frábær. Afsakið þótt
ég svari ekki öllu sem er sent en ég
vil frekar eyða tíma í að UPPFÆRA
en að svara bréfum (þið viljið
líka fleiri uppfærslur). |
|
Ástrós
Skúladóttir er ein af fasta, fasta, fastagestum
síðunnar. Ef þú vilt senda henni
tölvupóst, smelltu
hér.
Og
svo er Ástrós líka með heimasíðu,
smelltu
hér til að skoða hana.
|
|
Þessi
hraustlegi maður er Alli J, góðkunningi Harry
Potter síðunnar. Þetta er upprennandi heimspekingur,
rithöfundur og „hugsuður“, eins og
þið öll.
Ég
sá á huga.is að til stóð að
HP-aðdáendur hittist í Kringlunni. Hvar
sem þið sjáið hvert annað, þekkist
þið vonandi af þessum myndum og vitið
að þið deilið sama áhugamáli! |
|
Hér
eru þrjár vinkonur. Ég veit ekki hvað
þessi í svörtu peysunni heitir en sú
í gulu peysunni er Anna Gunnarsdóttir eða
Anna Potter (heimasíða)
og þessi í hvítu flíspeysunni
með jólasveinahúfuna er Þórunn
Jakobsdóttir eða Dódó bezt
(heimasíða)
en báðar eru fastagestir hérna. |
|
Þetta
eru þrjár góðar vinkonur sem oft koma
hingað. Talið frá vinstri. Magnea, Heiðdís
(Dísa Potter) og Vala. Þær hafa
skrifast á við mig lengi og fyrirgefa mér
alltaf þótt ég svari ekki fyrr en seint
og um síðir. |
|
Annar
góður klúbbfélagi, Iðunn,
sendi mér líka mynd.
Það
er þrumugott að fá myndir af ykkur. |
|
Og
svo er þetta hún Tobba, sem nú
býr í Kaupmannahöfn en kemur vonandi
fljótlega aftur til heimalandsins.
Tobba
er, ásamt Lilju og Söndru, með Potter-Netið.
|
|
Þessi
hressa stelpa heitir Rakel Sara Björnsdóttir
og er einn af reglulegu gestunum hérna.
Rakel
Sara hefur sent mér mynd af HP og græna blysinu
(sem þú finnur á
þessari síðu).
Takk
fyrir myndina, Rakel Sara!
Ef
þið viljið skrifa tölvupóst til
hennar, smellið bara hérna. |
|
Hér
er
Rakel Unnardóttir, mjög listræn og glæsileg
mynd. Rakel býr á Selfossi.
Tölvupóstur:
Smelltu hér.
Heimasíða: Smelltu
hér.
(Myndin
send inn 19. nóvember 2003) |
|
Annar
góður aðdáandi er bróðir
Rakelar Söru. Hann heitir Róbert Smári.
Sniðugt
að þau heita bæði RS!
Ef
þú vilt skrifa honum (ég myndi nú
frekar skrifa honum en Rupert eða Daniel), smelltu hérna. |
|
Þetta
er Klara sem oft hefur skrifað í gestabókina.
Hún
er 14 ára aðdáandi og ef þú
vilt skrifa henni tölvupóst, smelltu hérna. |
|
Hér
er mynd af manneskju sem er búin að heimsækja
síðuna lengi, lengi, lengi.
Þetta
er Katta úr Kópavoginum. Hún heitir
nú Katrín
Birgisdóttir og er upprennandi rithöfundur
með meiru.
Ég
er meira að segja búin að hitta hana! Og
komst að því að ég var í
skóla með pabba hennar. OG ég er að
vinna með afa hennar, Garðari Ingvarssyni.
Þetta er lítið land. |
|
Og
hérna er Linda, annar aðdáandi (ég
veit ekki hvað vinkona hennar með hattinn heitir). |
Sandra
|
Og
Þóra |
Vala
|
|
|
Harry
Potter á þó nokkra aðdáendur
í Neskaupstað, t.d. Örnu
(heimasíða)
og Guðnýju Björgu (heimasíða).
Sú
sem er með Guðnýju Björgu á þessari mynd heitir Steinunn og myndin var tekin
þegar vinkonurnar voru á labbi í góða
veðrinu um verzlunarmannahelgina. |
| |
Guðlaugur Garðar er nemandi í Garðaskóla
í Garðabæ. Hann var einn af gestunum þegar
ég kom og flutti HP-fyrirlestur í Garðaskóla
í nóvember 2003. Guðlaugur er alger tölvusnillingur.
Til
að senda Guðlaugi tölvupóst, smelltu
hér. |
|
Þetta
er Fluffzter, pennavinkona mín, sem var að djóka
með vinkonum sínum þegar myndin var tekin.
Ef
þú vilt skrifa henni tölvupóst,
smelltu hér.
Fluffzterinn
er líka með heimasíðu, smelltu á
Fluffy til að heimsækja hana:

|