FAN-ART
Hér
eru myndir sem íslenskir
Harry Potter aðdáendur hafa gert
|
Hér
eru listaverk sem HP-aðdáendur hafa sent mér
í tölvupósti og venjulegum pósti
(ég hef skannað). Nú vona ég að
öll listaverki séu komin inn. Kærar þakkir
fyrir sendinguna, listamenn!
|
|
Fyrsta
myndin sem ég fékk af kápunni á
fimmtu bókinni kemur frá Ástrósu
Skúladóttur í Keflavík.
Hún er aðdáandi Harry Potter og sendi
mér myndina í pósti. Innilegar
þakkir til þessa listamanns suður með
sjó sem bíður eftir fimmtu bókinni
eins og við öll. Nafnið hennar Ástrósar
sést ekki nógu vel þarna neðst vegna
þess að það er skrifað með blýanti.
Sendandinn er:
Ástrós
Skúladóttir
Bragavöllum 12
230 Keflavík |
|
Ástrós
teiknaði bæði myndina fyrir ofan og þessa
hérna af Hermione þegar hún var 11 ára.
Takk, Ástrós. |
|
Þessa
mynd teiknaði annar fastagestur síðunnar,
Sandra Vals.
Takk,
takk, Sandra og takk fyrir öll bréfin í
gegnum tíðina.
|
|
Rakel
Sara Björnsdóttir sendi mér þessa
mynd í pósti og ég skannaði hana
inn.
Þetta
er góð hugmynd að bókarkápu
á sjöttu bókina sem mun víst heita
Harry Potter og græna blysið.
Kærar
þakkir, Rakel Sara!
Sendandi:
Rakel Sara Björnsdóttir
(11 ára)
Lerkihlíð 15
105 Reykjavík
|
|
Þessi
kápumynd á 5. bókina kemur frá
listamanni á Höfn í Hornafirði.
Glæsilegt,
Eva Ösp! Fyrirgefðu
hvað ég var lengi að setja þetta inn
(ég varð að breyta myndinni í jpg-form
í Photoshop).
Eva
Ösp Björnsdóttir
(14 ára)
Hólabraut 2
780 Hornafjörður |
|
Þessa
fallegu kápumynd að bók númer sex
gerði Sindri Geir sem býr á Akureyri.
Kærar
þakkir, Sindri Geir.
Sendandi:
Sindri
Geir Óskarsson
Áshlíð 12
Akureyri
(Sindri
er þessi flotti með áramótagleraugun
efst á síðunni) |
|
Sindri
Geir Óskarsson á Akureyri sendi líka
þessa mynd af kápunni á sjöundu og
síðustu bókinni, Harry Potter og Skuggaskóginum.
Frábært! |
| |
Sindri
Geir sendi mér þessa nýju mynd í
febrúar 2003. Ég er þá komin með
kápur á allar þrjár bækurnar
sem eftir eru frá þessum listamanni norðan
heiða. Takk, Sindri! |
|
Fluffzter
er ákafur aðdáandi. Hún sendi mér
nokkrar myndir sem hún hefur verið að leika
sér með.
Hér
er ein af Tom Felton. |
|
Önnur
mynd, nú af Rupert Grint, sem Fluffzter sendi inn.
Ef
þú vilt skrifa henni tölvupóst,
smelltu hér.
|