Flest
orð og nöfn í Harry Potter bókunum
eiga sér einhverja dýpri merkingu á
ensku tungumáli. Hér eru nokkur dæmi:
DUMBLEDORE
skólastjóri Hogwartskóla ber nafn
sem er fornt heiti yfir býflugu. Hann er líka
með nefið ofan í öllu, virðist
vita allt sem er að gerast - og samt sést hann
aldrei nálægt því!
DRACO
MALFOY (borið fram DREI-kó MAL-foj)
er samansett af fornafni sem minnir á dreka og eftirnafni
sem útleggst á frönsku sem slæm trú. LUCIUS MALFOY
(borið fram LÚ-shuss MAL-foj) er faðir
Draco Malfoy.
VOLDEMORT
(ath. að t-ið er ekki borið fram)
erkióvinur Harry Potter ber einnig franskt nafn, sem merkir
nokkurn veginn að hann svindli á dauðanum - enda er hann
að reyna að ná í viskusteininn sem tryggir honum eilíft
líf.
ARGUS
FILCH
er vaktmaðurinn í Hogwartskóla sem er með augun á öllu
sem krakkarnir aðhafast. Nafn hans minnir á Argus úr grískri
goðafræði, sem var með augu um allan líkamann.
SKÓLABÆKURNAR
sem Harry les heita ýmsum undarlegum nöfnum
og nafn höfundar þeirra vísar oft til
aðaláhugamálsins. Ein af bókunum heitir
Leiðarvísir í ummyndun fyrir byrjendur og er eftir
Emeric Switch (sem þýðir að skipta
yfir í eitthvað), og önnur heitir Töfradrykkir
og elexírar eftir Arsenius Jigger (minnir á
arseník, sem er eiturefni og jigger er lítið
staup eða hristari).
MUGGAR
heita þeir sem ekki tilheyra galdraheiminum (á
ensku Muggles). Orðið er dregið af
forníslenska orðinu mugga, sem þýðir dimmviðri,
þoka, drungi eða deyfð. Það merkir þá
fólk sem er sljótt - eða eins og sumir segja: þokuhausar".
RON
WEASLEY
er besti vinur Harrys. Ron kemur úr stórri
fjölskyldu, og er galdramaður í báðar
ættir. Fjölskylda hans er fátæk,
og hann hefur ekki efni á að kaupa sér
uglu, svo hann fær sér feitu, gráu
rottuna Scabber sem gæludýr. Foreldrar hans
eru Arthur og Molly Weasley. Arthur vinnur
við að líta eftir því hvort
fólk stelist til að nota galdra
í Muggaheiminum.
SYSTKINI
RONS:
BILL er elsti bróðir Rons, en hann vinnur
í Egyptalandi.
CHARLIE vinnur með dreka í Rúmeníu.
FRED og GEORGE eru tvíburar.
PERCY er nemandi í Hogwartskóla og
er umsjónarmaður.
Ron er næstyngstur.
GINNY er yngsta barnið, eina stelpan, og er
ári yngri en Harry og Ron. Hún byrjar í
Hogwartskóla í bók #2 og fellur fyrir
Harry.
HERMIONE
GRANGER (framb. HER-MÆ-ÓN-Í)
er vinkona Harrys. Hermione er ekki hreinræktaður
galdramaður, heldur ber hún einnig Muggablóð
í æðum, sem kemur henni í vandræði
í annarri bókinni (Harry og leyndarmálaherbergið).
Sú staðreynd að Hermione er ofsótt
í þeirri bók vegna þess að
hún er ekki með hreint blóð
í æðum er athugunarverð í
umræðu um kynþáttaofsóknir.
UGLAN
HEDWIG
er snjóugla, gæludýr Harrys og sendiboði
- hún sér um póstþjónustuna
fyrir hann. Hagrid gaf Harry Hedwig í afmælisgjöf.
Rowling segir að Hedwig sé dýrlinganafn.
LILY
OG JAMES POTTER
voru foreldrar Harrys en Voldemort drap þau þegar
Harry var ungabarn. Petunia, eiginkona Vernons
Dursley, var systir Lily. Þau eiga soninn Dudley,
sem er ofdekraður, svo ekki sé meira sagt.
QUIDDITCH
Joanne Rowling fann upp Quidditch-leikinn þegar hún eyddi
nótt á litlu hóteli í Manchester, og segir: Ég vildi
finna leik fyrir galdramenn, og mig hafði alltaf langað
að sjá leik þar sem fleiri en einn bolti væru í spilinu.
. . .Muggaleikurinn sem hann líkist helst er körfubolti
en það er sú íþrótt sem ég hef mest gaman af að horfa
á." Í Quidditch eru sex mörk, fjórir boltar og tvö sjö
manna lið sem eigast við í næstum 20 m hæð yfir jörðu,
fljúgandi á kústsköftum. Harry Potter er leitari
í Quidditch og skarar fram úr sem slíkur. Hjá honum, eins
og mörgum drengjum á þessum aldri, kemst stundum lítið
annað fyrir en næsti leikur. Drengurinn er ekkert sérstaklega
góður í göldrum en mjög klár í Quidditch!