Harry
verður 17 ára.
Snape
verður ástfanginn.
Eitthvað
hrikalegt kemur í ljós varðandi Lily
Potter.
Draco
og Harry þurfa kannski að snúa bökum
saman til að berjast gegn illu afli.
Lupin
snýr aftur - Rowling hefur víst sjálf
staðfest þetta. Hann fær hér
stærra hlutverk en í fimmtu bókinni.
Það
verður kannski ekki Harry, Ron eða Hermione
sem verður prófessor við Hogwarts. Verður
það Neville?
J.K.
sagði í viðtali fyrir nokkru að hún
væri þegar búin að skrifa síðasta
kaflann í síðuastu bókinni.
Hún
segir að það geti komið fram ein HP-bók
í viðbót eftir að sjöunda
bókin kemur út - til að safna fé
til góðgerðarmála.
Rowling
segir: Ég er ekki að segja að ég
muni ekki skrifa neitt um Hogwartskóla nokkurn
tíma aftur. Því ég hef oft
hugsað mér að ef ég skrifaði
8. bókina væri það rétt
og sanngjarnt að höfundarlaunin af þeirri
bók ættu að renna í einu lagi
til góðgerðarmála."
Þetta
gæti verið eins konar alfræðiorðabók
um Hogwartheiminn og þá gæti ég
losað mig við síðustu smáatriðin
sem eru ofan í skúffu hjá mér,
en ekki skrifað heila skáldsögu."
Í
þætti sem sýndur var 28. des. 2001
á BBC1 leyfði hún myndavélunum
að skoða síðasta kaflann og segir:
Þetta er endahnúturinn, þetta
er lokakaflinn og ég segi eiginlega hvað
verður um alla eftir að þeir ljúka
námi í skólanum, þá
sem lifa af, því fleiri munu deyja."
Hún
gefur meira að segja í skyn að ein af
aðalpersónunum muni falla frá í
þremur næstu bókum.
Það
verður ástarsaga sem heldur áfram
úr Harry Potter og eldbikarnum þar sem
Harry á stefnumót við félaga
úr Quidditch-liðinu, og hann fær meiri
áhuga á Hermione.
Rowling
segir að það verði meira um stráka-og-stelpumál
í fimmtu bókinni. Þau eru
15 ára núna og hormónarnir streyma
um æðarnar. Og Harry spyr spurninga sem fá
lesandann til að hugsa: Af hverju spurði
hann aldrei áður að þessu?
J.K.
Rowling hefur sagt að síðasta orðið
í síðustu bókinni geti verið
örið" en þetta getur breyst
við skriftirnar.