Fjórða
bókin um Harry Potter kom út 8. júlí
2000 á Englandi og í Bandaríkjunum.
HÚN
KOM ÚT ÞANN 30. OKTÓBER 2001 Á
ÍSLANDI. Bókin er töluvert lengri en
þær fyrri.
Ég
ætla að stilla mig um að setja nokkuð
um efni hennar hér inn til að spilla ekki fyrir.
Hér
getur þú séð ritdóma:
Ritdómur
í USA TODAY
Ritdómur
í THE NEW YORK TIMES eftir Jane Maslin
Ritdómur
í WASHINGTON POST
Og
hér er ágætis grein, "Harry Potter
and His Censors" í EDUCATION
WEEK.
Búið
var að selja meira en 1,5 milljónir eintaka
af bókinni fyrirfram áður en hún
kom út og lengdin virðist ekki minnka áhugann
hjá lesendum. Allir þeir sem vinna við
framleiðslu bókarinnar þurftu að
skrifa undir þagnareið. Nafni prentsmiðjunnar
var haldið leyndu og Securicor (svipað og Securitas
hér á landi) fékk samning um að
útvega 70 brynvarða bíla til að
dreifa bókinni í bókabúðir
í Bretlandi.