Harry
Potter og fanginn frá Azkaban
kom út árið 1999 á Englandi og
í Bandaríkjunum. Þetta er þriðja
bókin í röðinni um Harry Potter
en bækurnar verða alls sjö talsins. Þær
fylgja Harry frá 10 til 17 ára aldurs.
Bókin
hefur þegar hefur hlotið jafngóðar
móttökur og fyrri bækurnar tvær.
Hún hlaut Smarties-verðlaunin á Englandi
1999 en þau eru ein eftirsóttustu barnabókaverðlaun
Englands. Hinar bækurnar tvær hafa báðar
hlotið sömu verðlaun.
Útgefandi
Harry Potter-bókanna á Englandi hefur þó
ákveðið að fjórða bókin
í bókaflokknum verði ekki tilnefnd til
verðlaunanna - til að gefa öðrum höfundum
tækifæri á frama.
Bókin
kom út á Íslandi hjá bókaútgáfunni
Bjarti haustið
2000.
J.
K. Rowling virðist batna með hverju nýju
innleggi í bókaflokkinn um Harry Potter
og þessi bók er án efa sú allra
besta hingað til.
Í
upphafi bókarinnar fáum við að vita
að vel þekktur glæpamaður, Síríus
Black, sem meira að segja Muggarnir þekkja,
hafi sloppið úr Azkaban fangelsinu. Og það
er einmitt um það leyti sem Harry Potter (nú
13 ára) á að hefja þriðja
árið sitt við Hogwartskóla.
Hræðilegir
fangaverðir Azkaban-fangelsisins sem ganga undir nafninu
Vitsugurnar (Dementors) halda vörð
um allar inngönguleiðir í Hogwarts - sýnilega
í því skyni að halda Síríusi
Black frá skólanum. En Harry hræðist
Vitsugurnar jafnmikið og flóttafangann - það
líður yfir hann af hræðslu í
hvert skipti sem hann sér þá.
Harry
er svo hræddur við áhrifin sem Vitsugurnar
hafa á hann að hann leitar aðstoðar
Lupin prófessors, nýja kennarans í
sjálfsvarnarlist gegn myrkum öflum, sem hjálpar
Harry að horfast í augu við óttann.
Í
þessari bók er að finna sama húmorinn,
vel úthugsuðu fléttuna og frábæru
persónusköpunina eins og í hinum tveimur,
en nú kynnir Rowling meiri sálfræðilega
flækju til sögunnar, þar sem Harry þarf
að komast yfir dauða foreldra sinna. Af þessum
sökum er sagan svolítið þroskaðari
og vandaðari en fyrri sögurnar tvær.
En
spennan heldur lesendum við efnið og bókarlokin
koma svo sannarlega á óvart. Auðvitað
bíða þeir svo eftir næstu bók.
Þessi bók hentar börnum 9 ára
og eldri.
GAGNRÝNI
Á HP3 FINNUR ÞÚ Á ÞESSUM
SÍÐUM (á ensku):
Booklist
(1. september, 1999)
New
York Times Book Review (5. september, 1999)
Plugged
In (Focus on the Family)
Publishers
Weekly (19. júlí 1999)