Um síðuna
Eldri fréttir
Bækurnar
Bók 1
Bók 2
Bók 3
Bók 4
Bók 5
Bók 6
Bók 7
Orð og nöfn
Heimavistir 
Persónur
Galdraþulur
J.K. Rowling
Ævisaga  
Myndasíða
Verðlaun
Góðverk 
BBC þáttur
Grein eftir HJ 
Viðtöl 2000
Viðtöl 2001
Viðtöl 2002
Viðtöl 2003
Ádeilur
Kvikmyndir
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Fyrir kennara
Viltu leika?
Viðtal/Hayman
Leikarar
Daniel Radcliffe
Daniel myndir

Emma Watson

Emma myndir

Rupert Grint
Rupert myndir
Tom Felton

Tom myndir

Sean Biggerst.
Sean myndir
Aðrir leikarar
Blaðam.fundur
HBO viðtal
Heimilisföng
FAN-klúbbur
„Fan-art“
„Fan-fiction“
Tagboard
Fastagestir
Afmælisdagabók
Bréf frá gestum
Gestabók
Tenglar
Íslenskir
Erlendir
Leikir
Leikir í gangi
Spider Frenzy
Broomsticks
BroomstiX
Fill It
Hogwarts
Knockturn Alley
Púsluspil 11
Púsluspil 2
Triwizard 1
Triwizard 2
Tveir leikir
Quidditch
Fleiri leikir 
Annað
Tölvupóstur

 


Síðast uppfært
2. nóvember 2003

Bók 2: Harry Potter og leyniklefinn


Titill:
Harry Potter og leyniklefinn
Höfundur: J. K. Rowling
Þýðandi: Helga Haraldsdóttir
Titill á ensku: Harry Potter and the chamber of secrets
Reykjavík: Bjartur, 2000
Blaðsíðufjöldi: 280 síður
Útgáfunúmer: ISBN 9979865687



Bókarkápan t.v. sýnir íslensku kápuna. Bókarkápan að ofan sýnir þá ensku. Litamismunurinn er mun minni, það er bara upplausnin sem er öðruvísi.


Harry Potter and the Chamber of Secrets kom út árið 1998 á Englandi. Helga Haraldsdóttir þýddi bókina yfir á íslensku eins og þá fyrstu og Harry Potter og leyniklefinn kom út á Íslandi þann 15. apríl 2000.

Þetta er önnur bókin í röðinni um Harry Potter, en bækurnar verða alls sjö talsins. Þær fylgja Harry frá 10 til 17 ára aldurs.

Harry er kominn í sumarfrí frá Hogwartskólanum og eyðir því með hinni hugulsömu Dursley fjölskyldu, en Dudley og foreldrar hans vilja helst láta sem Harry sé ekki til. Tólf ára afmælið hans rennur upp og þau halda ekki upp á það frekar en vanalega.

Lítill húsálfur birtist Harry og varar hann við því að fara aftur í skólann um haustið en Harry getur ekki hugsað sér að eyða meiri tíma með Muggunum - og tekur áhættuna.

Harry kynnist leyniklefanum og því hversu hættulegt það getur verið að hafa ekki „hreint“ nornablóð í æðum (fordómar eru líka til utan heims Mugganna).

Hvað táknar hvíslið sem enginn heyrir nema Harry? Hver er að ráðast á útvalda nemendur og breyta þeim, hverju fyrir sig, í steinlíkneski? Liggja öll svörin í leyniklefanum - ef hann er þá til?

Harry ræðst í að leysa þessar ráðgátur ásamt Ron og Hermione, vinum sínum, með vitsmunina að vopni, nokkrar töfraformúlur og heppnina í rassvasanum.

Lesendur fyrstu bókarinnar þekkja sögusviðið og persónurnar og í þessari bók kemur nýtt fólk og ný fyrirbæri til sögunnar, m.a. Dobby, litli húsálfurinn og Gilderoy Lockhart, montinn og sjálfumglaður rithöfundur sem kennir sjálfsvörn gegn myrku öflunum.

Frábær flétta, húmor og frumleiki einkenna þessa bók eins og þá fyrstu. Hentar lesendum 8 ára og eldri.

Gagnrýni á HP2
finnur þú á eftirfarandi stöðum (á ensku):

Booklist (May 15, 1999).

Plugged In (Focus on the Family)

Publishers Weekly (May 31, 1999)