Harry
Potter og viskusteinninn (Harry
Potter and the Philosopher's Stone) eftir breska rithöfundinn
J.K. Rowling, kom út árið 1997 á
Englandi. Árið 1998 var hún gefin út
í Bandaríkjunum undir nafninu Harry Potter
and the Sorcerer's Stone. Helga
Haraldsdóttir þýddi bókina
yfir á íslensku og kom hún út
í október 1999 hjá bókaútgáfunni
Bjarti.
Harry
Potter og viskusteinninn er fyrsta bókin í
röðinni um Harry Potter, en bækurnar verða
alls sjö talsins og fylgja Harry frá 10 til
17 ára aldurs.
Harry
er grannur 10 ára gamall strákur með
gleraugu. Foreldrar hans létust þegar hann
var á fyrsta ári, og var honum þá
komið í fóstur hjá harðbrjósta
móðursystur sinni og manni hennar, Dursley-hjónunum.
Þau eiga son, Dudley, sem er á svipuðum
aldri og Harry. Dursley-hjónin ofdekra Dudley en
fara illa með Harry. Þau hafa til dæmis
aldrei haldið upp á afmælisdaginn hans
- en hlaða rándýrum gjöfum á
Dudley þegar hann á afmæli.
Þá
fær hann skilaboð sem breyta lífi hans:
hann hefur fengið inngöngu í HOGWART galdraskólann.
Fréttirnar hefðu kannski ekki haft svo mikil
áhrif á Harry ef hann hefði haft hugmynd
um að hann væri gæddur galdrahæfileikum
en Harry vissi ekki einu sinni að galdramenn- og konur
væru til og hvað þá að hann
ætti sjálfur eftir að fara í heimavistarskóla
sem kenndi galdra.
Heimur
seiða og töfradreykkja, skrímsla og dreka
og fljúgandi galdraprika opnast smám saman
fyrir bæði Harry og lesendum þessarar
óvenjulegu og ótrúlega góðu
sögu.
Nám
í Hogwartskóla tekur alls sjö ár
og að loknu því námi telst nemandinn
fullnuma galdramaður eða -kona. Börnin læra
meða annars að fljúga á kústum,
blanda ýmis galdraseyði og að breyta fólki
í froska.
Harry
nýtur lífsins í Hogwartskóla
og eignast þar tvo góða vini, Ron Weasley
og Hermione Grainger. En hann á líka marga
óvini. Þeirra stærstur er illmennið
Voldemort, sem átti sök á dauða
foreldra hans. Og svo er það Draco Malfoy, drengur
í skólanum sem þolir ekki vinsældir
Harrys. Þar að auki grunar Harry suma kennarana
um græsku.
Í
heimavistarskólum, eins og annars staðar, er
að finna hrekkjusvín og illmenni en Hogwart
er samt dásamlegur staður í augum Harrys
og verður brátt að heimili hans.
Rowling
hefur skapað dásamlegan galdraheim sem byggir
á aldagömlum hefðum og siðum, töfrandi
orðum, siðareglum, íþróttum
og auvitað hinni eilífu baráttu á
milli góðs og ills sem Harry og hinir nýju
félagar hans flækjast inn í. Höfundurinn
töfrar fram spennu og leyndardóma í
þessari sögu sem hentar vel fyrir börn
8 ára og eldri.
GAGNRÝNI
á HP1 finnur þú á eftirfarandi
stöðum (á ensku):
Booklist
(15. september 1998)
New
York Times Book Review (14. febrúar
1999).
Plugged
In (Focus
on the Family)
Publishers
Weekly (19. júlí 1998)
Greinar
á íslensku um bókina:
Anna
Heiða Pálsdóttir: Titill Hobbitinn Fróði
og Harry Potter :
ungir menn með hlutverk. Börn og menning; 2002;
17 (1): s. 10-15
Harry Potter og viskusteinninn er stórkostleg
bók, sem hrífur lesendur á öllum
aldri. Hún er sannkallað ævintýri
í nútímabúningi, vel skrifuð,
og persónusköpunin er með því
besta sem gerist í barnabókum.