|
Viltu
fá aukahlutverk í næstu mynd?
Það
er of seint fyrir Fangann frá Azkaban þar sem
tökum er nokkurn veginn lokið. En ef þú
vilt endilega reyna að komast í Harry Potter
og eldbikarinn, skaltu bíða róleg(ur).
Skv.
frétt CBBC hefur stúdíóið
sett upp sérstaka
hlutverkaskrifstofu sem þú getur skrifað
til - en ekki fyrr en í janúar 2004.
Þau
eru ekki að lofa neinu, en það má reyna.
Eina
leiðin til að fá aukahlutverk í myndinni
(hvað sem sumar vefsíður eru að segja)
er að tala við þessa skrifstofu.
Sendu
STUTT bréf og nýlega mynd til:
Casting
Office
Leavesden Studios
PO Box 322
Watford
Hertfordshire
WD25 7XJ
Ekki
hringja, ekki senda fax eða e-mail, skrifaðu venjulegt
bréf. Þeir
geta ekki svarað öllum en þú hefur
meiri möguleika á að fá svar ef þú
lætur frímerkt umslag fylgja með (alþjóðlegt
frímerki fæst á næsta pósthúsi)
og ekki gleyma að setja:
-
- nafn
- -
heimilisfang
- -
síma
- -
tölvupóst
- -
mynd
- -
og allt saman í bréfið.
Það
væri allavega eigulegur gripur, bréf frá
stúdíóinu, þótt það
sé höfnunarbréf!
FRÉTTIR
AF KRÖKKUM SEM HAFA FENGIÐ AUKAHLUTVERK:
Fékk
aukahlutverk í myndinni
Strákur sem heitir Harrison, 13 ára, er á
lista hjá umboðsfyrirtæki leikara
og honum bauðst aukahlutverk í Azkaban-myndinni.
Hann fékk lítið að segja en sést
í nokkrum senum. Og hann sagði „halló"
við Dan Radcliffe. Hann segir frá þessari
upplifun á CBBC-vefnum.
Sett
inn 5. nóv. 2003
Ein
voða heppin
Net-tímarit sem heitir The
Times of Malta flytur fréttir af 13 ára
gamalli stelpu, Sarah Harrison, sem vann aukahlutverk í
myndinni um Harry Potter og fangann frá Azkaban.
Sarah tekur þátt í athöfninni þegar
nemendur eru valdir í hús í upphafi
skólaársins í Hogwartskóla.
Hún er upprennandi söngkona, tekur þátt
í Eurovision fyrir yngri þátttakendur,
og er MIKILL Harry Potter aðdáandi.
Sett inn 1. nóv. 2003

|