FRÉTTIR
TENGDAR KVIKMYND NR. 3:
Nýtt,
nýtt, nýjast!
Í dag er merkilegur dagur vegna þess að
þið getið nú séð kynningarmyndband
af Harry Potter og fanganum frá Azkaban. Farið
inn á þessa
aðalsíðu og veljið hvað þið
viljið sjá. Athugið að HI-RES þýðir
mikil upplausn og bestu gæði en það
eru ekki allar tölvur sem ráða við það.
Sett inn 13. nóv. 2003
Enn
fleiri myndir
Nokkrar nýjar myndir úr kvikmyndinni HP og
fanginn frá Azkaban. Hér geturðu t.d.
séð:
Plakatið
sem lýsir eftir Síríusi Black.
Dumbledore
að bjóða nýja nemendur velkomna.
Gönguferð
hjá Hogwartskóla.
Höndin
á vitsugu.
Nýjasta
útgáfa af Snape þar sem hann er
að verja Hermione, Rupert og Harry gegn varúlfi
(sem er, eins og lesendur bókarinnar vita, Lupin
professor).
Að
lokum er hér Marge frænka eins og útblásin
blaðra.
Sett inn 11. nóv. 2003
Síríus
Black: tattóveraður
Leikstjórinn Alfonso Cuares lét sér
detta í hug að gera Síríus Black
svolítið "krimmalegan" með því
að tattóvera hann í bak og fyrir. Ef þig
langar að sjá mynd af leikaranum Gary Oldman
með dökkt sítt hár í gerfi
Síríusar, smelltu
hér (hann er lengst t.h.)
Sett
inn 11. nóv. 2003
HP-3
kvikmynd: tvö stykki myndaalbúm
Vefsíða sem kallast DIGICASEY.COM er með
tvö myndaalbúm með myndum af tökum
þriðju kvikmyndarinnar um Harry Potter. Annað
albúmið inniheldur myndir
sem eru teknar á bak við tjöldin við
myndatökurnar. Hitt safnið er með alls
konar myndum, t.d. af Danny Radcliffe, húsum,
plakötum, o.m.fl.
Sett inn 11. nóv. 2003
Fleiri
myndir af tökustað
Breska síðan
CBBC NEWSROUND er alltaf með fínar fréttir
af Harry Potter. Þar var ég að sjá
æðislegar myndir af tökum á kvikmyndinni
Harry Potter og fanginn frá Azkaban. Smelltu á
NEXT og NEXT og þú sérð 10 góðar
myndir af leikurum og leikstjóra. Taktu eftir því
að nú eru Emma, Harry og Ron í nútímafötum,
gallabuxum og hettupeysum.
Sett inn 5. nóv. 2003
Skyggnst
á bak við tjöldin
Ertu forvitin að sjá hvað er að gerast
við tökur þriðju myndarinnar, Harry Potter
og fangans frá Azkaban? Síða sem sérhæfir
sig í fréttum af myndinni heitir HPANA
og hefur sett upp hágæða myndir sem teknar
eru á bak við tjöldin. Þú velur
bara senuna sem þú vilt sjá, t.d. Rupert
Grint að ganga í burtu frá hjólhýsinu
sínu. . Og svo geturðu séð enn fleiri
myndir frá tökustað á Dorkgirl.com.
Sjáðu Hagrid
í fullum herklæðum fara inn í nútíma
Benzinn sinn.
Sett inn 4. nóv. 2003
Flott
afmælisgjöf
Á síðu sem kallast Potterish.com geturðu
séð mynd af verkfærasetti fyrir galdrakústa
sem er afmælisjöf
frá Hermione til Harrys í kvikmyndinni
Harry
Hvað
er að gerast við myndatökurnar?
Einn góðvinur Alfonso Cuaron, leikstjóra
þriðju myndarinnar, fór að heimsækja
vin sinn á tökustað í Leavesden,
rétt fyrir utan London. Hann lýsir heimsókn
sinni og því sem fyrir augu bar á fréttasíðunni
MidDay.com.
Honum kom t.d. á óvart að sjá að
aðalbygging stúdíósins er í
stóru skýli sem var notað til að smíða
flugvélar í seinni heimstyrjöldinni.
Svo er til heil síða um þriðju myndina
á Zanzaro.com.
Sett inn 4. nóv. 2003
Emma
Thompson sem Trelawney prófessor
Blað sem heitir The
Herald-Sun í Ástralíu var
með smá-frétt þann 4. október
um að Emma Thompson hafi fengið hlutverk sem Trelawney
prófessor í þriðju myndinni. Í
greininni eru nokkrir punktar um aðra leikara. Tom
Felton sagði m.a.: „Ég elska bílana
mína. Ég á svartan BMW 316 Estate sem
ég nota sem æfingabíl á meðan
ég er 16 ára og ég er að pæla
í að fá mér sports coupé
með 1,8 l vél sem fyrsta alvöru bílinn."
Blaðamaður talaði líka við Danny
Radcliffe (14 ára) og spurði um uppáhalds-hljómsveitirnar
hans. Hann nefndi: Jane's Addiction, the Libertines, Rage
Against the Machine og the Darkness. Rupert
Grint, (15 ára) sem leikur Ron Weasley,
segist vera mikill pool-spilari - hann er með
Stutt
í „trailer“ af Azkaban-myndinni
Kynningarbútur („trailer“) af fjórðu
HP-myndinni verður 1 mínúta og 46 sekúndur.
Hann verður sýndur frá 14. nóvember
með nýju LOONY TUNES kvikmyndinni. Auk þess
bjóða 2 HP-síður, Counting
Down og Rupert
Grint Net upp á lýsingu á
því sem verður í kynningarmyndinni.
Sett inn 1. nóv. 2003 - tekið
af Mugglenet
Þrjár
kyrrmyndir úr þriðju kvikmyndinni
Ef þið eruð að bíða spennt
eftir þriðju myndinni getið þið
kíkt á smá-forskot og séð
þrjár kyrrmyndir. Farið á Mugglenet
til að sjá þær.
Sett inn 1. nóv. 2003
Nokkur
forskot á þriðju myndina
Ef þig langar að skyggnast á bak við
tjöldin við myndatöku þriðju myndarinnar,
um Fangann frá Azkaban, farðu á HPANA-síðuna
og smelltu á myndirnar til að sjá þær
betur.
Sett inn 1. nóv. 2003
Ein
voða heppin
Net-tímarit sem heitir The
Times of Malta flytur fréttir af 13 ára
gamalli stelpu, Sarah Harrison, sem vann aukahlutverk í
myndinni um Harry Potter og fangann frá Azkaban.
Sarah tekur þátt í athöfninni þegar
nemendur eru valdir í hús í upphafi
skólaársins í Hogwartskóla.
Hún er upprennandi söngkona, tekur þátt
í Eurovision fyrir yngri þátttakendur,
og er MIKILL Harry Potter aðdáandi.
Sett inn 1. nóv. 2003
|