Friðný
Sigurborg Gunnlaugsdóttir, móðir
Guðrúnar Stephensen, var fædd að
Hlíð í Álftafirði 18.
apríl 1884. Hún lést 14. apríl
1951 í Reykjavík.
Faðir Friðnýjar:
Gunnlaugur Gunnlaugsson, bóndi og dagróðrarmaður,
f. 1836 í Vatnsfjarðarsveit, d. 1920 að
Hlíð í Álftafirði. Hann
var sonur Gunnlaugs, f. 1799 að Svarfbóli.
Móðir Friðnýjar:
Jónína Jóhannsdóttir, ljósmóðir,
f. að Fæti 09.12.1842. Hún var dóttir
Jóhanns, bónda á Fæti, f.
1795 og k.h. Kristínar Jónsdóttur.
Faðir Jóhanns var Jón bóndi
á Þórustöðum í Önundarfirði,
f. um 1750, d. 25.06.1818, og móðir hans
var Guðrún Sigurðardóttir, sem
dó á Fæti 1847.
Systkini Friðnýjar:
Gunnlaugur og Jónína áttu
sjö börn en þau misstu tvö þeirra.
Hin fimm voru:
- Gunnlaugur Gunnlaugsson, f.
1870. Búfræðingur, bóndi og
sjómaður. Hann lést á Ísafirði.
- Elísabet Gunnlaugsdóttir,
f. 21. september 1872. Hún var húsmóðir
á Nýja Íslandi. Eiginmaður
Elísabetar var Einar Jónasson, f. í
Húnavatnssýslu 14. mars 1863, en hann
lést í Kanada. Elísabet og Einar
áttu 3 börn:
- Þorbjörg Jónasson.
Hún átti 1 dóttur, Elísabetu
(Betty Eliasson, en hún var tekin í
fóstur til frænku sinnar þegar
Þorbjörg lést.
- Valdheiður Lára
(Heiða
Jónasson), f. 6. nóv. 1908.
- Margeir Oswald (Maggi
Jonasson), f. 6. nóv. 1908. Margeir dó
barnlaus.
- Vigdís Gunnlaugsdóttir.
húsmóðir, þrígift.
Hún var móðir Klöru, sem við
krakkarnir munum eftir af Nesveginum.
- Jóhannes Gunnlaugsson,
f. 27. maí 1882, bóndi í Álftafirði.
- Friðný Sigurborg
Gunnlaugsdóttir, f. 18. apríl 1884.
Barn Friðnýjar
með Jóni Bjarnasyni í Tröð,
Súðavík:
Pétur Jónsson
(Peter Johnson), f. 14. maí 1904 í
Álftafirði.
Börn Friðnýjar
með Stefáni Stephensen:
Guðrún Guðbjörg Stephensen, f. 11.
maí 1919.
Gunnlaugur Hans Stephensen, 12. febrúar 1925.
Friðný giftist Stefáni Hanssyni Stephensen,
f. 25. nóvember 1872 (d. 7. júlí
1941) þann 30. september 1914 í Winnipeg.
Sjáið nánar um sögu Friðnýjar
á þessari
síðu (um æsku Guðrúnar).
Skoða má framættir Friðnýjar
hér
(tekið úr Íslendingabók sem
Íslensk erfðagreining stendur að, með
þakklæti). Þetta er Acrobat-skjal,
svo þú verður að hafa Acrobat-Reader
í tölvunni þinni.

Elísabet, systir Friðnýjar
(móðir Heiðu, frænku okkar í
Kanada) sitjandi, Guðrún Stephensen í
miðjunni og Friðný, móðir
hennar lengst t.h. Myndin hefur líklega verið
tekin um 1924.
|