
Guðrún Stephensen og Páll S. Pálsson
Guðrún Stephensen og Páll S. Pálsson kynntust ung þegar þau stunduðu bæði námi við Kennaraskólann í Reykjavík. Þá var hún 16 ára og hann tvítugur. Þau giftu sig þann 14. apríl 1945.
Guðrún og Páll áttu 8 börn - 3 drengi og 5 stúlkur - á þrettán árum (frá 1945 til 1958) og komu þeim á legg með ástúð, aðhaldi og umhyggju.
Páll lést árið 1983, 67 ára að aldri. Tuttugu árum síðar fylgdi Guðrún honum og hvíla þau nú hlið við hlið í kirkjugarðinum í Gufunesi (sjá mynd af leiðinu frá jóladegi 2004).
Þessari síðu er ætlað að halda í heiðri minningu hjónanna með ævibrotum, myndum, frásögnum o.fl. frá lífsferli þeirra.
Afkomendum Guðrúnar og Páls fjölgar stöðugt og eru þau nú komin hátt á fimmta tuginn.
Síðan er í umsjón Önnu Heiðu, næstyngsta barns þeirra, en hin systkinin sjá um að senda inn efni reglulega. Ath. að síðan er í stöðugri vinnslu og mikið á eftir að setja hér inn.